Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
✝ SigurbjörnPálmason fæddist
á Hvammstanga 19.
október 1965. Hann
lést á heimili sínu,
Vesturbrún 17 í
Reykjavík, sunnudag-
inn 28. júní sl. For-
eldrar hans eru Pálmi
Jónsson, f. 10. febrúar
1917 og Ingibjörg
Daníelsdóttir, f. 3.
mars 1922. Systkini
Sigurbjörns eru
Hjálmar, f. 31. júlí
1945, maki Guðlaug
Sigurðardóttir, f. 22. febr. 1947,
þau eiga 2 börn. Gylfi, f. 9. nóv.
1946, hann á 5 börn, Hólmgeir, f.
14. jan. 1947, maki Ingibjörg Þor-
láksdóttir, f. 6. sept. 1947, þau eiga
7 börn, Reynir, f. 20. des. 1949, d.
23. apríl 1967, Bergþór, f. 27. ágúst
1951, maki Sigrún Marinósdóttir, f.
29. júlí 1951, þau eiga
4 börn.
Ásgerður, f. 8. júlí
1955, maki Guðjón S.
Gústafsson, f. 28. júlí
1958, þau eiga 6 börn,
og Svanhildur, f. 4.
júlí 1956, maki Sig-
urður Ámundason, f.
20. júní 1954, þau
eiga 6 börn.
Sigurbjörn bjó á
Bergsstöðum á
Vatnsnesi fyrstu 7 ár
ævi sinnar, en fluttist
þá til Reykjavíkur
með foreldrum sínum. 19 ára flutt-
ist hann að Sólheimum í Grímsnesi.
Síðustu ár ævi sinnar bjó Sig-
urbjörn á sambýlinu Vesturbrún 17
í Reykjavík.
Útför Sigurbjörns fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 3. júlí og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku Bjössi, nú ertu kominn til
Guðs, laus við líkamann sem hamlaði
allri þinni för.
Þarna sem þú lást í rúminu þínu
var svo mikill friður yfir þér að við
biðum bara eftir því að þú opnaðir
augun og sendir okkur bros.
Þú ert búinn að vera mörgum
styrkur með hlýju þinni, sérstaklega
þeim sem þér fannst eiga erfitt og
voru einmana, þú tókst þá undir þinn
verndarvæng. Þú hefur kennt okkur
hinum mikið með framkomu þinni,
Bjössi minn, og fengið okkur til að
hugsa um lífið og tilveruna á jákvæð-
ari og kærleiksríkari hátt.
Þú hafðir sérstakt dálæti á litlum
börnum því þú skynjaðir hreinleika
og sakleysi þeirra.
Kærleiki, samúð og umhyggja voru
þín einkunnarorð.
Þú hafðir svo sannarlega þínar
skemmtilegu hliðar og föstu siði, bæði
heima hjá þér og hjá okkur Sigrúnu,
sem okkur þótti oft svo gaman að,
þegar þú gekkst um og lokaðir dyrum
og gluggum á eftir okkur trössunum,
slökktir ljósin til að spara ( þú vissir
að kreppan var að koma). Þín veröld
var einföld, ekki þessi flækja sem við
flest erum að drukkna í.
Allir dagar byrjuðu á því að þú sett-
ir upp gleraugun, tókst úrið af nátt-
borðinu og gáðir hvað klukkan væri.
Síðan að athuga hvaða dagur væri
með því að rífa gærdaginn af dagatal-
inu.
Þá var flett í Morgunblaðinu og les-
ið sér til um hvernig veðrið yrði þann
daginn um landið.
Þessum upplýsingum komst þú svo
rækilega til skila til nærstaddra svo
að allir væru vel upplýstir, enda ekki
vanþörf á.
Eitt af því skemmtilegasta sem þú
gerðir, var að fara með mömmu og
pabba á Bergsstaði til Hjálmars og
Gullu. Þar áttirðu yndislega daga á
æskuslóðunum, þú naust þín svo vel í
sveitinni.
Seinna, eftir að Hjálmar og Gulla
voru hætt búskap, þá fannstu aðra
sveitasælu á Nýja-Bæ hjá henni Dóru
Stínu vinkonu þinni sem dekraði við
þig eins og prins, þú dvaldir hjá henni
í eina til tvær vikur í senn að sumri
sem vetri. Þarna varstu aftur kominn
með dýrin í sjónmál. Það var flott hjá
þér þegar þú pantaðir sjálfur dvöl að
ári hjá Dóru Stínu fyrir þig og þú
gleymdir ekki að panta fyrir vini þína
líka.
Það er búið að vera lærdómsríkt en
ekki síst ánægjulegt að fá tækifæri til
kynnast þínum yndislega persónu-
leika, elsku karlinn okkar, eða hjarta-
gull eins og Sigrún kallaði þig gjarn-
an. Að fá að hafa þig hjá okkur voru
forréttindi. Án þín verður lífið tóm-
legra, en við getum alltaf yljað okkur
við allar góðu minningarnar um þig.
