Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 ✝ Margrét HelgaGísladóttir fædd- ist á Selnesi á Breið- dalsvík 3. apríl 1924. Hún lést á líknardeild LSH á Landakoti 28. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Guð- mundsdóttir, f. 1894, d. 1987, og Gísli Guðnason, f. 1903, d. 1982. Systkini Mar- grétar eru Hrafnhild- ur, f. 1922, d. 2005, Haukur, f. 1925, d. 2003, Guðbjörg, f. 1927 og Heimir Þór, f. 1931. Margrét ólst upp á Breiðdalsvík og stundaði nám í Al- þýðuskólanum á Eiðum. Margrét giftist á Hornafirði 30. október 1943 Aðalsteini Aðalsteins- syni, f. 1920, d. 1979. Foreldrar Að- alsteins voru Siggerður Magn- úsdóttir frá Holtaseli í Mýrahreppi og Aðalsteinn Stefánsson frá Hamri í Hamarsfirði. Stjúpfaðir Aðalsteins var Eiríkur Þorleifsson frá Bæ í rúnu, maki Hjalti Þór Vignisson. 3) Aðalsteinn, f. 1955, kvæntur El- ísabetu Einarsdóttur. Dóttir þeirra er Lilja Rós, sambýlismaður Elton Nday. 4) Árni Guðjón, f. 1959, kvæntur Matthildi Kristmunds- dóttur. Þau eiga þrjár dætur, Lauf- eyju Helgu, sambýlismaður Gunnar Helgi Baldursson, Hrafnhildi Örnu, sambýlismaður Atli Már Gunn- arsson og Margréti Eir. 5) Ingi Már, f. 1960, kvæntur Kristrúnu Kjart- ansdóttur. Þau eiga tvo syni, Aron Sölva og Andra Má. Fyrir átti Ingi Már soninn Arnar Má. Barna- barnabörn Margrétar eru 24. Árið 1982 kynntist Margrét Guð- mundi Guðmundssyni frá Ísafirði, f. 1916. Foreldrar hans voru Jóna Salomonsdóttir, f. 1885, d. 1952 og Guðmundur Stefán Guðmundsson, f. 1877, d. 1936. Guðmundur á þrjár dætur Bryndísi, Jónu Margréti og Ingibjörgu. Margrét og Guð- mundur bjuggu í Silfurgötu 7 á Ísa- firði og síðar í Gullsmára 5 í Kópa- vogi. Margrét vann allan sinn starfs- feril hjá Pósti og Síma, lengst af sem talsímavörður, hún vann til ársins 1989. Útför Margrétar fer fram frá Hafnarkirkju á Hornafirði í dag og hefst athöfnin kl. 14. Meira: mbl.is/minningar Lóni. Margrét og Að- alsteinn bjuggu alla sína búskapartíð á Höfn, fyrst á heimili tengdaforeldra Mar- grétar í Nýjabæ og frá 1951 á Sólhól í nánu sambýli við Hrafnhildi systur Margrétar og hennar mann Arngrím Gísla- son. Margrét og Að- alsteinn eignuðust fimm börn: 1) Gísli Eysteinn, f. 1944, kvæntur Jónínu Að- alsteinsdóttur. Þau eiga þrjú börn, Aðalstein, sambýliskona Hildur Þórisdóttir, Hrafnhildi, maki Helgi Örn Kristinsson og Siggerði, maki Ólafur Ingason. Fyrir átti Gísli dótturina Ragnheiði, maki Andreas Jacobsen. 2) Siggerður, f. 1948 gift Ingólfi Ásgrímssyni. Þau eiga fjög- ur börn; Ásgrím, maki Þórgunnur Torfadóttir, Margréti Helgu, maki Jón Finnsson, Aðalstein, maki Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir og Guð- Elsku amma. Í sálmabókinni minni stendur: „Elsku Lilja Rós. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér. (HP.) Guð geymi þig. Þín amma, Margrét.