Morgunblaðið - 25.06.2009, Page 40
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ekki meira en 45% skattar
Stefnt er að undirritun stöðug-
leikasáttmála kl. 13 í dag. Um hríð
leit út fyrir að opinberir starfsmenn
heltust úr lestinni. Jóhanna Sigurð-
ardóttir lagði fram sáttatilboð í gær
sem sáttmálinn mun byggjast á. Sátt
virðist komin á milli allra aðila um
hvernig tekið verður á ríkisfjár-
málum út árið 2011. »Forsíða, 6
Segja upp flugmönnum
Icelandair hefur boðað uppsagnir
32 flugmanna nú um mánaðamótin.
„Enn eitt reiðarslagið,“ segir for-
maður Félags íslenskra atvinnuflug-
manna. Þegar sumri lýkur munu vel
yfir hundrað flugmenn hafa kvatt
Icelandair frá síðasta sumri. »4
Vistgötur í miðborginni
Aðalstræti, Vesturgötu og Hafn-
arstræti, þremur elstu götum
Reykjavíkur, verður að hluta breytt
í vistgötur. Einnig eru uppi hug-
myndir um að loka hluta Hafnar-
strætis, a.m.k. á góðviðrisdögum.
Lögreglan þarf að staðfesta breyt-
ingarnar. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Taugaveiklun lög-
manna
Forystugrein: Framboð og eftir-
spurn í framhaldsskólum
Pistill: Mig langar að gera út á ...
Ljósvaki: Kunta í kröppum dansi
Skólakerfi á villigötum
Sjálfbær þróun og hönnun
Opið bréf til Ögmundar
Óréttlæti við val í framhaldsskóla
Þýskir eignast Kaupþing
Búið að yfirheyra bæði Hreiðar Má
og Ólaf
Lánshæfi Íslands hangir á bláþræði
VIÐSKIPTI»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-.*
+**-.+
***-//
+.-011
*1-23.
*3-+++
**1-0/
*-//24
*1,-,/
*,1-.+
5 675 +.# 89: +001
*+,-,*
+**-1/
***-33
+.-*,0
*1-1++
*3-+,0
**1-/3
*-/.+.
*12-/+
*,1-1+
+/+-/33+
&;<
*+2-0*
+*+-..
***-11
+.-+.*
*1-120
*3-/*2
**1-31
*-/.3/
*12-1*
*20-.+
Heitast 16 °C | Kaldast 7 °C
Víða bjartviðri, A og
NA 5-13 m/s, hvassast
SA-lands, fer að rigna
þar og einnig víða ann-
arsstaðar upp úr hádegi. » 10
Það er gríðarlegur
fengur að Gennadí
Rosdestvenskí, aðal-
gestastjórnanda
Sinfóníuhljómsveit-
arinnar. »33
AF LISTUM»
Snilligáfa og
sérlyndi
GÖTULIST»
Hressir og hoppandi
hópar Hins hússins. »35
Fjórar efnilegar
rokksveitir heim-
sækja landsbyggð-
ina á næstu dögum
og dúndra upp
tónleikum. »33
TÓNLIST»
Á rokkandi
hringferð
KVIKMYNDIR»
Broderick og Parker
komin með tvíbura. »38
KVIKMYNDIR»
Heimildarmynd um Mike
Tyson frumsýnd. »32
Menning
VEÐUR»
1. Halldór K. Vilhelmsson látinn
2. Fluginu aflýst
3. Slapp ómeiddur frá ...
4. Ronaldo ekki nógu flottur fyrir ...
Íslenska krónan styrktist um 0,06%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
EMMA Ania, ein fljótasta hlaupa-
kona í Evrópu, býr á Íslandi og æf-
ir með FH en keppir fyrir Bret-
land. Hún fann ástina á Íslandi
fyrir átta árum og er án efa fótfrá-
asta „tengdadóttir Íslands“ í dag.
Emma var hársbreidd frá því að
vinna til verðlauna á Ólympíu-
leikunum í Peking á síðasta ári en
ætlar sér að bæta um betur á
næstu leikum sem fara fram í
fæðingarborg hennar, London, árið
2012.
Emma var unglingastjarna í
breskum frjálsíþróttum en fékk ung
að árum nóg af íþróttunum og hætti
keppni. Hún tók upp þráðinn á ný á
Íslandi eftir mikla hvatningu unn-
usta síns, Guðjóns Gíslasonar.
