Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
178. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«PÁLL ÓSKAR
HELDUR MINNINGAR-
VEISLU FYRIR JACKSON
«STÓR ÚTILEGUHELGI FRAMUNDAN
Allt sem þú þarft
í útileguna
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
3
7
8
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
HRUN íslensku bankanna síðastliðið haust er
stærra en Enron og WorldCom málin, sem
eru stærstu gjaldþrotamál í sögu Bandaríkj-
anna. Þetta segir Helge Skogseth Berg,
norskur sérfræðingur, sem Eva Joly, ráðgjafi
sérstaks saksóknara í rannsókn á banka-
hruninu, hefur fengið til aðstoðar við rann-
sóknina.
„Málið er svo stórt að það er ómögulegt að
segja hversu lengi ég mun koma að því,“ segir
hann. „Bankahrunið hér er stærra en Enron
Hann segir helsta hlutverk sitt í rannsókn-
inni verða að skýra hvað raunverulega olli því
að íslensku bankarnir hrundu síðastliðið
haust.
„Hluti verkefnisins verður að styðja sér-
stakan saksóknara í að finna áhugaverð mál
til að rannsaka og gefa honum ráð um hvað
gæti hugsanlega verið í þeim að finna. Ég er
líka fenginn hingað til að finna út úr því hver
ber ábyrgð á þessu bæði út frá refsirétti og
hugsanlegum skaðabótum – hvort einhver
getur talist bera fjárhagslega ábyrgð.“
sóknara að málinu,“ segir
Berg um þetta. „Í svo stórri
rannsókn er gott að hafa
nokkur sjálfstæð rannsókn-
arteymi því þá mun ekki öll
rannsóknin geta tafist út af
einhverju einu stóru máli.
Rannsóknin getur gengið
hraðar ef fleiri teymi vinna
að ólíkum málum og þá er
fé og starfsfólk líka nýtt
betur. Það ætti þannig að
vera skilvirkara að hafa fleiri saksóknara sem
vinna samhliða að málunum.“
málið, sem árið 2001 var stærsta gjaldþrotið í
sögu Bandaríkjanna. Það er líka stærra en
WorldCom málið, sem árið 2002 var stærsta
gjaldþrotið í sögu sama lands. Rannsóknin er
því gríðarlega umfangsmikil og það mun
krefjast ákveðinnar viðveru á Íslandi af minni
hálfu að veita ráðgjöf vegna hennar.“
Fleiri saksóknarar auka
skilvirkni rannsóknarinnar
Helge er staddur hér á landi ásamt Joly,
sem nýlega gagnrýndi harðlega hversu lítið fé
og mannskap rannsóknin hefur. „Mér skilst
að nú sé komið í gang ferli til að fá fleiri sak-
Bankahrunið stærra en Enron
Norskur sérfræðingur sem Eva Joly hefur fengið til að aðstoða við rannsókn hrunsins segir málið
gríðarlega umfangsmikið Unnið að því að fá fleiri saksóknara Kannar ábyrgð m.a. út frá refsirétti
Mikilvægt að gleyma sér ekki | 8
Helge Skogseth
Berg
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ fór
fram á að hluti Icesave-gagnanna,
sem ekki hafa verið gerð opinber,
yrði þingmönnum aðeins til skoð-
unar í möppu inni í lokuðu herbergi
á nefndasviði Alþingis. Þingmenn-
irnir mega ekki ljósrita upp úr
möppunni eða tjá sig um það sem í
gögnunum stendur. „Þetta er afar
fátítt, og í fljótu bragði man ég ekki
til þess að svona hafi verið búið um
hnútana. Þó þori ég ekki að full-
yrða neitt um það. Þetta er gert
vegna þeirra hagsmuna sem eru í
húfi í málinu,“ sagði Helgi Bernód-
usson skrifstofustjóri Alþingis.
Stjórnvöld hafa þegar gert
stærstan hluta gagna er tengjast
Icesave-málinu opinberan á vefsíð-
unni Íslands.is. Þar er að finna 68
skjöl sem tengjast aðdraganda þess
að samninganefnd Íslands féllst á
að taka ábyrgð á lágmarks-
innstæðutryggingu, 20.887 evrum,
vegna Icesave-reikninga Lands-
bankans í Bretlandi og Hollandi.
Samtals er um 24 skjöl að ræða
sem þingmenn einir fá að kynna
sér, þar á meðal fundargerðir úr
viðræðunum.
Þingmenn skyggnast bak við leyndarhjúpinn
Morgunblaðið/Heiddi
Mappan opnuð Þingkonur Borgarahreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir og Birgitta Jónsdóttir, sjást hér skoða Icesave-gögn á nefndasviði Alþingis.
Skoða Icesave-gögn
í lokuðu herbergi
ANDVIRÐI 170 milljarða króna
liggur á gjaldeyrisreikningum ein-
staklinga og fyrirtækja í viðskipta-
bönkunum, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Í febrúar nam
þessi upphæð 90 milljörðum króna.
Þessar tölur fengust ekki stað-
festar hjá Seðlabankanum í gær.
Jafnframt gáfu stjórnendur bankans
loðin svör þegar þeir voru spurðir
um stöður á þessum reikningum
þegar forsendur stýrivaxtaákvörð-
unar voru kynntar í gær.
Þessi þróun er vísbending um að
útflytjendur og aðrir sem áskotnast
gjaldeyrir vilji ekki skipta honum yf-
ir í krónur. Í staðinn liggja peningar
á reikningum sem bera lága vexti.
Þetta er ein af nokkrum ástæðum
fyrir því að krónan hefur ekki verið
að styrkjast, jafnvel þótt vöruskipti
við útlönd hafi verið hagstæð. | 16
Gjaldeyri
ekki skipt
í krónur
SYKURLAUST tyggigúmmí fær á
sig 130 króna vörugjald þegar
skattabreytingar á matvörum taka
gildi. Upphaflega var stefnt að því
að taka upp sykurskatt en þær fyr-
irætlanir hafa breyst mjög. Vörur
sem verða fyrir hækkun á vörugjaldi
eru auk sykurlauss tyggjós t.d. soja-
mjólk, kaffi, te og niðursoðnir svepp-
ir. Breytingin felst í því að vörugjöld
sem felld voru niður 2007 eru tekin
upp aftur – tvöfalt hærri. | 11
Morgunblaðið/Sverrir
Sykurskattur
víkur fyrir
matarskatti