“ Fyrir tæpum þremur árum þegar ég sagði þér að ég væri að flytja til útlanda til þess að fara í skóla gafst þú mér þessa sálmabók og sagðir mér að hafa hana alltaf í náttborðs- skúffunni minni. Hún á sér stað í náttborðsskúffunni minni og mun alltaf eiga sinn stað þar. Þú varst allt- af að spyrja mig hvenær ég færi nú að koma heim og núna er ég að koma heim. Ég vildi óska að ég hefði kom- ist aðeins fyrr. En ég veit að þú vissir að ég væri að koma og að það gerði þig ánægða. Mér finnst gott að þú vissir af því þótt ég fengi því miður ekki að sjá þig. Ein af mínum uppáhalds minning- um um þig er án efa þegar þú komst ásamt Siddu og Hrafnhildi að heim- sækja mig til Barcelona. Það var fyr- ir um það bil tveimur árum. Ég gleymi því aldrei, þegar við vorum allar hlæjandi yfir einhverju þegar við fórum út að borða eitt kvöldið og þú segir allt í einu upp úr þurru: „Stelpur, mér finnst gaman að vera með ykkur“. Það var líka gaman að vera með þér, amma mín. Hvort sem það var á Hornafirði, í Kópavoginum, á Ísafirði eða í Barcelona. Við gátum alltaf fundið okkur eitthvað að tala um og hlæja yfir. Þú varst alltaf með ráð undir rifi hverju og þess vegna voru símtölin ekki fá þar sem ég hringdi allaf í þig ef eitthvað var og alltaf gastu gefið mér góð ráð. Ég lærði margt af þér og hafði heldur betur gott af því að eiga svona hrein- skilna og yndislega ömmu. Í síðasta samtalinu okkar sagðir þú mér að þér liði vel. Þú sagðir mér að þú vær- ir búin að lifa löngu og góðu lífi þann- ig að ef ske kynni að þú myndir fara fljótlega yfir móðuna miklu þá væri það bara Guðs vilji. Að allir myndu deyja á endanum og að þú myndir deyja ánægð með lífið. Ég er ánægð að vita það. Það eru svo margar sög- urnar sem ég get sagt og það er svo margt sem mig langar að segja við þig. En ég kem og heimsæki þig að leiðinu þínu þar sem þú munt liggja við hliðina á afa um leið og ég kem heim, elsku amma mín, og ég tala við þig þar. Þangað til þá segi ég bara að ég elska þig og ég mun alltaf sakna þín. Þú varst yndisleg amma og ég er þakklát að hafa átt þig að. Elsku Guðmundur, ég sendi þér mínar dýpstu samúðarkveðjur og þakka þér fyrir allt. Amma var hepp- in að hafa kynnst svona góðum manni eins og þér. Kæra fjölskylda, ég sendi ykkur öllum mínar samúðarkveðjur. Elsku amma Magga. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Guð geymi þig. Þín sonardóttir, Lilja Rós. Þegar ég sat nýlega á rólegu sum- arkvöldi við sjúkrabeð Margrétar systur minnar, þar sem hún dvaldist á „Landakoti“ mikið veik, vöktu at- hygli mína þrjár deyjandi rósir í vasa á náttborðinu. Þær lutu höfði og biðu óhjákvæmilegra örlaga sinna. Fjórða rósin þarna inni, sem svipað var kom- ið fyrir, hvíldi á hvítum kodda með lokuð augu. Allar þessar rósir höfðu á sínum tíma verið allra rósa fegurst- ar en nú var þeirra skeið senn á enda runnið. Skiljanlega leitaði hugur minn þarna í kyrrðinni til löngu liðinna daga heima á Selnesi, þar sem dag hvern ríkti glaðværð og bjartsýni, í það minnsta hjá ungu kynslóðinni. Ég, strákguttinn, var svo heppinn að eiga fjögur mér eldri systkini og þar af þrjár systur á góðum aldri til að gæta mín við hvert fótmál. Ein- hverra hluta vegna man ég best eftir Margréti í þessu hlutverki. Kannski var hún einmitt á hæfilegustum aldri til að sinna starfinu. Hún var ráðagóð og snör í snúningum. Líklega bjarg- aði hún mér, snáðanum, eitt sinn, frá alvarlegu slysi með því að ausa á mig vatni ótæpilega, þegar kviknaði í föt- um mínum. Ég óvitinn kærði hana fyrir mömmu, fyrir að hafa bleytt mig. Djörfung hennar í störfum, þ.