Morgunblaðið - 16.07.2009, Side 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
„ÖÐRUM þeirra er búið að finna vistun á viðeigandi
stað á vel búnu hjúkrunarheimili. Sem betur fer er
heilsu konunnar, sem hefur komið í fréttum, þannig
háttað að hún getur búið nánast hvar sem er, með
réttum stuðningi og hann verður veittur og þá getur
húsnæði einnig verið til staðar,“ segir Einar Rafn
Haraldsson, forstjóri heilbrigðisstofnunar Austur-
lands. Einar segir rétt að það hafi staðið til að loka
„Hjúkrunarstjórinn tekur hana afsíðis og segir
hvernig komið er. Og það sagði enginn við þessa
öldruðu konu; Svona út með þig, nú ertu heimilislaus,
eins og mátti skilja á fréttum.“ Hann segir engan
leggja niður svona starfsemi að gamni sínu. „En ég
held það sjái hver maður að 5 starfsmenn fyrir tvo
vistmenn er ansi mikið, þegar hægt er að bjóða upp á
betri valkosti annars staðar.“ sigrunrosa@mbl.is
Í HNOTSKURN
» Heilbrigðisstofnun Aust-urlands tók við rekstri
dvalarheimilisins Helgafells á
Djúpavogi í ársbyrjun 2008
þegar sveitarfélagið stóð ekki
lengur undir rekstri þess.
Djúpivogur gat ekki tekið aft-
ur við því um næstu áramót.
„Hér þarf enginn að fara á götuna“
Lokun vistheimilisins Helgafells á Djúpavogi vakti athygli þegar hún var tilkynnt
í byrjun ætlaðs sumarleyfis vistmanna án þess að þeim væru kynnt önnur úrræði
dvalarheimilinu yfir sumartímann í sparnaðarskyni.
Þegar ljóst varð á fundi í hádeginu 13. júlí sl. að sveit-
arfélagið myndi ekki taka aftur við rekstri dvalar-
heimilisins, hafi endanleg ákvörðun um lokun verið
tekin. Starfsfólkið hafi strax verið upplýst um málið.
Ákvörðunin hafi síðan verið kynnt innan við klukku-
stund síðar, og dóttur konunnar sagt að ná í móður
sína þar sem hún hefur dvalið.
STANGVEIÐI
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
golli@mbl.is
SÍÐUSTU dagar hafa verið góðir í
Hofsá í Vopnafirði. Veiðifélag árinn-
ar með Eddu Helgason í broddi
fylkingar sendi frá sér yfirlýsingu
um að á tímabilinu 4.-14. júlí væru
komir 108 laxar á land. Þar af væru
76 stórlaxar, þ.e. laxar yfir 72 sentí-
metra langir. Sturla Örlygsson og
veiðifélagar hans luku veiðum í
Hofsá þann fjórtánda. „Þetta var
meiriháttar skemmtilegt. Það var
fiskur svo víða,“ sagði Sturla. Hann
sagði þá félaga hafa mætt í fyrstu
norðaustanátt sumarsins, hitastigið
hafi hrunið í kjölfarið og vatnshitinn
farið niður í fjórar til fimm gráður
þegar kaldast var. „Það hafði hell-
ings áhrif á ána. Það varð minna um
flotlínuveiði hjá okkur. Við settum
aðeins á glæra sökkenda til að ná
þessu niður.“
Stórlaxavonin
Sturla sagði að það sem Hofsá
hefði fram yfir margar aðrar ár
væri stórlaxavonin og mikil dreifing
á laxi um alla á. „Það eru öll svæði
inni.“ Aðspurður sagði hann hollið
hafa náð sextíu löxum og misst milli
tuttugu og þrjátíu laxa. „Mikið af
þessum fiski var grálúsugur og
hann var vel haldinn. Maður er að
taka 12-14 punda hrygnur. Þetta
bara getur ekki verið fallegra,“
sagði Sturla með draumkenndri
röddu.
Síðustu sumur varð vart við mjög
litla smálaxa á Norðausturlandi.
Tveggja til þriggja punda laxar
fengust í mörgum ám og áhyggju-
raddir heyrðust um ástand ætis fyr-
ir lax í hafi. Aðspurður sagði Sturla
þá félaga ekki hafa orðið vara við
slíka örlaxa. „Smálaxinn er mjög vel
á sig kominn líka. Það komu
kannski einn eða tveir hálf horaðir
fjögurra til fimm pundarar en ann-
ars voru þetta 65-70 sentímetra
sexpundarar,“ sagði Sturla og hélt
áfram. „Með fullri virðingu fyrir öll-
um ám þá er þetta bara Áin með
stóru á-i. Ég öfunda alla sem eiga
eftir að prófa hana.“
„Þetta bara getur
ekki verið fallegra“
60 laxa holl úr Hofsá í norðaustanátt og kulda „Öfunda
alla sem eiga eftir að prófa hana“ Ekkert varir við örlaxa
Glæsilegur Sigurður Garðarsson með stórglæsilegan 92 sentímetra hæng sem fékkst í Þvottalækjarstreng í Hofsá.
EKKI voru dónalegar kræsing-
arnar sem 14 ára krakkar úr
Frostaskjóli seldu á kökubasar á
Lækjartorgi í gær til styrktar Fjöl-
skylduhjálp Íslands. Rann heima-
bakað góðgæti á borð við pönnu-
kökur, kanilsnúða, skúffuköku,
múffur og fleira út til vegfarenda.
Hugmyndin að basarnum kviknaði
þegar krakkarnir ræddu sín á milli
hvað þeir gætu gert til þess að auka
samfélagslega þátttöku sína.
Góðgæti selt
fyrir góðan
málstað
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
www.svfr.is – Sími 568 6050
Úrval veiðileyfa…
laxveiði
silungsveiði
…fyrir alla