Morgunblaðið - 25.06.2009, Síða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
1 7
6 5
8 4 6 9
8
6 8 7 3
2 5 1
6
1 4 2 8
5 4 6
2 1
9 6 4 3
1 9
1 3 8
6 7 2
2 3 8 5 1
9 4 8
5
7
6
9 5 2
1 3
9 8 2
1 7 8 3
1 6 2 4
5 2 3 6 1 9
3
7 3 5 9 8 4 1 6 2
4 6 1 7 2 5 3 8 9
8 9 2 3 6 1 5 4 7
2 8 3 6 5 9 4 7 1
6 7 4 1 3 2 8 9 5
5 1 9 4 7 8 6 2 3
1 2 6 8 9 3 7 5 4
9 4 7 5 1 6 2 3 8
3 5 8 2 4 7 9 1 6
4 9 5 8 2 3 1 6 7
1 6 8 9 4 7 2 3 5
2 3 7 6 5 1 8 9 4
7 5 4 2 3 9 6 8 1
8 1 9 5 7 6 3 4 2
3 2 6 1 8 4 7 5 9
6 4 2 7 9 8 5 1 3
9 7 1 3 6 5 4 2 8
5 8 3 4 1 2 9 7 6
6 3 4 5 9 1 2 7 8
8 5 7 2 4 6 3 9 1
9 1 2 3 8 7 6 4 5
4 8 5 6 7 2 1 3 9
1 7 9 4 5 3 8 2 6
2 6 3 9 1 8 7 5 4
5 2 8 1 3 9 4 6 7
3 4 1 7 6 5 9 8 2
7 9 6 8 2 4 5 1 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 25. júní,
176. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hver, sem gjörir vilja
Guðs, sá er bróðir minn, systir og móð-
ir. (Mk. 3, 35.)
Víkverji hefur löngum látið ýmsaaðila fara í taugarnar á sér. Má
þar nefna byggingaraðila, dreifing-
araðila, þjónustuaðila og rétta aðila.
Mest mæða þó ýmsir aðilar og
ónefndir hug Víkverja. Samningsað-
ila og fleiri réttmæta aðila lætur
hann þó ekki fara fyrir brjóst sér.
Hið góða orð „aðili“ er sjaldnast
notað í réttri merkingu þessa dag-
ana. Að vera aðili felst í að eiga aðild
að einhverju, til dæmis að samningi
eða dómsmáli eða öðru slíku. Það er
því undarleg notkun á orðinu að
kalla þann sem veitir þjónustu og
þjónar, er jafnvel aðili að samningi
um þjónustu, aðila að þjónustu,
þjónustuaðila. Réttara væri að tala
um þjónustuveitanda eða í sumum
tilfellum einfaldlega þjón. Dreifing-
araðila má kalla dreifanda, bygging-
araðila byggjanda og þar fram eftir
götunum.
x x x
Þriðji aðili er sennilega uppá-haldsaðili Víkverja. „Þriðji að-
ili“ er gjarna notað yfir margfrægan
þriðja mann sem stendur fyrir utan
samning eða annars konar samband
tveggja aðila eða fleiri. Þegar þriðji
maður verður aðili að sambandi
tveggja aðila verður hann þriðji aðili
en hættir að vera eiginlegur þriðji
maður sökum aðildar sinnar. Að tala
um þriðja aðila í merkingunni þriðji
maður er því mótsögn í sjálfu sér.
Þessi notkun Víkverja liggur við
að segja misnotkun, orðsins „að-
ili“er í besta falli stirðbusaleg og ber
mælanda eða ritanda (ekki ritunar-
aðila) slæmt vitni. Hún kemur upp
um andvaraleysi gagnvart tungu-
málinu og jafnvel lítið vald á því.
x x x
Og úr því að fæti er drepið niðurvið málnotkun þá stenst Vík-
verji ekki mátið að impra á óþoli
sínu gagnvart einstaklingum. Hon-
um líkar miklu betur við fólk, mann-
eskjur, menn, karla, konur og jafn-
vel börn. Það er varla til of mikils
mælst að skófla sé kölluð skófla, eða
hvað?
Víkverji er í það minnsta ekki ein-
staklingur. Hann er fólk.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hlífðarflík, 4
fallegur, 7 tölur, 8 dáin,
9 guð, 11 sjá eftir, 13
kvenfugl, 14 húð, 15
sjávardýr, 17 heiti, 20
viðvarandi, 22 hrósar, 23
heldur, 24 gabba, 25
borða upp.