á m. varðandi umgengni við hesta, vakti margra athygli, ekki síst mína. Hún dembdi sér með karlmönnunum inn í stóðréttina til að handsama ótemjur þegar ég forðaði mér upp á fjárhúsþak til öryggis. Líklega var það engin tilviljun að hún hafði oft þann starfa við hirðingar „að fara á milli“ með „heybandslestina“. Ein- hverju sinni við útengjaheyskap úti í Mýrum horfðum við á í fjarska að hestarnir í heybandslestinni fældust og sumir settu af sér baggana. Í stað þess að hún gengi frá vettvangi sáum við hana berjast við vanstillt hrossin og róa þau. Og það tókst. Á þessari dapurlegu kyrrðarstund héldu áfram að kvikna nýjar og nýjar myndir frá liðnum árum þar sem mín ástkæra systir var oftar en ekki í að- alhlutverki: Uppi í fjalli í berjamó eða sjóferð á „Hvítingi“, árabáti föð- ur okkar. Á glaðværum mannamót- um eða í dimmri Austfjarðaþokunni leitandi að kúnum. Á annasömum sauðburði í austanrigningu eða sól- skini og sunnanvindi. Svona mætti lengi telja. Á fullorðinsárum Margrétar naut ég og fjölskylda mín margsinnis gestrisni hennar, stundum svo mán- uðum skipti. Þegar heilsan fór að bila hjá foreldrum okkar tók hún þá að sér (með systrum sínum). Þegar þeir svo fluttust á hjúkrunarheimili, fór hún til þeirra flesta daga þeim til gleði og þæginda. Fyrir allt þetta og margt fleira vil ég, ásamt Guðbjörgu systur minni, þakka okkar kæru systur. Svo rufu klukkur Landakotskirkju kyrrðina. Líklega voru þær að kalla trúaða til bænastundar en mér fannst eins og kallið þýddi allt annað. Engan skyldi undra þótt „litli bróðir“ felldi nokkur tár þar sem hann stóð og virti fyrir sér fyrrum barnfóstruna og leiksystur í skini hnígandi sólar. Samúðarkveðjur sendi ég Guð- mundi og öðrum aðstandendum. Heimir Þór Gíslason. Þær voru systradætur, Margrét og móðir mín, og ég er ekki frá því, að hún hafi verið sú frænkan, sem Mar- grét hélt einna mest upp á. Mér fannst ég geta greint það með ýms- um hætti, og að það væri gagn- kvæmt. Ég fékk líka að njóta þess síðar. Aldrei kom Margrét svo til Reykjavíkur, að hún liti ekki inn á bernskuheimili mínu, jafnvel þótt hún væri á hraðferð, enda var hún með afbrigðum frændrækin og trygglynd. Ég hef líka ekki hitt aðra manneskju, sem hefur verið jafn góð- hjörtuð, óeigingjörn, fórnfús og greiðvikin og hún var, alltaf boðin og búin að hjálpa til, ef þess þurfti, og hún gat komið því við. Umhyggja hennar fyrir mér var einstök. Það fann ég vel, eftir að foreldrar mínir dóu. Hún var t.d. með mér inná sjúkrastofunni, þegar móðir mín skildi við, og það var gott að hafa hana hjá sér og finna þann stuðning, sem hún veitti mér þá. Það má segja, að Margrét hafi að sumu leyti tekið mig að sér eftir það, og það var hægt að finna það glöggt, að henni var mjög umhugað um mig og að ég hefði það eins gott og hægt var. Meðan þau Guðmundur bjuggu ennþá á Ísafirði og áttu erindi til borgarinnar, þá komu þau aldrei svo í bæinn, jafnvel stutta ferð, að Margrét hringdi ekki í mig og byði mér í mat með þeim á Hótel Sögu, þar sem þau dvöldu vanalega. Þegar ég svo fór í ferðalag til Ísafjarðar fyrir rúmum tíu árum síðan, þá dvaldi ég hjá þeim smátíma. Við hringdum líka oft hvor í aðra og áttum góðar samræðustundir. Margrét var ákaflega glaðsinna í verunni og návist hennar var góð. Við hana var líka hægt að tala um allt milli himins og jarðar. