Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 35
Velvakandi 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA ER
„NÝI ÉG“
SÉRÐU
EINHVERN MUN?
FYRIRGEFÐU...
„GAMLI ÉG“
HLUSTAÐI EKKI
Á ÞAÐ SEM
ÞÚ SAGÐIR
KALLI
SEGIR AÐ ÞÚ
TALIR VIÐ
LAUFBLÖÐ
TALI
VIÐ HVAÐ?
VIÐ LAUF!
HANN SEGIR
AÐ ÞÚ TALIR
VIÐ LAUF...
HANN ER
KLIKKAÐUR!
SEGÐU KALLA
AÐ ÞAÐ...
GÓÐAN
DAG!
SÉ EITTHVAÐ
MIKIÐ AÐ HONUM!
ÉG LÆRÐI
SVOLÍTIÐ Á
ÞESSU ÖLLU
SAMAN
NÚ?
HVAÐ? SNJÓ-SKRÍMSLI
ERU TIL
VANDRÆÐA
ERTU VISS UM AÐ ÞÚ HAFIR EKKI
LÆRT NEITT FLEIRA AF ÞESSU?
ÉG REYNI AÐ
LÆRA SEM MINNST
AF MISTÖKUM
MÍNUM
ÉG
HATA
MÁNU-
DAGA!
EN ÞAÐ ER
FÖSTUDAGUR ÞÁ HATAÉG LÍKA
FÖSTUDAGA!
ÞAÐ SKIPTIR
EKKI MÁLI HVERT
ÉG FER... MÉR FINNST
ALLTAF EINS OG
ÞAÐ SÉ EINHVER
AÐ ELTA MIG
EF MAÐUR ÆTLAR AÐ ÆFA
MAGADANS ÞÁ VERÐUR MAÐUR AÐ
SÆTTA SIG VIÐ EIGINN LÍKAMA
ÁÐUR EN ÉG BYRJAÐI
HÉLT ÉG AÐ MAGINN Á MÉR
VÆRI KANNSKI OF STÓR
TIL AÐ HRISTA HANN FYRIR
FRAMAN ANNAÐ FÓLK
NÚNA FINNST MÉR
HANN EIGINLEGA
VERA OF LÍTILL
FLOTT
HJÁ ÞÉR,
MAGGA
FYRIRGEFÐU AÐ
ÉG SKILDI EKKI
KOMA Á FRUM-
SÝNINGUNA ÞÍNA
ÉG VERÐ AÐ
SEGJA AÐ ÉG
VAR FREKAR
REIÐ ÚT Í ÞIG
OG NÚNA ÞEGAR ÞÚ
MINNIST Á ÞAÐ...
ÉG TALA ALLT
OF MIKIÐ
GOTT AÐ
ÉG Á AUÐVELT
MEÐ AÐ
FYRIRGEFA
ÞÉR
TVEGGJA hæða rúta frá City Sightseeing Reykjavík keyrir yfir sumar-
mánuðina, en hún keyrir að helstu kennileitum höfuðborgarinnar. Það er
tilvalin hugmynd fyrir þann sem vill njóta helgarinnar í borginni að skella
sér í skoðunarferð og sjá heimaslóðirnar með augum ferðamanns og fræð-
ast um sögufræga staði höfuðstaðarins.
Morgunblaðið/Eggert
Skoðunarferð um Reykjavík
Á heljarþröm
HEIMURINN er á
heljarþröm í tilefni af
því að poppgoðið Mich-
ael Jackson er látinn.
Svipað fár greip um sig
þegar Lennon og Pres-
ley dóu. Þetta er í sjálfu
sér ekkert skrýtið því
þessir menn skilja mik-
ið eftir sig sem hrífur
hinn venjulega mann,
sem er tónlistin. Það
sem mér er efst í huga
er alls ekki þetta dauðs-
fall heldur framlag
ungs, 16 ára pilts sem
kom fram í Kastljósinu
ekki fyrir löngu og var Kristmunds-
son að mig minnir. Þessi sérstaki
piltur flutti rapplag sem hann hafði
samið sjálfur og texta þar sem hann
á ljúfan, elskulegan og kærleiksríkan
hátt talar til föður síns sem hafði fall-
ið í ofneyslu efna eftir 11 ára bind-
indi. Þessi sonur hafði alist upp hjá
föður sínum sem elskaði hann og
virti og þeir höfðu unnið og fram-
kvæmt allt saman. Nú er þessu snúið
við og það fór ekki á milli mála að
drengurinn syrgði sárt og átak-
anlega föður sinn, sem var fallinn, og
bað hann af ástúð að koma aftur til
sín á réttan hátt. Þetta finnst mér
sérstakt.
