Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 ✝ Guðný KristínÁrnadóttir fædd- ist í Neskaupstað 17. mars 1929. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans að morgni 17. júní sl. Foreldrar hennar voru Árni Daní- elsson verkamaður, f. 23. mars 1901, d. 3. júlí 1978 og Gyða Guðmundína Stein- dórsdóttir húsmóðir, f. 26. febrúar 1901, d. 20. mars 1960. Guðný ólst upp hjá foreldrum sínum í Neskaupstað en fluttist til Reykjavíkur 1949. Systkini Guðnýjar eru: Ármann Dan, f. 1927, Ólöf, f. 1930, d. 1997, Steindór, f. 1931, Helgi Jens, f. 1932, Stefanía María, f. 1935, Hjörtur, f. 1936, Alfreð, f. 1938 og Ari Daníel, f. 1940. Hinn 2. desember 1961 giftist Guðný Einari Markússyni, bif- reiðasmið frá Grænuhlíð við Ný- býlaveg í Kópavogi, f. 24. mars 1926. Foreldrar hans voru Mark- ús Sigurðsson, bóndi í Grænu- Börn: Einar Karl, f. 1997, Unnar Karl, f. 1998, Emma Sól, f. 2003 og Lísa Guðný, f. 2005 d. 2007. Á unglingsárunum var Guðný í sumarvinnu á Barðsnesi við Norðfjörð hjá Sigríði Þórð- ardóttur og Sveini Árnasyni. Eftir barnaskólanám hóf hún störf hjá PAN – Pöntunarfélagi alþýðu Neskaupstað og síðar hjá Landssíma Íslands í Neskaup- stað þar sem hún starfaði við af- greiðslu langlínusamtala. Eftir að Guðný fluttist til Reykjavíkur hóf hún störf á símanum og starfaði þar, uns eftirlaunaaldri var náð, að frádregnum stuttum hléum vegna húsmóðurstarfa og barnauppeldis. Guðný hafði mikið yndi af ferðalögum og útivist. Fjöl- skyldan ferðaðist mikið um landið, gjarnan austur á firði til að rækta samband við skyld- menni og vini. Hin síðari ár voru vetrarferðir til heitari landa fastur liður hjá fjölskyld- unni. Útför Guðnýjar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 26. júní, og hefst athöfnin kl. 13. hlíð, f. 27. mars 1895, d. 21. febrúar 1977 og Guðlaug Einarsdóttir hús- móðir, f. 26. nóv- ember 1886, d. 10. október 1971. Guðný og Einar bjuggu all- an sinn búsakp í Kópavogi. Þau fluttu í nýbyggt hús sitt í landi Grænu- hlíðar árið 1957. Síðar byggðu þau sér hús í Bæjartúni og síðustu árin bjuggu þau í notalegu sambýli í Funalind 1. Börn Guðnýjar og Einars eru: 1) Markús, f. 31. ágúst 1955. Sambýliskona: Hólm- fríður Pálsdóttir, f. 1955. Markús var áður giftur Margréti Ingu Bjarnadóttur. Barn: Helga Jón- ína, f. 1987. 2) Árni Dan, f. 2. mars 1961. Eiginkona, Sigrún Dan Róbertsdóttir, f. 1960. Börn: Guðný Kristín, f. 1983, d. 1983, Andrea Dan, f. 1985 og Ágústa Dan, f. 1991. 3) Kristín Ein- arsdóttir, f. 1. október 1970. Eig- inmaður: Jón Karlsson, f. 1969. Það er stundum sagt að mömmur séu öðruvísi en aðrar konur. Og þannig var það með mömmu okkar. Það var hún sem hvatti okkar, kenndi okkur og huggaði þegar við voru lítil og eftir að við fluttum að heiman og stofnuðum okkar eigin fjölskyldur leiðbeindi hún okkur, veitti okkur ráð og miðlaði af reynslu sinni. Mamma var alltaf til staðar, hvenær sem við leituðum til hennar og þurftum á stuðningi hennar að halda. Mamma hafði allt- af tíma fyrir okkur og sína nánustu. Hún sagði aldrei nei. Það er ekki auðvelt að lýsa mömmu í fáum orðum. En þegar við hugsum til baka koma eftirfarandi orð fyrst upp í hugann sem voru lýsandi fyrir hana: Ákveðin, stað- föst, sanngjörn, jákvæð, bjartsýn, trú og æðrulaus. Mamma var límið og kjölfestan í fjölskyldunni. Hún fylgdist mjög vel með hvað allir voru að gera. Um leið og barnabörnin höfðu lokið kapp- leikjum eða sýningum þá hringdi mamma til þeirra og spurðist frétta. Þannig varð heimili pabba og mömmu einskonar upplýsingamið- stöð. Þegar við komum í heimsókn fengum við fréttir af öðrum fjöl- skyldumeðlimum; hvað þeir voru að gera og hvernig þeim heilsaðist. Mamma lifði einföldu lífi. Hún sóttist ekki eftir veraldlegum