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og sagði sína skoðun um- búðalaust. Maður vissi því alltaf, hvar maður hafði hana. Hún var líka framkvæmdasöm, og lét sér ekki nægja að tala bara um hlutina. Ef hægt var að gera eitthvað, þá var það gert hiklaust. Þegar komið er að leiðarlokum, þá kveð ég hana með miklum söknuði en ég kveð hana líka þakklátum huga fyrir allt það góða og gjöfula, sem hún veitti mér fyrr og síðar, og alla tryggðina við mig og mína, um leið og ég bið henni allrar blessunar Guðs og góðrar heimkomu í ríki ljóssins. Að- standendum öllum votta ég mína innilegustu samúð. Guð blessi allar góðar minningar henni tengdar. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Það fækkar í frændliðinu. Sumar af mínum fyrstu minning- um eru tengdar henni Möggu frænku. Þá hef ég verið á öðru ári og Gísla Eysteini fannst gaman að finna upp á ýmsu fyndnu til að láta litlu frænkuna gera, svosem eins og að hækka í útvarpinu sem ég rétt náði upp í takkana á. Magga frænka kom svo og bjargaði mér frá hávaðanum þar sem ég stóð ráðalaus með hendur fyrir eyrum. Álíka sögur á ég nokkr- ar í fórum mínum. Margrét Helga Gísladóttir ✝ Hjörtur Dagfinn-ur Hansson fædd- ist 14. nóvember 1954. Hann andaðist 18. júní 2009. Foreldrar hans voru Hanna Sigurrós Halldórsdóttir og Hans Peter Larsen, bæði látin. Eftirlifandi bræður Hjartar eru Hreiðar Gíslason, hann á 4 börn og 6 barnabörn, og Helgi Hilmar Hansson, hann á 2 börn og 3 barna- börn. Börn Hjartar eru a) Fanný Lára, f. 20. júní 1975, maki Ólafur Ragn- arsson, f. 20. júní 1966, sonur þeirra er Victor Breki, f. 8.maí 2008, og b) Unnar Steinn, f. 9. júní 1995. Útför Hjartar verður gerð frá Bú- staðakirkju í dag, 3. júlí og hefst at- höfnin klukkan 11. Meira: mbl.is/minningar Elsku pabbinn minn. Ég bíð enn eftir að vakna upp af þessum ljóta og vonda draumi. Draumi um það að þú sért farinn frá mér … frá okkur. Ég hreinlega get ekki trúað því. Þú varst stoðin mín og það sem þú gerðir ekki fyrir mig og gafst mér í gegnum árin. Ég gat alltaf hringt í þig ef ég var eitthvað lítil í mér og pabbinn minn bjarg- aði málunum. Þú hafðir svo mikið af visku að deila og und- antekningarlaust komu orðin „Fanný Lára, rökræddu nú við sjálfa þig“, sérstaklega ef ég var að væla yfir einhverju sem var svo að lokum ekki neitt neitt. Alveg sama hvað það var, þú varst til staðar. Þú bjóst yfir enda- lausu örlæti, elsku pabbi minn, hvort sem það var á sjálfan þig eða eitthvað annað og ef fleiri væru eins og þú með það, þá væri heim- urinn bæði betri og fallegri. Þú varst grallari af Guðs náð og það voru ófá skiptin sem að þú ann- aðhvort gerðir einhverjar gloríur eins og að fara í sturtu eftir