Morgunblaðið - 16.07.2009, Side 15
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
Skemmtileg sýning á hljóðfærum í
eigu nokkurra „gamalla refa“ í tón-
listarbransanum í höfuðstað Norður-
lands hefur verið opnuð á Glerártorgi
og þar spila þeir félagar á föstudög-
um og laugardögum fyrir gesti. Nán-
ar um þetta síðar.
Illu er bestu aflokið: Veðrið var ótrú-
lega gott á Akureyri meðan á Lands-
móti UMFÍ stóð, eins og frægt er
orðið. Frá því mótinu lauk hefur verið
kalt og varla sést til sólar. Við hefðum
átta að monta okkur meira...
Hljóðmengun í Richardshúsi á Hjalt-
eyri var, í skýrslu sem fyrirtækið Hé-
log á Akureyri vann fyrir Arnarnes-
hrepp í vor, rakin til starfsemi
Norðurorku, á staðnum. Norðurorka
hefur nú mótmælt niðurstöðunni
harðlega á heimasíðu fyrirtækisins.
Ekkert hefur komið fram sem sýnir
fram á að hljóð þetta stafi af vatns-
vinnslu Norðurorku hf., segir í yfir-
lýsingu fyrirtækisins, enda hafi raf-
magnið verið tekið af Hjalteyrinni og
öllu nágrenni, þ. á m. dælustöðvum
Norðurorku 10. júní í fyrra án þess að
hljóðið hyrfi. „Þetta eitt og sér sýnir
að hljóðið er ekki til komið vegna raf-
áhrifa.“
Þess utan vekur það sérstaka athygli,
segir í yfirlýsingu Norðurorku, „að
bæði forsvarsmenn Arnarneshrepps
og framkvæmdastjóri Héloga hafa
beint spjótum sínum að Norðurorku
hf. sem þó á ekki og rekur ekki raf-
orkudreifikerfi í Arnarneshreppi og
er því ekki ábyrg fyrir kerfinu sem
slíku.“
„Norðurorka hf. mun ekki aðhafast
frekar í þessu máli enda hefur þegar
þurft að eyða allt of miklum tíma og
fjármunum í að hrekja ómaklegar
árásir á hendur fyrirtækinu án þess
að nokkru sinni væri snefill af sönn-
unum í þeim málflutningi.“
Ferðalöngum á Akureyri býðst í
þessum mánuði og þeim næsta að
kynnast bænum í sérstökum stræt-
isvagni. Stoppað er á 12 stöðum í
bænum, hver hringur tekur 45 mín-
útur, og fargjaldið er 500 kall. Hægt
verður að stíga frá borði og koma aft-
ur uppí á hvaða stoppistöð sem er.
Verkefnið, City Bus Sightseeting, er
á vegum Akureyrarstofu og einkum
ætlað farþegum skemmtiferðaskipa
sem koma til bæjarins. Vagninn verð-
ur á ferðinni frá klukkan 9 til 1, þá
daga sem skip eru í höfn.
Fönksveitin Jagúar leikur á Græna
hattinum annað kvöld.
Ragnheiður Gröndal kemur svo fram
ásamt þjóðlagasveit á hattinum á
laugardagskvöldið. Með Ragnheiði
leika Guðmundur Pétursson á gítar,
Haukur Gröndal á klarínett og Birgir
Baldursson á slagverk.
Starfsfólk Lundarskóla hefur beint
þeim tilmælum til ráðamanna bæj-
arins að leita leiða til að tryggja
örugga leið gangandi og hjólandi veg-
farenda, undir eða yfir Miðhúsabraut-
ina norðvestan við Bónus, inn á
göngustíg austan við golfvöllinn.
Nemendur og starfsfólk Lundarskóla
fengu á vordögum úthlutað reit í
Naustaborgum sem nota á sem úti-
skólastofu á næstu árum.