auð- æfum. Hennar auðæfi voru sam- vistir við pabba, okkur systkinin, tengdabörnin, barnabörnin og aðra ættingja og vini. Mamma hafði skoðanir á flestu og tók virkan þátt í umræðum líðandi stundar. Talaði stundum meira en aðrir og hló innilega og mikið þegar við átti, enda hláturmild og glaðvær að eðlisfari. Þó svo að hún væri ekki sammála heyrðum við hana aldrei tala illa um aðra eða hallmæla fólki. Sagði í mesta lagi að það væri ekk- ert gaman að lífinu ef allir væru eins. Mamma vildi allt fyrir alla gera. Hún var reddari af guðs náð. Hún bauðst til að baka pönnukökur í af- mæli fjarskyldra ættingja, fór á út- sölur í Reykjavík fyrir Stebbu syst- ur á Eskifirði og bað pabba um að líta á bilaða bílinn fyrir Dísu vin- konu. Já, ef mamma gat ekki reddað hlutunum þá fékk hún bara hann pabba til að gera það. Og pabbi sagði aldrei nei við mömmu. Hjónaband pabba og mömmu var afar farsælt. Í eðli sínu voru þau ólík en þau bættu hvort annað full- komnlega upp. Þau studdu hvort annað í því sem þau voru að gera hvort í sínu lagi en nutu þess einnig að gera hluti saman. T.d. ferðuðust þau alla tíð mikið saman. Framan af innanlands þar sem fjölskyldan gisti í tjaldi um allt land og hin síðari ár voru vetrarferðir til sólarlanda fast- ur liður hjá þeim. Eftir að krabbameinið tók sig aft- ur upp hjá mömmu fyrir rúmlega 2 árum hefur hún sýnt mikið æðru- leysi. Hún hefur lítið viljað ræða sjúkdóminn en þess í stað hefur hún lagt sig enn frekar fram um að fylgjast með ættingjum sínum og vinum. Þegar spurt var um líðan hennar eyddi hún oftast umræðunni með því að spyrja spurninga á móti. Við systkinin viljum fyrir hönd fjölskyldunnar færa Sigurði Björns- syni, yfirlækni á Landspítalnum, og öðru starfsfólki krabbameinsdeildar spítalans bestu þakkir fyrir frábæra umönnun. Þið eruð að vinna frábært starf. Hvíl í friði, elsku mamma. Markús, Árni og Kristín. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (höf. Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarholti) Kynni okkar Guðnýjar voru ekki löng en þeim mun ánægjulegri og ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að verða henni sam- ferða, þessi rúm 5 ár sem liðin eru síðan ég kom inn í fjölskyldu henn- ar. Guðný var einstaklega jákvæð, umhyggjusöm og glaðvær, hafði gaman af því að ræða um menn og málefni og hló þá oft dátt, sínum smitandi hlátri. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkurri manneskju heldur lagði hún sig eftir því að finna alltaf það jákvæða í fari sam- ferðamanna sinna. Einar, börnin hennar og barnabörn voru henni af- ar kær og þau studdi hún með ráð- um og dáð, fylgdist með þeim í leik og starfi og var alltaf boðin og búin að aðstoða. Þá gilti einu hvort það voru pönnukökur, nuddolía eða ann- að sem hún kom með færandi hendi eða bara góð ráð sem alltaf komu sér vel. Þessa umhyggjusemi yfir- færði hún líka strax á syni mína og barnabörn, spurði alltaf eftir þeim og sýndi því áhuga sem þau voru að fást við. Í baráttu sinni við sjúkdóm- inn sýndi Guðný mikið æðruleysi og vildi lítið um veikindi sín tala. Hún hafði sjálf upplifað sorgina sem fylgir ástvinamissi, hafði misst tvær litlar ömmutelpur, báðar nöfnurnar sínar, sem reyndist henni afar þung- bært. En nú er hún örugglega á leið til þeirra beggja og minningin um góða konu mun lifa áfram í hugum okkar sem eftir henni horfum og biðjum guð að varða hennar leið. Einari, Markúsi, Kristínu, Árna og fjölskyldum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur og bið guð að styrkja þau í söknuði sínum. Hólmfríður. „Svona er nú lífið, amma mín,“ sagði litla dóttir mín við ömmu sína einn fagran sumardag í Noregi. Umræða um sjúkdóma var tilefni þess að setningin var sögð. Nú er Guðný, fyrrverandi