„Fljótlega eftir að við Guðjón
kynntumst fór hann að hvetja mig
til þess að taka upp þráðinn við
hlaupin á nýjan leik. Hann kom
mér í kynni við Eggert [Bogason]
og konu hans, Ragnheiði [Ólafs-
dóttur], hjá FH. Með hvatningu og
stuðningi frá þeim þá byrjaði ég
aftur að æfa af krafti hjá þeim og
FH-ingum 2002. Löngunin til æf-
inga var vakin á nýjan leik og með
frábærum stuðningi Guðjóns, Egg-
erts, Ragnheiðar og allra hjá FH
þá hélt ég áfram. Ég stend í mikilli
þakkarskuld við þau og allt hið
góða fólk hjá FH fyrir allan þeirra
stuðning í gegnum tíðina,“ segir
Emma í samtali við Morgunblaðið.
Hún er afar ánægð með aðstöðu
til æfinga fyrir frjálsar íþróttir en
kveðst hafa kynnst öðru og betra
viðmóti til æfinga í Kópavogi en í
Reykjavík. Þá segir hún íslenska
sjúkraþjálfara frábæra.
Ein sú fljótasta | Íþróttir
Líf og fjör á vettvangi íþrótta – „Svekkelsi í himnaríki,“ segir Íslandsmethafinn
Ástin á Íslandi Emma Ania og Guðjón Gíslason hafa verið í sambúð undanfarin átta ár.
„Tengdadóttir Íslands“
í fremstu röð í Evrópu
HELGA Margrét Þorsteinsdóttir,
17 ára frjálsíþróttakona, setti glæsi-
legt Íslandsmet í sjöþraut í Tékk-
landi í gær og var hársbreidd frá því
að tryggja sér sæti á heimsmeistara-
móti fullorðinna. Hún er nú fremst í
heiminum í sínum aldursflokki. „Já
þetta er svolítið öfugsnúin og súrsæt
tilfinning. Ég bætti mig mikið og allt
gekk upp, en síðan eru það þessi 22
stig sem vantaði upp á sem hanga yf-
ir manni. En þau koma bara seinna,
ég er alveg sátt við mitt. En þetta er
óneitanlega svolítið svekkelsi í
himnaríki,“ sagði Helga.
Morgunblaðið/Eggert
Met Helga Margrét stefnir hraðbyri
í fremstu röð í sjöþrautinni.
„Súrsæt
tilfinning“
MARKO Valdimar Stefánsson, ung-
ur knattspyrnumaður í úrvalsdeild-
arliði Grindvíkinga, var nærri því
búinn að missa fjórar tær í slysi í
heimabæ sínum í gær. Marko var að
sinna vinnu sinni við að slá tjald-
svæðið í Grindavík þegar hann varð
fyrir því óláni að fóturinn endaði í
sláttuvélinni. „Ég var að slá brekku
með svona dekkjalausri sláttuvél og
var að koma mér niður brekkuna
þegar ég rann til og fóturinn fór
undir vélina. Þetta var mjög sárs-
aukafullt, virkilega sársaukafullt,“
sagði Marko Valdimar sem verður
lengi frá æfingum og keppni en úti-
lokar ekki að spila aftur á þessu
tímabili.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Slasaðist Marko Valdimar Stefáns-
son verður lengi frá keppni.
Með tærnar
í sláttuvélina
GUÐMUNDUR Guðmundsson, þjálfari íslenska lands-
liðsins í handknattleik karla, kveðst ansi sáttur við and-
stæðinga Íslands í B-riðli úrslitakeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Austurríki í janúar á næsta ári, en dreg-
ið var í riðla í gær. Strákarnir okkar mæta Evrópu-
meisturum Danmerkur, lærisveinum Dags Sigurðs-
sonar í Austurríki og Serbíu.
„Okkur hefur alltaf gengið ágætlega með Dani. Það
er gaman að fá að mæta þeim og að sama skapi Austur-
ríkismönnum undir stjórn Dags. Svo eru Serbar
skemmtilegur andstæðingur. Þetta er spennandi rið-
ill,“ sagði Guðmundur.
„Þetta er spennandi riðill“
Sterkur Guðjón Valur er lykilleikmaður í landsliðinu.
UMRÆÐAN»