Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 30
30 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÆI...
ÉG VONA AÐ ÞETTA SÉ EKKI EITT
AF ÞEIM AUGNABLIKUM SEM ÉG Á
EFTIR AÐ MUNA ALLA ÆVI
ÉG
SKIL...
SÉRÐU
SNJÓ-
SKRÍMSLIN
ÞARNA ÚTI?
JÁ, ÞAU
ERU ENNÞÁ
AÐ FJÖLGA
SÉR
HVAÐ SÁSTU
MÖRG?
UM
15
GÓÐA NÓTT
MAMMA, MÁ ÉG
TAKA ÖXI MEÐ
MÉR Í SKÓLANN
Á MORGUN?
HVERNIG KEMST ÉG Í
SKÓLANN Á MORGUN? ÉG
KEMST EKKI EINU SINNI ÚT
Á STRÆTÓSTOPPISTÖÐ! ÉG
GET EKKI HLAUPIÐ UNDAN
15 SNJÓSKRÍMSLUM
SÁSTU HVAÐ STÓÐ
Á SKILTINU ÁÐUR EN
STEINNINN FÉLL Á ÞAÐ?
JÁ
HVAÐ
STÓÐ Á
ÞVÍ?
„PASSIÐ YKKUR
Á STEINUNUM“
GRÍMUR,
ÞÚ BORÐAÐIR
SVO MIKIÐ AF
„CAP’N CRUNCH“
AÐ ÞÚ BREYTTIST
Í HANN
HVERNIG
BREYTUM VIÐ
MÉR AFTUR
TIL BAKA?
OG AF HVERJU SEGIR ÞÚ EKKI
„HERRA“ ÞEGAR ÞÚ TALAR VIÐ MIG?
HANN HELDUR AÐ
HANN SÉ ORÐINN
MERKILEGUR
ÞVÍ HANN FÉKK
ASNALEGA HÚFU
M.J.? ÞETTA HLJÓMAR
EKKI EINS OG
PETER...
HVER ERT ÞÚ OG
HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA
Í BÚNINGSHERBERGINU
MÍNU?
ÉG HEITI
SIMON
KRANDIS...
OG ÉG ER KOMINN
TIL AÐ SÆKJA ÞIG
EN ÉG VAR
EKKI AÐ
HENDA RUSLI!
VIÐ HÖFUM VERIÐ
FASTIR HÉRNA
VÉLARVANA Í MARGA
KLUKKUTÍMA! ÉG HENTI
ÚT FLÖSKUSKEYTI Í
VON UM AÐ FÁ HJÁLP
GOTT AÐ VIÐ
SKILDUM FINNA
YKKUR Í TÆKA TÍÐ
MÉR HEYRIST
20.000 kr. SEKT VERA
ANSI VEL SLOPPIÐ
ÞAÐ ER STRANG-
LEGA BANNAÐ
AÐ HENDA RUSLI
FYRIR BORÐ!
ÞÓTT rigningin lemdi á landið á dögunum létu þessir kátu ferðamenn það
hafa lítil áhrif á sig, stukku einfaldlega inn í búð og keyptu tvær afar
skrautlegar regnhlífar, héldu svo áfram skoðunarferð um miðbæinn.
Morgunblaðið/Eggert
Rigning í júní
Neyðarlögin
Í OKTÓBER á síðasta
ári voru sett neyðarlög
á Íslandi. Þetta var gert
af ríkisstjórn Geirs H.
Haarde til að yfirtaka
alla bankastarfsemi á
Íslandi. Ástæða þess
var sú að einkabank-
arnir höfðu gerst alltof
stórir og yfirmenn
þeirra sýnt ábyrgð-
arleysi, glæframennsku
og fádæma heimsku við
stjórn þeirra. Allir
þessir menn ganga
ennþá lausir og fara
allra sinna ferða eins og
þeim sýnist, hvort sem er innanlands
eða utan. Það vekur furðu allra hugs-
andi manna, hversvegna þeir, menn
og konur, sem voru ráðandi í einka-
bönkunum skuli ekki hafa, í krafti
neyðarlaganna, verið settir í farbann
og allar eigur þeirra frystar meðan á
rannsókn þeirra mála stendur yfir.
Ef þessi neyðarlög eiga aðeins að
ná yfir afleiðingar skelfingarinnar
(bankahrunið sjálft) en ekki orsakir
þess (þ.e. gjörðir bankamannanna
sem stjórnuðu þeim), þá eru það ein-
kennileg lög. Nú eru þessir sömu að-
ilar að verða uppvísir að stórfelldu
fjármálasvindli og því sem ég vil
kalla fjármálaglæpi. Með gjörðum
sínum eru þeir búnir að koma á neyð-
arástandi hjá fjölda heimila og sak-
lausra einstaklinga og það sem verst
er, þeir hafa komið þjóðinni á skulda-
klafa sem mun taka hana mörg ár að
losna af. Og þó ganga þeir lausir eins
og þeir hafi ekkert gert.