Þú varst gleðigjafi í okkar lífi og við
eigum eftir að sakna þín, en við vitum
að þú ert hjá Guði og þar líður þér vel.
Þú áttir góð ár í Vesturbrún og
eignaðist góða vini í heimilisfólki og
starfsfólki, sem kveðja þig nú með
söknuði. Við fjölskyldan sendum öll-
um í Vesturbrún okkar bestu þakkir
fyrir afar elskulega og ljúfa fram-
komu í þinn garð og okkar allra.
Við sendum mömmu og pabba og
öllum sem þekktu þig, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Elsku Bjössi okkar, yngsti bróðir
minn, en þó stærsti. Takk fyrir þig.
Guð varðveiti þig og blessi.
Bergþór (Beggi bróðir)
og Sigrún.
Í dag kveðjum við Bjössa okkar
með söknuði.
Bjössi var einstaklega hlýr og góð-
ur maður. Það var eftirtektarvert
hversu annt honum var um vini sína
og félaga. Þegar nýr starfsmaður
byrjaði í Iðjubergi var Bjössi fyrstur
til að taka vel á móti honum og kynna
starfsemina. Bjössi sat aldrei auðum
höndum. Hann var duglegur vefari og
eftir hann liggja mörg falleg verk. Við
minnumst Bjössa með hlýhug og virð-
ingu.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(Bjarni. Jónsson frá Gröf.)
Fyrir hönd starfsfólks og vina í
Iðjubergi,
Sjöfn.
Elsku Bjössi.
Það eru margar fallegar minningar
sem koma upp í huga okkar þegar við
hugsum til þín, þær minningar geym-
um við í hjarta okkar og erum þakklát
fyrir tímann sem við fengum að eiga
með þér. Það var alltaf stutt í brosið
þitt og umhyggja þín fyrir öðrum var
mikil. Mikið eigum við eftir að sakna
faðmlaganna þinna, elsku vinur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Foreldrum og fjölskyldu sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sigurbjörns.
Þínir vinir
Sigríður, Stefán, Sigurlaug,
Helga og starfsfólk
í Vesturbrún 17.
Bjössi minn.
Aldísi fannst gaman í Iðjubergi.
Bjössi var alltaf svo kátur og hress,
og Aldísi fannst gaman að hitta
Bjössa.
Nú er Bjössi farinn og hittir Aldísi
vinkonu sína. Það var gaman þegar ég
heimsótti Iðjuberg, nú er tómlegt þar.
Nú er góður drengur farinn, vona
að hann fái hvíldina og að Guð geymi
hann.
Farðu í friði. Þinn vinur
Stefán sendill.
Sigurbjörn Pálmason sem lifðu jafn heilbrigðu og reglu-sömu lífi.
Eftir stúdentspróf frá Verzlunar-
skóla Íslands hóf Helga störf hjá
Búnaðarbanka Íslands og starfaði
þar um árabil, síðast sem útibú-
stjóri í Vesturbæjarútibúi bankans í
Reykjavík, og var hún fyrsta kona á
Íslandi sem gegndi slíku starfi. Hún
naut mikils trausts yfirboðara sinna
og þegar undirbúningur að opnun
útibús Búnaðarbankans í Hótel
Sögu hófst var Helga fengin til að-
stoðar. Fljótlega eftir að Helga gift-
ist Ólafi Magnússyni hætti hún í
bankanum og hóf störf í fyrirtæki
þeirra hjóna, prentsmiðjunni
Hverfiprenti, við bókhald og ýmis
fjármál. Fyrir utan að fá lífsföru-
naut fékk Ólafur aðstoðarfram-
kvæmdastjóra og fjármálastjóra í
fyrirtækið sem líka gat haldið í
þræðina, þannig að hann gat ein-
beitt sér meira að framleiðslu og
ýmsum tæknilegum vandamálum.
Þau voru útsjónarsöm og fundu svið
sem þau gátu einbeitt sér að, en það
var framleiðsla og áprentun á plast-
umbúðir fyrir matvælaiðnaðinn.
Helga og Ólafur bjuggu lengst af
á Grenimel í Reykjavík og nokkrum
árum eftir að þau giftu sig byggðu
þau sér sumarbústað í Skorradal,
þar sem fjölskyldan dvaldi löngum.
Þau Helga og Ólafur ferðuðust mik-
ið bæði innanlands og utan og voru
ekki mörg lönd sem þau höfðu ekki
heimsótt. Ég minnist þess að mér
þótti áhugavert að þau höfðu meira
að segja komið í óperuhúsið í Sydn-
ey í Ástralíu sem teiknað var af
danska arkitektinum Jörn Utzon. Á
ferðum sínum voru þau dugleg að
taka myndir, og voru með þeim
fyrstu sem notfærðu sér digital-
tökuvél, þannig að við hin fengum
að upplifa ýmislegt sem þau höfðu
séð.