Skipulagðar ferðir með bátnum Húna
II yfir sumartímann njóta mikilla vin-
sælda. Nú hefur Eyfirski söguhring-
urinn; bæst við, fjögurra tíma ferð á
fimmtudögum. Siglt er til Hjalteyrar
þar sem tekið er á móti fólki með leið-
sögn heimamanns. Næsta ferð er í
dag kl. 16.30.
Stoppað er í klukkustund á Hjalteyri
en síðan ekið áleiðis til Akureyrar og
fólk frætt um athyglisverða sögustaði
á leiðinni. Áð er í hálfa klukkustund á
Möðruvöllum þar sem heimamenn
taka á móti hópnum, sýna honum
kirkjuna og fræða hann um sögu stað-
arins.
Margt stendur tónlistarunnendum til
boða í bænum þessa dagana eins og
venjulega. Áður er minnst á Græna
hattinn en vert er að geta þess að í
Deiglunni verður í kvöld – á Heitum
fimmtudegi – Dúó Edda Lár gít-
arleikara og Andreu Gylfadóttur
söngkonu.
Næsta þriðjudag kemur Guðrún
Gunnarsdóttir með hljómsveit og flyt-
ur lög og ljóð sænska vísnaskáldsins
Cornelis Vreeswijk á Græna hatt-
inum.
ÁTónlistarhlaðborði Listasumars í
hádeginu á morgun verður boðið upp
á þýska og franska ljóðasöngva eftir
Haydn, Brahms og Mahler. Flytj-
endur eru þýsku listamennirnir
Claudia Kunz, sópran og píanóleik-
arinn Ulrich Eisenlohr.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hávaði Richardshús á Hjalteyri
Úr bæjarlífinu
Reinhold Richter sendir þætt-inum kveðju: „Vinur minn Frið-
þjófur Johnson er magnaður flugu-
veiðimaður. Hann renndi um daginn
fyrir lax en laxinn var tregur. Hins-
vegar stakk sér kría á fluguna sem
Friðþjófur landaði með tilþrifum og
náði að sleppa óskaddaðri. Hann
hafði á orði að hann hefði náð „bir-
die“ sem ku vera golfaramál. Ég
sagði honum að hann næði sennilega
„skolla“ í næsta veiðitúr. Golfarar
nota sem sagt fugl, örn, skolla og
skramba yfir mismörg högg undir
eða yfir svokölluðu „pari“ sem er
fyrirfram áætlaður höggfjöldi golf-
brautar. Uppúr okkar hugleiðingum
og hlátrasköllum sem spunnust af
þessari ágætu veiðisögu fæddist
þessi vísa:
Friðþjófur egndi Kríu krók
kastaði út í skilin
Skramba, Örn og Skolla tók
skammt fyrir neðan hylinn.“
Stefán Friðbjarnarson sendir vísu
með sumarkveðjum:
Fallvölt gerast vinstri vé:
Verjast kappar slyngir.
Eins og hákarl ESB
eðalgrænum kyngir!
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af skolla, kríu og ESB
Krónan
Gildir 16.-19. júlí verð nú áður mælie. verð
Lambalæri, kryddað ...................... 1.189 1.798 1.189 kr. kg
Grísakótilettur............................... 749 1.498 749 kr. kg
Danskar grísalundir ....................... 1.299 2.598 1.299 kr. kg
Laxaflök, beinhreinsuð .................. 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Krónu kjúklingabringur, magnkaup . 1.498 2.215 1.498 kr. kg
Móa læri, krydduð......................... 598 865 598 kr. kg
Grillborgarar með brauði, 4 stk....... 499 598 499 kr. pk.
Ísl matvæli, ýsuflök með roði.......... 699 699 699 kr. kg
Ch.Town Lasagne 1kg.................... 799 998 799 kr. kg
Krónu appelsínusafi, ferskur .......... 199 199 199 kr. stk.
