Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Túnþökusala Oddsteins Túnþökur og túnþökurúllur til sölu í garðinn eða sumarbú- staðinn! Steini, sími 663 6666, Kolla, sími 663 7666. Visa/Euro l t i Túnþökur og túnþökurúl ur til sölu í garðinn eða sumarbústaðinn! Kolla, sími 663 7 66, Steini, sími 3 6666. Visa/Euro Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Rotþrær-siturlagnir Heildarlausnir - réttar lausnir. Heildarfrágangur til sýnis á staðnum ásamt teikningum og leiðbeiningum. Borgarplast, www.borgarplast.is s. 561 2211 - Völuteigi 31 - Mosfellsbæ. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum til sölu Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Óska eftir KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is , í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari getur bætt við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Vélar & tæki Til leigu með/án manns Gerum einnig tilboð í hellulagnir og drenlagnir. Upplýsingar í síma 696 6580. Bátar Strandveiðimenn Fiskiker gerðir 300, 350, 450 og 460. Línubalar 70 og 80 l. Allt íslensk framleiðsla í hæsta gæðaflokki. www. borgarplast.is Völuteig 31, Mosfellsbæ, s: 561 2211. Plastviðgerðir Tek að mér viðgerðir, breytingar og ný smíði á bátum og lakksprautun. Trefjaplasttækni ehf Uppl. í s. 869 9330. Bílar Ford Explorer Sport Trac Árg. 2003, ekinn 100 þ. km, í toppstandi. Fæst á 1.700 þ. Ath. skipti á ódýrari. Sími 893-3347. Bílaþjónusta Fellihýsi A Liner - A hús Til sölu mjög fallegt A Liner hús, árg. 2007. Sólarsella. Verð 1990 þús. S. 893 7065. Tjaldvagnar Comby Camp til sölu Til sölu er Comby Camp árg. 2004 með kálfi og kassa á beisli, verð 550 þús. Uppl. í síma 893 7050. Vélhjól Yamaha V-Star 650 árg. 2003 Ek. 7500 míl. Fallegt hjól. Verð 650 þ. Uppl. í s. 565 4521 / 840 5625 / 848 4113. Hjólhýsi LMC Munsterland 400s árg.´06 Lítið notað og vel með farið. Sjónvarp, loftnetsgreiða, gasskynjari, ísskápur með frysti. Upplýsingar í síma: 899- 0675. Húsviðhald Skipti um rennur og bárujárn á þökum, einnig smávægilegar múrviðgerðir og ýmislegt fl. Þjónum landsbyggðinni einnig. Upplýsingar í síma 659-3598. Kerrur Bílaflutningakerra Óska eftir að kaupa bílafluttningakerru með burðargetu frá 2,8 - 3,5 tonn. Upplýsingar í síma: 848 2678 og 464 4419. Vinnuvélar JCB 2 árg. 1993 JCB 2, ekin ca. 4000 t., úrtak fyrir fleyg, góð dekk, nýr rafgeymir og altenator. Mjög vel með farin vél. 3 skóflur fylgja. Verð 1490 þús. S. 893 7065 og 437 1200. Varahlutir www.bilapartar.is Bílapartar ehf. Við erum þjónustu- aðilar Úrvinnslusjóðs. Þú kemur með bílinn til okkar og færð skilavottorð. Við erum í Grænumýri 3, Mosfellsbæ. Þjónustuauglýsingar 5691100 Ertu að leita þér að vinnu? Vantar þig starfskraft? Farðu inn á mbl.is/atvinna ✝ Örn Harðarsonfæddist í Reykjavík 23. október 1931. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Droplaug- arstöðum 27. júní sl. Foreldrar hans voru Guðrún Björg Sveins- dóttir húsmóðir og Hörður Jóhannesson málarameistari. Eiginkona Arnar er G. Kristín Jónsdóttir, f. 1. nóvember 1945. For- eldrar hennar voru Jón Guðbrandsson og Ásta Þórarinsdóttir frá Höfða á Vatnsleysuströnd. Dætur Arnar og Kristínar eru: 1) Guðrún Ásta, f. 15. apríl 1983, sambýlismaður Jón Sævarsson, f. 17. janúar 1983, og 2) Arna, f. 21. október 1984. Börn Kristínar frá fyrra hjóna- bandi eru: 1) Ásthildur Erla Gunn- arsdóttir, f. 24. nóvember 1966, gift Skúla Skúlasyni, f. 25. maí 1962. Dætur þeirra eru Inga Kristín, f. 23. júlí 1987 og Ágústa Rut, f. 31. janúar 1990. 