Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 32

Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 32
32 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 Algjörlega stórkostleg Lay Low á Glastonbury Fólk LISTAHÁTÍÐ ungs fólks á Austurlandi hefur verið haldin í núverandi mynd frá árinu 2000 og verður engin undantekning frá því í ár. Hátíðin fer sem fyrr fram á Seyðisfirði dag- ana 13. til 19. júlí næstkomandi en athygli skal vakin á því að skráning er hafin í hinar ýmsu smiðjur sem verða í boði á hátíðinni. Og þar er af nógu að taka. Þeir Davíð Þór Jónsson og Mugison verða með kvótalausa hljóðútgerð, Hugleikur Dagsson leiðbeinir við teiknimyndasögugerð og þau Bergur Þór Ing- ólfsson og Halldóra Geirharðsdóttir standa fyr- ir leiklistarsmiðju auk þess sem boðið verður upp á afró-dansiðju. Þá verða þeir Helgi Svav- ar og Valdi Kolli, oft kenndir við hljómsveit- irnar Flís og Hjálma, með tónlistarsmiðju þar sem bassi og ásláttarhljóðfæri verða í brenni- depli. Einnig verður boðið upp á gjörninga- námskeið með hinum danska Henrik Vibskov. Takmarkaður fjöldi kemst að í smiðjurnar svo áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á heimasíðu hátíðarinnar, www.lunga.is. Margar hljómsveitir troða svo upp á hátíðinni og það eru engir aukvisar. Meðal sveita og lista- manna má nefna Gus Gus, Ólöfu Arnalds, Mug- ison, Jagúar, B. Sig og Skakkamanage. Haldnir verða tvennir kvöldtónleikar á hátíð- inni auk þess sem boðið verður upp á grill, ýms- ar sýningar og fyrirlestra. LungA á næsta leiti Fjölhæfir Það er ýmislegt bardúsað á LungA. www.lunga.is  Tækifæri til að sjá leikkonuna Helen Mirren leika á sviði gefst víst ekki oft hér á landi … nema í dag. National Theatre í Bretlandi ætl- ar í dag að sjónvarpa beint frá sýn- ingu á leikritinu Phédré sem sýnt verður í leikhúsinu í kvöld. Um er að ræða fyrstu sýninguna af fjórum sem leikhúsið hyggst senda beint út um gervihnött í 220 kvikmyndahús um allan heim. Söguþráður Phédre er afar dramatískur, svo ekki sé meira sagt. Heltekin af ástríðu á stjúpsyni sínum og trúandi því að Theseus, eiginmaður hennar, sé látinn, lætur Phédre sínar myrkustu langanir verða að veruleika með hræðileg- um afleiðingum. Þegar Theseus snýr til baka heill á húfi óttast Phédre afleiðingar gjörða sinna og sakar stjúpson sinn um nauðgun og úr verður hinn mesti harmleikur. Leikstjóri verksins er Nicholas Hytner. Með aðalhlutverkið fer sem fyrr segir Helen Mirren en auk hennar leikur Dominic Cooper (Mamma Mia!) í verkinu. Sýningin fer fram í Kringlubíói í dag klukkan 18. Miðasala fer meðal annars fram á midi.is. Langar þig að sjá Helen Mirren á sviði?  Fyrsta sumarkvöld Weirdcore fer fram á Jacobsen í kvöld. Fram koma dúettinn Yoda Re- mote, einyrkinn Tonik og hljóm- sveitin Sykur auk þess sem DJ 3D þeytir skífum. Gamanið hefst klukkan 21 og gleður eflaust marga að vita að að- gangseyrir er enginn. Fyrsta sumarkvöld Weirdcore á Jacobsen Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „JÁ SÆL og blessuð, nei ég átti ekki von á neinu símtali frá Íslandi,“ byrj- ar leikstjórinn James Toback samtal við blaðamann á dögunum. „Dagskráin mín er alltaf eitthvað að ruglast. En ég er bara í gönguferð núna og er alveg til í að spjalla,“ bæt- ir hann við og lýgur engu um það. Málglaðari viðmælandi er vandfund- inn. Tilefni samtalsins er frumsýning heimildarmyndarinnar Tyson hér á landi, sem fram fór í gær, en myndin er hugarfóstur og framleiðsla To- backs og snýst um góðvin hans Mike Tyson. „Við Tyson hittumst fyrst á töku- stað myndarinnar minnar The Pick- up Artist árið 1985. Við tókum tal saman og eyddum heilum degi á göngu um Central Park og ræddum um hitt og þetta. Ég sagði honum meðal annars frá því brjálæði sem maður upplifir við það að taka LSD. Hann sagðist ekki kannast við það en mörgum árum síðar var Tyson sem kunnugt er dæmdur í fangelsi og sat inni í nokkurn tíma. Hann hafði sam- band við mig þegar hann kom út og sagðist í fangelsinu loksins hafa skilið hvað ég meinti með þessu innra brjálæði sem ekki er hægt að lýsa nema hafa reynslu af því sjálfur. Síð- an höfum við verið mjög góðir vinir,“ segir Toback um fyrstu kynni sín af Tyson. „Vinskapur okkar er þó svo- lítið skrýtinn, ég held að við séum nánari hvor öðrum en flestum öðrum en tölum þó ekkert reglulega sam- an.