Bónus
Gildir 16.-19. júlí verð nú áður mælie. verð
Bónus kryddl. grísalærisneiðar ....... 898 998 898 kr. kg
Ali ferskt grísagúllas ...................... 898 1.298 898 kr. kg
Íslandsnaut grill-nautakótilettur ...... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Myllu samlokubrauð, 770 g ........... 159 259 206 kr. kg
Bónus nýbakaðir kleinuhringir ........ 198 229 99 kr. stk.
Bónus kleinur, 6 stk. ..................... 298 349 50 kr. stk.
Myllu vínarterta ............................. 298 0 298 kr. stk.
Pepsi og Pepsi Max, 500 ml........... 69 89 138 kr. ltr
Appelsín í dós, 500 ml. ................. 69 89 138 kr. ltr
Bónus hamborgarabrauð, 4 stk. ..... 120 129 30 kr. stk.
Fjarðarkaup
Gildir 16.-18. júlí verð nú áður mælie. verð
Lambalærisneiðar 1.fl (kjötborð) .... 1.545 1.798 1.545 kr. kg
Svínalundir (kjötborð) ................... 1.498 2.198 1.498 kr. kg
Hamborgarar 115 gr. .................... 298 398 298 kr. kg
Móa kjúklingaleggir ....................... 569 949 569 kr. kg
Móa kjúklingavængir ..................... 285 475 285 kr. kg
SS Rauðvínslegið lambalæri .......... 1.798 2.248 1.798 kr. kg
FK grill-lambalærisneiðar............... 1.897 2.476 1.897 kr. kg
Ali Spare ribs................................ 1.064 1.418 1.064 kr. kg
Ali jurtakryddaðar svínakótilettur .... 1.574 2.098 1.574 kr. kg
Hagkaup
Gildir 16.-19. júlí verð nú áður mælie. verð
Kjúklingaleggir, marineraðir............ 569 949 569 kr. kg
Holta kjúklingalæri m/legg, bbq..... 623 959 623 kr. kg
Holta kjúklingalæri m/legg ............ 623 959 623 kr. kg
Jensens svínarif, 750 g.................. 1.599 2.399 1.599 kr. stk.
Ferskur kjúklingur, leggir ................ 584 898 584 kr. kg
Valinn stór humar, 1kg................... 2.999 3.398 2.999 kr. pk.
Frón súkkulaði, kósý, 200 g ........... 199 256 199 kr. stk.
Baguette – hvítlauksosta ............... 249 419 249 kr. stk.
Hnetuvínarbrauð – lítil, 4 stk. ......... 269 419 269 kr. pk.
Himnest spelt, finmalað (Sollu)...... 559 669 559 kr. stk.
Nóatún
Gildir 16.-19. júlí verð nú áður mælie. verð
Grísarifjur, Spare ribs .................... 325 649 325 kr. kg
Lambafille m/fiturönd ................... 2.273 3.998 2.273 kr. kg
Ungnautaborgari, 120 g. ............... 179 249 179 kr. stk.
Laxaflök, krydduð.......................... 1.480 1.698 1.480 kr. kg
Nóatúns þurrkr. lambalæri ............. 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Íslensk Matvæli kjúklingur, heill...... 639 989 639 kr. kg
Ungnauta Rib eye ......................... 2.998 2.998 2.998 kr. kg
ÍM kjúklingaleggir, Texaskryddaðir ... 659 949 659 kr. kg
Toscana-brauð.............................. 249 398 249 kr. stk.
Pepsi Max 2 l................................ 149 197 75 kr. l.
Þín Verslun
Gildir 16.-22. júlí verð nú áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingabringur, úrb. .......... 1.724 2.873 1.724 kr. kg
Myllu Orkubrauð 500 g.................. 298 369 298 kr. pk.
Myllu Kryddkaka ........................... 489 759 489 kr. pk.