2) Magnús Jón E. Gunnarsson, f. 25. maí 1972, kvænt- ur Hönnu Rún Eiríksdóttur, f. 13. ágúst 1971. Synir þeirra eru Gunnar Þorri, f. 22. ágúst 1999 og Ísak Einir, f. 2. október. 2005. Örn ólst upp í Reykjavík og lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands. Einnig lauk hann námi við Mynd- lista- og hand- íðaskóla Íslands. Ár- ið 1956 fór hann til frekara náms við UCLA í Kaliforníu. Að loknu námi starfaði hann sem kvikmyndatökumaður í Hollywood. Hann kvæntist Kristjönu Stef- ánsdóttir en þau skildu. Örn fluttist aftur heim 1966 og hóf störf við Ríkissjónvarpið. Hér heima vann hann mikið við kvik- mynda- og auglýsingagerð. Hann stofnaði og rak fyrirtækið Gisti- heimili Snorra ásamt konu sinni, sem er enn rekið af fjölskyldunni. Útför Arnar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 3. júlí og hefst athöfnin kl. 13. mbl.is/minningar Elsku besti pabbi. Við erum svo stoltar af því að vera dætur þínar. Þú varst alltaf svo flott- ur, alveg eins og „lord“, svo virðuleg- ur varst þú. Við vissum hvernig veikindin myndu hafa áhrif á þig og því tókst mömmu og þér að búa til svo margar góðar minningar með okkur á þessum tíma sem við áttum saman. Við fórum í ógleymanlega ferð til Höllu og Hreiðars í Ameríku eins og þig dreymdi um. Ferðin í kringum landið á stóra bílnum og síðasta ferðin okkar fjögurra saman til Costa del Sol. Við erum svo þakklátar fyrir að hafa verið hjá þér þegar þú kvaddir þennan heim. Við erum svo þakklátar fyrir að hafa átt þig sem pabba. Okk- ur þykir svo ofurvænt um þig, elsku pabbi. Minningarnar eru margar og við munum varðveita þær að eilífu. Nú hefur þú fengið hvíldina og ert farinn á betri stað, elsku pabbi. Við munum ávallt hafa þig í hjört- um okkar. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún.) Þínar dætur, Guðrún Ásta og Arna Hörður. Fyrsta minningin mín af afa er frá því að hann sat einhvern sólríkan dag í brúna Range Rovernum í innkeyrsl- unni í Einarsnesinu. Hann var í dökk- blárri peysu og með flugstjórasólgler- augu á nefinu, bíðandi eftir okkur gormunum því við vorum á leið í eitt- hvert ferðalag. Fleiri svipmyndir koma svo upp í hugann, hann sat til dæmis alltaf í svarta leðurstólnum sínum á daginn og las blöðin með út- varpið í bakgrunni, dekraði Míru okk- ar alveg á heimsenda og aftur til baka, bruddi sólhatt í tíma og ótíma og rakaði sig alltaf með rafmagnsvél. Ég þarf ekki að minna neinn sem þekkir til á það hvað afi var svalur náungi. Hann var fjallmyndarlegur, hávaxinn og skeggjaður, oft alvarleg- ur á svip þó við vissum öll að undir niðri ólgaði góðlátleg stríðni og mikill húmor. Hann var kaldhæðinn og meinfyndinn, hárbeittur og klár. Ég var mjög stolt af afa gamla og sem krakki sagði ég öllum frá því að afi minn væri sko kvikmyndagerðarmað- ur sem hefði búið í Ameríku og væri með sundlaug í garðinum sínum! Ég leit því mikið upp til afa, með skærar stjörnur í augunum, enda var hann mikill karakter og ég mun sakna hans. Ég bið að þú hvílir í friði, elsku Örn afi, og þakka þér fyrir allar góðu minningarnar sem þú skilur eftir innra með mér. Þín afastelpa, Inga Kristín. Strax