“ Tyson fór í kjölfarið með lítil hlut- verk í tveimur mynda Tobacks en leikstjórann langaði alltaf að gera heila mynd bara um Tyson sjálfan. „,Ég sá í honum virkilega áhuga- verðan efnivið fyrir heimildarmynd. Hann var frá upphafi til í tuskið en það liðu um 10 ár frá því ég viðraði hugmyndina við hann fyrst og þar til hún varð að veruleika,“ segir leik- stjórinn. Í meðferð Myndin er í fullri lengd og sýnir Tyson nær allan tímann í mynd segja frá því sem á daga hans hefur drifið frá því hann fæddist. Og það er ekki lítið. Auk bardaga í hringnum hefur hann háð marga hildi í einkalífinu. Hann hefur barist við eiturlyfjafíkn, setið í fangelsi fyrir nauðgun, beitt eiginkonu sína fyrrverandi ofbeldi og var lagður í einelti í æsku vegna smá- mælis. Og þá eru ótalin margvísleg mál sem varða feril hans sem hnefa- leikakappa, eins og þegar hann beit stykki úr eyra Evanders Holyfields í frægum bardaga þeirra á milli árið 1997. Tyson var í meðferð þegar viðtölin voru tekin. Hafði ástand hans í þeim aðstæðum ekki áhrif á útkomu mynd- arinnar? „Jú, það er engin spurning,“ sam- sinnir leikstjórinn. „Tyson fór sjálfur í gegnum mikla sjálfskoðun á þessu tímabili og hann sagði frá hlutum sem ég hafði aldrei heyrt hann minn- ast á áður, til dæmis um erfiða æsku sína.“ Hvernig fannst Tyson sjálfum myndin? „Hann sat með krosslagðar hend- ur og fætur og horfði á myndina frá upphafi til enda. Þegar henni var lok- ið þagði hann í nokkrar mínútur og sagði svo: „Þetta er eins og grískur harmleikur, með mig í aðal- hlutverki.““ Ekki fleiri heimildarmyndir Toback segir myndina hafa þróast talsvert frá því hvernig hann sá hana fyrir sér fyrst. „Satt að segja varð myndin einlæg- ari, ég vissi ekki í upphafi hversu miklu Tyson var tilbúinn að deila með mér en hann endaði á að segja mér allt,“ segir hann. „Upphaflega ætlaði ég að hafa myndina eingöngu frásögn Tysons en ég sá fljótlega að ég yrði að styrkja frásögnina og skreyta myndina með gömlum viðtölum og fréttamyndum.“ Tyson var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes í fyrra „Við urðum ótrúlega hissa á þeim viðtökum sem myndin hlaut. Þegar myndin var frumsýnd á Cannes beið okkar margra mínútna lófatak áhorf- enda sem stóðu upp og hylltu Tyson þegar myndin var búin. Hann var mjög hrærður yfir því,“ segir To- back. „Svo biðu okkar sömu viðtökur þegar myndin var sýnd á Sundance- hátíðinni hér í Bandaríkjunum og Ty- son þótti ekki síður vænt um það, sér- staklega vegna þess að það hefur ver- ið fjallað um hann á mjög misjafnan hátt í fjölmiðlum hér vestra og hann vissi satt að segja ekki hvernig við- tökurnar yrðu.“ Þrátt fyrir velgengnina segir To- back það ekki á stefnuskránni að gera fleiri heimildarmyndir. „Mig langar svo bara að halda áfram að gera mínar leiknu myndir og ég á mér engan sérstakan drauma-viðmælanda sem gaman væri að gera mynd um. Þetta var bara eitt aðkallandi verkefni, mér fannst ég þurfa að gera mynd um þennan mann,“ segir hann að lokum. Grískur harmleikur  James Toback er leikstjóri nýrrar heimildarmyndar um Mike Tyson  „Mér fannst ég þurfa að gera mynd um þennan mann.“  Toback og Tyson eru perluvinir Tyson og Toback „Myndin varð einlægari en ég bjóst við. Tyson endaði á að segja mér allt.“ Töff James Toback segist ekki ætla að gera fleiri heimildarmyndir, myndin um Tyson hafi hinsvegar verið aðkallandi. »Ég sagði honummeðal annars frá því brjálæði sem maður upplifir við það að taka LSD. Myndin er sýnd í Háskólabíói á vegum Græna ljóssins frá 24. júní til 7. júlí, aðeins þessa 14 daga.  Í nýjasta tölublaði tónlistar- tímaritsins NME fer Emily Eavis fögrum orðum um Lay Low og rök- styður hvers vegna hún fékk hana til að spila á Glastonbury hátíðinni sem fram fer á samnefndum stað í Eng- landi nú um helgina. Eavis þessi er dóttir Michael Eavis stofnanda Glastonbury-hátíðar- innar, og mun hún að sögn taka við stjórnartaumum af föður sínum eftir tvö ár. Í greininni mælir Eavis sér- staklega með nokkrum þeirra tón- listarmanna sem stíga á stokk á há- tíðinni. Um Lay Low segir hún meðal ann- ars: „Hún er íslensk og er með alveg ótrúlega fallega rödd. Lögin hennar eru í anda kántrý/þjóðlagatónlistar en þó talsvert poppuð. Nýja platan hennar er algjörlega stórkosleg.“ Þá segist Eavis hafa séð Lay Low hita upp fyrir Emilíönu Torrini á tónleikum í París og endað á að fá þær báðar til að spila á Glastonbury í ár. Þær Emilíana og Lay Low spila báðar á hátíðinni á föstudaginn kem- ur. Tónleikum Lay Low verður út- varpað beint á BBC6 útvarpsstöð- inni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.