tengdamóðir mín, fallin frá eftir gjöfult og farsælt líf. Guðný var ótrúleg kona, mann- elska og ást á lífinu voru hennar að- aleinkenni. Fjölskylda hennar, eig- inmaður, börn og barnabörn voru heppin að eiga hana að. Fjölskyldan var ætíð í fyrirrúmi hjá henni. Allir dásömuðu matinn sem hún bauð upp á en það sem stóð þó upp úr var manngæska hennar og hlýja sem ekki fór fram hjá neinum sem umgekkst hana. Trygglyndi og væntumþykju kynntist ég svo sann- arlega á ögurstundum í lífi mínu. Og ætíð þegar einhver þurfti á henni að halda var hún til staðar. Þegar litla dóttir mín fæddist kom hún til mín hvert einasta kvöld þegar sú stutta þjáðist af innantökum og við skipt- umst á að ganga með hana um gólf . Þetta gerði hún, þó svo að á þessum árum hafi hún unnið á Símanum og var því oft að koma heim síðla kvölds. Seinna meir var ég hissa þegar Guðný sat flötum beinum á gólfi og lék við barnabörnin, því átti ég ekki að venjast frá mínum heimaslóðum. Það er auðvitað sérstakt fyrir dóttur mína að vera alin upp í næsta húsi við ömmu og afa, þar sem fylgst var með henni úti á leikvelli og sú stutta gat farið í heimsókn þegar hún vildi. Lífið var þó ekki alltaf dans á rós- um hjá Guðnýju, hún greindist með sjúkdóm sem hún barðist hetjulega við sem síðan leiddi hana til dauða. Þegar ég kveð Guðnýju vil ég þakka henni samfylgdina og fyrir að sýna fram á hve lífið getur verið dásamlegt. Bjartsýni hennar, styrk- ur og það birtir alltaf upp þó skýin séu dimm á stundum. Bið góðan Guð að styrkja fjöl- skylduna og styðja á þessum erfiðu tímum. Kær kveðja, Margét Inga Bjarnadóttir. Guðný Kristín Árnadóttir  Fleiri minningargreinar um Guðnýju Kristínu Árnadótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.                          ✝ Látin er móðir mín, SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR frá Hvammi, Holtum. Jarðarförin fer fram frá Marteinstungukirkju föstudaginn 26. júní kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurbjörg Elimarsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík, sem lést föstudaginn 19. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 26. júní kl. 15.00. Þorsteinn A. Jónsson, Martha Á. Hjálmarsdóttir, Helgi Jónsson, Jónína Sturludóttir, Þórður Jónsson, Jytte Fogtmann, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Frænka okkar, ÁSA GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR læknir, Fannafold 63, Reykjavík, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Rannveig Anna Hallgrímsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, ÞÓRHALLUR STEINGRÍMSSON kaupmaður, Sogavegi 158, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 23. júní. Þorgerður K. Halldórsdóttir, Þóra Kristín Þórhallsdóttir, Árni Þór Steinarsson, Rakel Ósk Þórhallsdóttir, Elmar Sigurðsson, Berglind Björk Þórhallsdóttir, Sigurður Árnason, Helga María Þórhallsdóttir, Ívar Þór Daníelsson, Kristín Kristjánsdóttir, barnabörn og systkini. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR, Reynivöllum 8, Akureyri, lést af slysförum þriðjudaginn 9. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við viljum þakka öllum þeim sem komu að björg- unarstarfi á Kljáströnd í Höfðahverfi fyrir ómetanlega aðstoð og stuðning. Baldvin Ólafsson, Ólafur Haukur Baldvins, Sigrún Jónsdóttir, Elsa Baldvinsdóttir, Jón Pálmason, Hilmar Baldvinsson, Emilía J. Einarsdóttir, ömmu- og langömmubörn. Minningar á mbl.is Jón Stefánsson ✝ Jón Stefánssonfæddist á Hjalta- stöðum í Blönduhlíð í Skagafirði 28. apríl 1923. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 15. júní 2009 og fór útför hans fram frá Sauðárkrókskirkju 20. júní. Meira: mbl/minningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.