Lóðrétt | 1 dimmviðri, 2
hagnaður, 3 landabréf, 4
líf, 5 hörkufrosts, 6
rugla, 10 aðgangs-
frekur, 12 nóa, 13 elska,
15 ódaunninn, 16 lúrir,
18 fiskar, 19 híma, 20
baun, 21 viðkvæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kunngerir, 8 lagar, 9 gælur, 10 rýr, 11 semji,
13 akrar, 15 þjark, 18 stóll, 21 vit, 22 undra, 23 aðals, 24
ribbaldar.
Lóðrétt: 2 uggum, 3 nærri, 4 eigra, 5 illur, 6 glas, 7 frír,
12 jór, 14 kot, 15 þaut, 16 aldni, 17 kvabb, 18 stall, 19 ós-
ana, 20 lest.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5.
Re2 Bf5 6. a3 e6 7. b4 cxb4 8. cxb4
Rge7 9. Rbc3 Rc8 10. Be3 Rb6 11. Rg3
Bg6 12. h4 h6 13. h5 Bh7 14. Be2 Hc8
15. Db3 Be7 16. O-O O-O 17. f4 Rc4 18.
Bxc4 dxc4 19. Dd1 Bd3 20. Rge2 a6 21.
Hf2 b5 22. g4 Hc7 23. Df1 Hd7 24. Dg2
Staðan kom upp í AM-flokki fyrstu
laugardagsmótaraðarinnar sem lauk
fyrir skömmu í Búdapest í Ungverja-
landi. Guðmundur Kjartansson (2388)
hafði svart gegn heimamanninum
Sandor Farago (2255). 24… Rxd4! 25.
Rxd4 Hxd4 26. g5 svartur hefði einnig
staðið til vinnings eftir 26. Bxd4 Dxd4
27. Hc1 Bh4. 26… hxg5 27. fxg5 Hh4
28. h6 Bf5 29. Hd1 Hg4 30. Dxg4 Bxg4
31. Hxd8 Hxd8 32. Re4 Bf5 33. Rc5 c3
34. Hf1 gxh6 35. gxh6 c2 36. Hc1 a5
37. Kf1 axb4 38. axb4 Hd1+ 39. Ke2
Bh4! og svartur innbyrti vinninginn
nokkru síðar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Engin stunga.
Norður
♠Á10543
♥76
♦G
♣KD943
Vestur Austur
♠92 ♠--
♥D84 ♥ÁG10953
♦964 ♦D87532
♣ÁG1072 ♣5
Suður
♠KDG876
♥K2
♦ÁK10
♣86
Suður spilar 6♠.
Næsta heimsmeistaramót verður í
Sao Paulo í haust og hafa Bandaríkja-
menn nýlega valið lið sín tvö í opna
flokknum. Í A-sveitinni spila: Robinson,
Boyd, Woolsey, Stewart, Wildavsky og
Doub. Og B-sveitin: Meckstroth, Rod-
well, Hamman, Zia, Nickell og Freem-
an. „Val“ liðanna fór fram í langri
keppni, þar sem 27 sveitir hófu leikinn
og spiluðu látlaust í 12 daga.
Í spilinu að ofan vakti Hamman í
austur á 2♥ til að sýna hjarta og annan
lit. Hann lét svo öllum illum látum í
framhaldinu, fórnaði upp á eigin spýtur
í 6♥ og ýtti þannig mótherjunum í 6♠.
Sem virðist góður árangur, því vörnin á
tvo ása. En Zia hugsar sjálfstætt og
hann reiknaði réttilega út að makker
væri stuttur í laufi – spilaði út ♣Á og
meira laufi í því skyni að gefa Hamman
stungu …
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert í essinu þínu núna og geng-
ur auðveldlega í augun á fólki án þess að
leggja nokkuð á þig. Allt hefur sinn tíma.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú átt þína stuðningsmenn og veist
að þú mátt ekki bregðast þeim í neinu,
hvað sem á dynur. Ef þú byrjar strax
getur þú komið mörgu í verk.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú situr uppi með of marga
lausa enda og þarft því að setjast niður
og gaumgæfa mál þín. Nýttu það til að
taka upp þráðinn við gamla vini og fjöl-
skyldumeðlimi sem þú hefur ekki hitt
lengi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú munt líklega taka þátt í sam-
ræðum um fjármál og sameiginlegar
eignir. Notaðu tækifærið og talaðu um
sameiginlegar eignir og leiðir til úrbóta.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Notaðu daginn til þess að leiðrétta
misskilning. Hefur þú velt því fyrir sér í
seinni tíð hvers vegna þú ert ekki orðinn
milljarðamæringur?