Ég er ekki lögfróður maður en ég
hef ennþá óbrenglaða dómgreind.
Lögfræðiflækjur um þessi mál á ekki
að hlusta á, því það er óhrekjanleg
staðreynd, að þessir
bankamenn voru or-
sakavaldar þess að
neyðarlög voru sett og
því eiga þau lög að gilda
um alla yfirmenn
einkabankanna og aðra
þá embættismenn og
stjórnmálamenn sem
voru í valdastöðum á
síðustu árum.
Það er skýlaus krafa
þjóðarinnar í nafni sið-
ferðis, heilbrigðrar
dómgreindar og rétt-
lætis að allir æðstu
stjórnendur einka-
bankanna verði sviptir
friðhelgi, eignir þeirra
frystar og þeir settir í farbann, þar til
endanleg rannsókn á gjörðum þeirra
hefur farið fram.
Hér er um meira en rökstuddan
grun um misferli hjá þessum aðilum
að ræða, því hér tala staðreyndir.
Það er til háðungar að yfirmenn lög-
gæslu, dómsmálaráðherra og ríkis-
lögreglustjóri hafi ekki komið þess-
um aðilum í gæsluvarðhald, því hér
er ekki ótítt að löggæsluaðilar krefj-
ist gæsluvarðhalds yfir fólki grunuðu
um lögbrot.
Ef engin almenn hegningarlög ná
yfir þetta fólk, sem hefur valdið þjóð-
inni þessum skaða, þá ætti að vera
auðvelt fyrir ríkislögreglustjóra að
nota neyðarlögin, sem ég veit ekki
betur en að séu enn í fullu gildi, yfir
þessa aðila til að koma þeim undir lás
og slá.
Hafsteinn Sigurbjörnsson,
ellilífeyrisþegi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30,
vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50.
Bólstaðarhlíð 43 | Ungir herrar koma í
heimsókn kl. 14 og spila á píanó og lesa
upp ljóð. Böðun, hárgreiðsla, fótaað-
gerð, kaffi/dagblöð.
Dalbraut 18-20 | Bókabíllinn kl. 11.15,
vídeóstund í setustofu kl. 13.30.
Eftirlaunadeild símamanna | Vegna
forfalla geta nokkrir bæst við í sum-
arferðina 21.-26. júlí til Austfjarða og
Norðausturlands: Þórbergssetur á Hala,
Papey, Kárahnjúkar, Raufarhöfn, Mel-
rakkaslétta, Tjörnes, Hágöngulón á
Sprengisandi o.fl. Hafið samband við
Ragnhildi í s. 551-1137 eða 898-4437 eða
Valgarð, s. 897-7550.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13. Ferðalag 3.-6. júlí: Flateyjardalur -
Fjörður - Sprengisandur. V/ forfalla er
laust fyrir eina konu. Uppl. í s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn-
aður, matur og kaffiveitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguhópur kl. 11, handavinnuhorn kl.
13, kaffi kl. 14.30-16.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30. Mánud. 29. júní er
ferðalag um Árnesþing, m.a. er ekið um
Þingvöll, Grafning, Laugarvatn, Bisk-
upstungur o.fl. Skráning hafin á staðn-
um og í s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Matur kl. 12, félagsvist
kl. 14.
Hraunsel | Glerskurður kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Sala á veitingum kl.
13.30.
Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9-16.
Félagsvist, matur, kaffi, morgunsamvera,
bankaþjónusta, Stefánsganga, púttvöll-
urinn opinn o.fl. Boðið upp á námskeið
fyrir atvinnulausa í skartgripagerð 29. til
3. júlí. Sími 411-2790. Fótaaðgerðir, s.
897-9801, s. hárgreiðslustofa, s. 568-
3139.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og æfingar kl. 9.45, hand-
verks- og bókastofa opin kl. 13, boccia
kl. 13.30. Hárgreiðslustofa, s. 552-2488,
fótaaðgerðastofa, s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Handavinna kl. 9-16 í
dag. Bókabíll kl. 10. Spjall, blöðin, kaffi
og meðlæti á kreppuverði. Heitur matur í
hádeginu. Félagsvist á miðvikudögum kl.
14. Ókeypis handmennt í júní og hand-
og myndmennt í ágúst. Sími 411-2760.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
15.30, matur kl. 11.45, leikfimi með Ja-
nick kl. 13 (júní-ágúst), kaffi kl. 14.30.
Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund kl. 10,
salurinn opinn frá kl. 11. Kaffi kl. 15.