Haribo BBQ Sykurpúðar 300 g ....... 379 598 1.264 kr. kg
Merrild Púðakaffi 125 g................. 529 649 4.232 kr. kg
Capri Sonne djús, villiberja, 330 g.. 149 198 452 kr. kg
Hunt’s BBQ grillsósa ..................... 298 425 487 kr. kg
Philadelphia rjómaostur, 200 g ...... 425 498 2.125 kr. kg
Helgartilboð
Grísakjöt á lægra verði
Hinn forni Gásakaup-staður við Hörgárósa íEyjafirði vaknar til lífs-ins um helgina þegar
miðaldadagar verða haldnir þar
fjórða árið í röð. Yfirskriftin er
Ferð inn í fortíðina og „bæjarstjór-
inn“ að Gásum, Haraldur Ingi Har-
aldsson, á sér þann draum að sú
fortíð lengist úr einni helgi í allt ár-
ið; verði að ævarandi nútíð.
Gásir voru helsti verslunarstaður
á Norðurlandi á miðöldum og
hvergi hérlendis eru varðveittar
jafnmiklar mannvistarleifar frá
verslunarstað þess tíma.
Allt sem eðlilegast
Fjöldi fólks hefur lagt leið sína á
staðinn á miðaldadögum undanfarin
ár og á Haraldur Ingi síst von á
minni umferð að þessu sinni. Nú
eru dagarnir fjórir en hafa hingað
til verið tveir. Opið er á laugardag
og sunnudag frá kl. 11 til 17 og síð-
an á mánudag og þriðjudag kl. 12 til
16.
Gásir eru 11 kílómetra norðan við
Akureyri. „Við erum í raun ekki að
búa neitt til, hér er allt eins og það
á að vera, samkvæmt fornsög-
unum,“ segir Haraldur. „Passað er
upp á að allt sé sem eðlilegast.“
Hann segir að kjarni þess fólks
sem komi fram á miðaldadögunum
sé miðaldahópurinn svokallaði;
hjónin Beato Stormo og Helgi Þórs-
son úr Eyjafjarðarsveit og fleiri.
Miðaldahandverks- og iðn-
aðarmenn verða að störfum í Gása-
kaupstað og hægt verður að gera
kaup við „slynga Gásakaupmenn“
eins og Haraldur orðar það. Boðið
verður upp á leikþætti þar sem
kastast í kekki og gestir geta tekið
þátt í ýmsum atriðum; t.d. fengið að
skjóta af miðaldaboga, slöngvuvað
og taka þátt í knattleikum. Þá mun
Gásavölva spá í framtíðina, brenni-
steinn verður hreinsaður og bókfell
unnið.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur og
gildir alla dagana. Börn 13 ára og
yngri greiða 250 krónur en allir
þeir sem eru minni en miðaldasverð
fá frítt inn!
Metnaðarfull framtíðaráform
Haraldur Ingi segir framtíðar-
áform um Gásakaupstað mjög
metnaðarfull. „Svona staðir eru til
erlendis og hafa gengið gríðarlega
vel, árum saman. Við erum sann-
færð um að geta komið hér upp
stað þar sem fjöldi fólks getur feng-
ið atvinnu og skapað gríðarleg
margfeldisáhrif í Eyjafirði.“
Ein hugmyndin er sú að opna
miðaldaveitingastað og einnig að
gefa fólki tækifæri til þess að gista
við miðaldaaðstæður. skapti@mbl.is
Að Gásum Sparibúnir gestir á miðaldamarkaðnum á gamla verslunarstaðnum að Gásum við Hörgárósa í fyrra.
Gásakaupstaður hinn
forni vaknar til lífsins
Allir sem eru minni en miðaldasverð fá frítt inn á svæðið!
Í HNOTSKURN
»Þátttakendur á mið-aldadögum nú koma m.a.
frá Akureyri, Djúpavogi,
Hafnarfirði, Akranesi, Þing-
eyri, Búðardal og Danmörku.
Þaðan koma 15 en Gásakaup-
staður hefur átt samskipti við
miðaldasetrið í Falster.