langan og erfiðan vinnudag án þess að taka eftir því að þú varst í inni- skónum þínum góðu eða þegar þú varst að elda uppáhalds hrísgrjóna- réttinn þinn og tókst í misgripum súkkulaðisósu í stað soyasósu og skelltir henni á pönnuna … við kölluðum þetta „chocolate covered garlic rice“. Nú eða þegar þú hellt- ir uppþvottalegi í morgunkaffið þitt í stað mjólkurinnar. Þessar minn- ingar sem og svo fjölda fjöldamarg- ar aðrar eru mér svo dýrmætar, elsku pabbi minn, og ég met þær svo mikils. Mig vantar svo að geta hringt í þig núna, minnt þig á þær og skellihlegið með þér að þeim. Þú áttir ekki að fara svona fljótt, þú áttir að vera hér lengur hjá mér og okkur. Nú myndirðu segja við mig: „Fanný Lára, ekki þessa eig- ingirni“, og pabbi … já ég veit. Þér er greinilega ætlað eitthvert annað hlutverk annars staðar. En sökn- uðurinn og eftirsjáin er bara svo mikil. Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Hver leiðir mig niður hjá altarinu núna og gefur mig? Mig langar bara að hlaupa í fangið þitt og gráta, finna fyrir sterku örmunum þínum og allri hlýjunni sem þú hafðir að gefa. Það kemur að því, pabbi minn, að ég fæ að gera það, þegar við hittumst á ný. Ég veit að þú fylgist með litla gullmolanum þínum, afabarninu, verndar hann og vakir yfir honum og hjálpar mér að leiðbeina honum í gegnum lífið. Ég elska þig, pabbi minn. Þín dóttir, Fanný Lára. Elsku afi minn „Ef sérhvert barn ætti afa sem væri jafn vitur og skynsamur, ljúf- ur og þolinmóður, eftirlátur og ákveðinn, skemmtilegur og klár og hvetjandi eins og þú – þá væru hvergi á byggðu bóli nokkur vanda- mál. Hvergi.“ „Afar eru til í öllum stærðum og gerðum. Hávaxinn afi er tré að klifra í, tindur að klífa, geimskots- pallur. Feitlaginn afi er bangsi í mannsmynd til að knúsa og kyssa. Stór og herðabreiður afi ber mann á háhesti á fleygiferð um garðinn, ferjar mann yfir mýrar, heldur á manni heim undir stjörnubjörtum himni. Lágvaxinn afi spjallar við mann langtímum saman, hann kemst inn á leynistaðinn og skilur sjónarhorn manns. Værðarlegur afi blundar við arineld og maður kúrir í fangi hans. Klár afi veit allt sem þarf að vita og þekkir alla í bænum með nafni. Hæglátur afi getur fengið spörfugl til að setjast á fing- ur sér með lágværu blístri … eða gengið um Lystigarðinn að sum- arlagi og frætt þig um tré og blóm. Allir eru afarnir kærir barnabörn- unum, vitrir og ástríkir, en enginn er þó eins og afi minn.“ Elska þig. Victor Breki. Elsku Hjörtur minn. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért búinn að kveðja okkur. Ég trúi því að þú hafir fundið ró í sálu þinni. Ég vil þakka þér allar samverustundirnar og hlýjan hug sem þú sýndir mér og Róberti. Þær munu aldrei falla mér úr minni. Megi minning þín lifa skært en sál þín hvíla í friði. Megi guð geyma þig að eilífu. Ég bið að heilsa þér. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Ég vil senda mínar innilegustu samúðarkveðjur til Fannýjar, Óla og Victors Breka. Hugur minn er hjá ykkur. Sigríður Dögg Guðjónsdóttir. Hjörtur Dagfinnur Hansson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.