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu skilning á mistökum ann-
arra í vinnunni. Aðdáendaklúbburinn
samanstendur ekki bara af fólki í innsta
hring heldur líka fólki sem þú sérð næst-
um daglega en þekkir lítið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vinur þinn ofleikur og ýkir en þér
finnst það bara sjarmerandi. Áhugamál
vogarinnar koma einhverra hluta vegna
öllu mannkyninu til góða.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Alvarlegar samræður við yf-
irmenn eða valdhafa af einhverju tagi
beinast að framtíðarhorfum þínum. And-
lega sinnuð manneskja opnar augu þín.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Daður á netinu kemur við
sögu. Ef þér finnst þú vera að gera mis-
tök, getur fólkið í kringum þig veitt þér
stuðning.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gleði barna og hræringar á
rómantíska sviðinu valda þér spennu og
gleði í dag. Betur sjá augu en auga, þótt
þú sért sjálfráður um hvað þú gerir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þegar orkan heima fyrir er öll í
rugli, reynir makinn að koma skikki á
hlutina. Vendu þig á að tjá hug þinn
skýrt og skorinort svo aðrir viti hvar þeir
hafa þig.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Allt virðist ætla að ganga upp hjá
þér svo það er ærin ástæða til að fagna
með góðum vinum.
25. júní 1985
Reynir Pétur Ingvarsson, 36
ára vistmaður á Sólheimum í
Grímsnesi, lauk göngu sinni
hringinn í kringum landið, alls
1.411 km. Gangan tók einn
mánuð.
25. júní 1990
Elísabet Englandsdrottning
og Filippus maður hennar
komu í þriggja daga opinbera
heimsókn. Þetta var fyrsta
heimsókn bresks þjóðhöfð-
ingja til Íslands.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Hlutavelta
Stefán Páll Jónsson og Jóhann
Bjarki Salvarsson gengu í hús og
seldu ýmiss konar dót. Þeir söfnuðu
2.296 kr. sem þeir styrktu Rauða
krossinn með.
Brynja María Bragadóttir og
Snædís Ylva Valsdóttir héldu tom-
bólu til styrktar Rauða krossinum
og söfnuðu 3.016 krónum.
Hlutavelta
MÁLARAMEISTARINN Davíð Þór Bjarnason
hyggst halda tvær veislur til að fagna fertugs-
afmælinu sínu sem er í dag. Aðra veisluna heldur
hann á laugardag fyrir fjölskylduna og aðra fyrir
félagana. „Það er svo mikið að gera hjá mér núna
að erfitt er að koma fyrir einni stórveislu,“ segir
Davíð sem áætlar að félögunum verði smalað sam-
an eftir þrjár til fjórar vikur. Davíð segist ekki
endilega mikill veislumaður en hefur þó haft það
fyrir sið að slá upp veislum á stórafmælum, s.s á
tvítugs- og þrítugsafmæli sínu.
Davíð hefur nóg fyrir stafni utan hefðbundins
vinnutíma. Hann situr í stjórn barna- og unglingaráðs Hauka í knatt-
spyrnu, á fimmtán hross og einnig kindur. Hann játar að í honum
blundar bóndi en tekur fram að óvíst sé hvort þeim draumi verði fylgt
eftir. „En það er freistandi, ekki síst á þessum tíma.“
Haukahjarta Davíðs er stórt enda iðkar sonur hans íþróttir með fé-
laginu auk þess sem hann sjálfur spriklaði með því á árum áður. Hann
segist ánægður með árangur Hauka það sem af er tímabili en fremur
hjá 4. flokki pilta síðasta sumar en þá lönduðu þeir fyrsta Íslands-
meistaratitlinum í fótbolta. andri@mbl.is
Davíð Þór Bjarnason málarameistari fertugur
Heldur upp á stórafmælin
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is