á unglingsárum vissi ég af Erni Harðarsyni. Faðir hans, Hörður Jóhannesson, málarameistari, var þá félagsforingi Skátafélags Reykjavík- ur og tíður gestur í gamla Skátaheim- ilinu við Snorrabraut, sem var mitt annað heimili þau árin. Löngu seinna komst ég að því að við Örn vorum frændur, því langömmur okkar, þær Svanhildur og Ljósbjörg Magnúsar- dætur, voru systur. Fyrst man ég eftir Erni, er hann var að hengja upp auglýsingu, sem hann hafði teiknað fyrir árlega skáta- skemmtun í Skátaheimilinu. Örn var myndlistarmenntaður, af- burða snjall teiknari og listfengur í betra lagi. Við urðum málkunnugir og skiptumst á nokkrum bréfum, þegar hann var fluttur til Ameríku og ég var þar við nám. Kynnin voru svo end- urnýjuð, þegar hann fluttist heim og réðst kvikmyndatökumaður til Sjón- varpsins rétt eftir að það var stofnað. Þar lágu leiðir okkar saman um ára- bil. Örn lagði stund á nám vestanhafs og starfaði við kvikmyndagerð, en kvikmyndataka er nokkuð sem erfitt er að læra, – annaðhvort hafa menn neistann eða ekki. Örn hafði neistann. Hann var vandvirkur og smekkvís tökumaður með næmt auga fyrir myndbyggingu og var tilbúinn að leggja á sig ómælt erfiði til að ná réttu sjónarhorni. Sumarið 1969 fórum við ásamt Oddi Gústafssyni hljóðupptökumanni austur á land og gerðum heimildar- myndir um Seyðisfjörð og á Fljóts- dalshéraði. Til að ná mynd af Háa- fossi í Fljótsdal fór Örn eftir lausri skriðu inn að fossinum, en neðan við var þverhnípi ofan í djúpt gljúfur. Hann náði frábærum myndum og var óratíma að fikra sig til baka í lausa- mölinni. Þá hélt ég nú eiginlega að frændi minn yrði ekki eldri. Saman gerðum við heimildarmynd um Ís- lendingaslóðir í Kaupmannahöfn, Vorboðinn ljúfi, hét hún, þar sem séra Jónas Gíslason, þá prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn, fylgdi okkur um söguslóðir. Myndatakan í þeirri mynd ber natni hans og vandvirkni gott vitni. Seinna fórum við saman tveir á vegum sjónvarpsins til Dacca í Bangladesh með Cargoluxvél sem þangað flutti hjálpargögn eftir lok borgarastyrjaldar. Það var eftir- minnilegt ferðalag. Örn Harðarson hafði fágaða framkomu og var maður hreinskiptinn. Hann sagði það sem honum bjó í brjósti hver sem í hlut átti. Hann var einstakt snyrtimenni alla tíð og vel á sig kominn enda fræk- inn sundmaður á yngri árum. Um nokkurt skeið hafði hann átt við vanheilsu að stríða. Við hittumst fyrir tæpu ári, þá var nokkuð af hon- um dregið en engu að síður gerði hann mjög hnitmiðaða athugasemd við holdafar mitt og glotti við. Húm- orinn var í góðu lagi. Er við hittumst svo fyrir rúmlega hálfum mánuði hafði heilsu hans enn hrakað og kem- ur því ekki með öllu á óvart að hann skuli nú hafa kvatt okkur. Ég veit að ég mæli fyrir munn margra gamalla samstarfsmanna hans hjá Sjónvarpinu, þegar góðum dreng er þökkuð samfylgdin og konu hans og börnum vottuð einlæg samúð. Hvíl í friði, frændi. Eiður Guðnason Örn Harðarson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að út- för hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur ver- ið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefn- um, www.mbl.is/minningar. Æviá- grip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefn- um. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengd- armörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.