Helga var kjarnakona og reif upp
þá sem í kringum hana voru og
hefði maður álit á einhverju, þurfti
að sjálfsögðu að rökstyðja skoð-
unina, til að hún léti sannfærast.
Fullyrðingar út í loftið dugðu
skammt, þannig að það var eins
gott að standa sig. Helga var hrein
og bein og allt sem hún sagði eða
lofaði stóð eins og stafur á bók.
Ættrækin var hún með afbrigðum,
stálminnug og mundi alla afmælis-
og merkisdaga fjölskyldunnar, en
þar hlýtur bókhaldskunnáttan
örugglega að hafa komið að góðum
notum.
Hún fylgdist vel með þjóðfélags-
málum og öðru sem var að ske,
bæði hérlendis og erlendis, þannig
að það var alltaf hressandi og fræð-
andi að hitta hana og ræða málin.
Við vottum fjölskyldunni samúð.
Blessuð sé minning Helgu Krist-
insdóttur.
Sigrún M. Magnúsdóttir, Sig-
urður Thoroddsen.
Hún Helga okkar elskuleg verður
lögð til hinstu hvílu í dag. Eftir
stutta en erfiða baráttu við veikindi
kom kallið.
Ég minnist Helgu með hlýju í
hjarta. Það var aldrei komið að tóm-
um kofunum hjá henni Helgu okk-
ar. Það var svo gaman að tala við
hana því hún fylgdist svo vel með
öllu. Hún sýndi alltaf mikinn áhuga
á því sem var að gerast í lífi mínu
og ég fann hvað hún bar hag minn
fyrir brjósti en ég og Kristinn Axel
sonur hennar og Ólafs erum jafn-
aldrar. Ég verð ævinlega þakklát
fyrir þá hlýju sem hún sýndi mér og
mínum.
Helga hafði skemmtilega nær-
veru. Hún var ákveðin kona, hrein
og bein og föst fyrir. Ekki grunaði
okkur að röðin væri komin að henni
enda var hún hress og kát, stundaði
sína leikfimi og sinnti sínum hugð-
arefnum þar til að hún veiktist.
Helga hafði mikinn áhuga á ferða-
lögum. Það var svo gaman að heyra
ferðasögur frá fjarlægum stöðum
en þau hjónin höfðu meðal annars
komið til Nýja-Sjálands, Ástralíu,
Suður-Ameríku og á marga fleiri
staði.
Elsku Óli frændi, Kristinn Axel,
Vala, Magga, Pála og fjölskyldur!
Ég votta ykkur innilega samúð.
Megi guð geyma ykkur.
Anna Margrét Thoroddsen
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
DAGBJARTUR KRISTINN GUNNARSSON
frá Marteinstungu,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
sunnudaginn 28. júní.
Jarðarförin fer fram frá Marteinstungukirkju
laugardaginn 4. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar frá Marteinstungu,
Guðný K. Guttormsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA KARLSDÓTTIR,
Mýrarbraut 8,
Blönduósi,
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn
4. júlí kl. 14.00.
Sigtryggur Ellertsson, Brynhildur Friðriksdóttir,
Herdís Ellertsdóttir, Jón Kr. Jónsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORVARÐUR GUÐMUNDSSON
bifreiðarstjóri,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudag-
inn 28. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 6. júlí kl. 13.00.
Anna Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Valur Þórarinsson,
Guðmundur Jens Þorvarðarson, Svava Haraldsdóttir,
Stefán Ragnar Þorvarðarson,
Aðalbjörg Þorvarðardóttir, Tryggvi Aðalsteinsson,
Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Sólmundur Maríusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
fósturföður míns, tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS SIGURÐSSONAR
pípulagningamanns,
Strandaseli 1,
Reykjavík.
Ása Birna Áskelsdóttir, Stefán Ómar Oddsson,
Þórný Pétursdóttir, Baldur Már Bragason,
Ómar Rafn Stefánsson,
Ragnhildur Birna Stefánsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Borgarbraut 65A,
Borgarnesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
1. júlí.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Sæunn Andrésdóttir,
Guðrún Andrésdóttir,
Konráð J. Andrésson, Margrét Björnsdóttir,
Guðleif B. Andrésdóttir, Ottó E. Jónsson,
Anna María Andrésdóttir,
Arnheiður G. Andrésdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar,
RUNÓLFUR SÆMUNDSSON,
Skólavörðustíg 20,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni
miðvikudagsins 1. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Daði Runólfsson,
Halldór Björn Runólfsson.