Í umræðunni hefur verið allt sem
viðkemur falli heillar þjóðar pen-
ingalega og þetta er orðið afar erfitt
fyrir hinn venjulega mann því þetta
er íþyngjandi, sárt og þreytandi þótt
sannleikur sé. Það sem mér finnst
óhuggulegast í núinu, af því að annað
verður á vissan hátt auðveldara, eru
þessir svokölluðu Icesave-samningar
sem ég álít vera spörfuglsspor frá
efnahagslegu þjóðarmorði. Það er al-
veg ljóst að ef við eigum að standa
við aðrar skuldbindingar þá getum
við ekki leyst þessar og það er sárt
að þurfa að kyngja því að þessar
tvær þjóðir sem ætla að taka okkur í
nefið, þ.e. Englendingar og Hollend-
ingar, voru til margra alda stór-
hættulegar þjóðir sem
náðu þeim áfangasigri
að kúga fólk í Afríku,
Indlandi og jafnvel víð-
ar, til að hafa af þeim
allt sem hægt var.
Annað sem ber líka
hátt í umræðunni er
tónlistarhúsið sem
byrjað er að byggja á
bökkum Reykjavíkur-
hafnar. Ég vil benda á
það að eins og komið er
fyrir þjóðinni, þ.e. þetta
peningalega örkuml,
býður það ekki upp á að
við leyfum okkur svo
mikið sem að hugsa um
það að byggja viðlíka risamannvirki
sem tónlistarhúsið óneitanlega er.
Það myndi engu stórtjóni valda ef við
geymdum þessa framkvæmd fram
yfir þann vanda sem við tökumst á
við í dag og létum ekki sama stór-
mennskubrjálæði plaga þjóðarsálina
eins og þessir sjö vindhönum oflætis
og hroka, sem sigldu okkur í kaf,
tókst að gera með því að plata okkur,
svíkja og stela þjóðarauðnum. Meira
vil ég ekki segja og óska Íslend-
ingum velfarnaðar í þeim vanda sem
þeir standa frammi fyrir.
Jóna Rúna Kvaran.
Með teikningar að vopni
ÞAÐ var sál og meining í teikningum
Sigmunds. Teikningar núverandi eru
oftast út í hött og afskræmi sem
fæstir skilja. Af ýmsum ástæðum
getur fólk hætt að kaupa blöð,
kannski stundum vegna skopmynda,
sem flestir eru nú farnir að skilja, að
eru beitt vopn í lífsbaráttuni.
Ritstjórn Morgunblaðsins ætti að
reyna að fjölga lesendum en ekki
fækka.
Guðmundur Sigurþórsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður
vegna sumarlokunar. Hádegismatur af-
greiddur kl. 12-13.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur í Stangarhyl 4, sunnud. 5. júlí kl.
20-23.30. Borgartríó leikur fyrir dansi,
ath. síðasti dansleikur fyrir sumarleyfi.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, hádegisverður kl.
11.40 og félagsvist kl. 20.30. Krumma-
kaffi á morgun, laugardag kl. 9 og
Hana-nú-ganga kl. 10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinnustofan opin, matur kl. 11.40.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Sýnikennsla í skartgipagerð í vinnustof-
um Jónshúss kl. 10-12. Myndlistarsýn-
ing Höllu Har er opin kl. 10-16.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vegna sum-
arleyfa starfsfólks fellur starfsemi og
þjónusta niður frá miðvikud. 1. júlí,
opnað aftur miðvikud. 12. ágúst
Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 9-14, hádegismatur kl. 12.
Hraunsel | Brids kl. 13.
Hraunsel | Lokað vegna sumarleyfa frá
6. júlí til 10. ágúst. Dagsferð FEBH
verður um Suðurland 22. júlí. Pútt við
Hrafnistu alla mánudaga kl. 13-14 og
fimmtudaga kl. 11-12 í sumar.
Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9-
16. Félagsvist alla mánudaga. Lista-
smiðjan, tölvurnar, hugmyndabankinn,
Stefánsganga, púttvöllurinn, morg-
unfjas, bankaþjónusta, hádegisverður,
kaffi og félagsvist alla mánudaga. S.
411-2790. Fótaaðgerðarstofa, s. 897-
9801, hárgreiðslustofa, s. 568-3139.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11. Opið hús -
spilað á spil, vist/brids kl. 13, veitingar
kl. 14.30. Hárgreiðslustofa, s. 862-
7097, fótaaðgerðastofa, s. 552-7522.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-
14.30, matur kl. 11.45, sungið v/
flygilinn við undirleik Sigurgeirs kl.
13.30, dansað í kaffitímanum undir
stjórn Sigvalda danskennara kl. 14.30-
16. Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-
16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun-
stund, leikfimi, bingó fellur niður.