Morgunblaðið - 16.07.2009, Page 18

Morgunblaðið - 16.07.2009, Page 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009 EKKERT hefur breyst í pólitík og til- finningum í sjö hundruð fjörutíu og sjö ár. Tveir öfl- ugustu stjórn- málamenn þjóð- arinnar, annar uppi á þrettándu öld, hinn uppi á tuttugustu og fyrstu öldinni, hugsa eins og velja að fara eins að til að halda völdum. Gissur var langþreyttur á erjum og ill- deilum við Sturlungana sem sátu um líf hans og yfirráð í landinu. Landið var þá vegna ófriðar að hverfa inn í kreppu og versnandi lífskjör. Gissur náði völdum með því að selja Ísland Noregi á hönd. Þar með var friður tryggður með vopnuðu valdi konungs, ef svo bar undir. Gamli sáttmáli varð til og festi Ísland í fjötra í sjö myrkar aldir. Ég sem þetta skrifa hef fyrir löngu fyrirgefið Gissuri frænda mínum glópskuna þótt dýrkeypt væri. Fræðimenn hafa líka haldið því fram að Gamli sáttmáli hafi verið gerður með þeim rökum að hægt var að vefja ofan af honum og snúa á ný til sjálfstæðis þjóðarinnar. Jón Sigurðsson forseti fann leið- ina og vann áfangasigra einn af öðrum, sem lauk svo með fulln- aðarsigri á Þingvöllum 1944. Lýð- veldið var stofnað eftir þjóð- aratkvæðagreiðslu sem nú má ekki nefna þegar lýðveldið er sett á uppboðsmarkað að þjóðinni for- spurðri. Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylkingin vilja engar tafir eða samtöl við þessa þjóð sína, lýðræð- ið telur hún nú til bölvunar. Steingrímur J. fellur í þá gryfju flokksræðisins að handjárna þing- menn sína og nauðga þeim til að fara gegn eigin sannfæringu og ályktunum flokksins. Steingrímsþáttur hefst Steingrímur Sigfússon er vel máli farinn og ræðumaður góður eins og Gissur Þorvaldsson. Ekki hefur Steingrím skort hugsjónir og baráttuþrek. Enginn trúði því að hann gæti tekið u-beygju og sagt allt annað í dag en í gær. Engum datt í hug að þessi kjarnyrtasti stjórnmálamaður samtímans gerð- ist mildur og myndi bregða sér í gervi klækjarefsins, til þess töldum við flest að hann væri of heið- arlegur og stefnufastur. Stein- grímur var að vísu orðinn lang- þjáður af völdum Sturlunga samtímans, sem eru sjálfstæðis- menn. Þeir hafa ráðið hér lögum og lofum í hátt í átján ár með stuðningi kratanna fyrst, svo okkar framsóknarmanna og undir lokin með Samfylkingunni. Hann þarf eins og Gissur að tryggja sér póli- tískt land og framtíðarfrið. Samfylkingin er að hans mati eini flokkurinn sem það getur stærðar sinnar vegna og víða falla skoðanir saman, þótt hyldýpisgjár skilji þessa flokka að á mörgum sviðum. Steingrímur metur það svo að best sé að éta Sam- fylkingargrautinn þótt saltur sé og það lætur hann sitt fólk gera. Hann tók við Íslandi föllnu úr þrotabúi sem Samfylkingin sat í. Hann reisti ekki kröf- ur á hendur Bretum sem lýstu Ísland gjaldþrota og beittu okkur lögum sem voru sett stríðsglæpamönn- um til höfuðs. Evrópa öll lokaði á landið okkar, enda ann- ar valdamesti maður heimsins, Gordon Brown, sem sagði það gjaldþrota. Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn er framhönd Evrópusam- bandsins og heldur okkur í dýfing- arskálinni. Icesave-málið er versta mál Ís- landssögunnar og verður dæmt sem slíkt í framtíðinni af umheim- inum. Þar er dvergvaxin varnar- laus þjóð að taka á sig dráps- klyfjar sem Evrópusambands- löggjöfin og EES-samningurinn skuldbundu okkur ekki til að gera. Sjálfstæðisflokkurinn laut í gras í þessu máli, og öll viðbrögð voru fálmkennd og marklaus af hálfu þáverandi ríkisstjórnar. Það verð- ur svo hlutskipti Steingríms Sig- fússonar og Vinstri grænna að lög- leiða þessa nauðasamninga og festa þar með sjö mögur ár ofan á önnur sjö mögur ár. Hvers vegna fellst Steingrímur Sigfússon á þetta? Það hlýtur að liggja fiskur undir steini. Evrópusambandið var það Það liggur fiskur undir steini, Samfylkingin vill í Evrópusam- bandið og ekkert má gera sem veldur ófriði. Að VG selji skýra og afdráttarlausa stefnu gegn aðild- arumsókn og gegn aðild fyrir völd minnir enn og aftur á Gissur Þor- valdsson á hans Sturlungaöld. Hver er samningsstaða Íslendinga í Brussel nú? Að mínu mati sér- lega bágborin vegna efnahags- hrunsins þar og hér og sérstaklega hvernig ESB og þess voldugustu þjóðir hafa knésett okkur vegna óreiðu nokkurra útrásardólga, – ég vil ekki kalla þá víkinga sem er of göfugt heiti yfir hetjur í sögunni. Samningsstaðan verður reyndar alltaf bágborin vegna þess að frelsi er fórnað yfir dýrmætum auðlind- um og einstökum svo og sjálfs- ákvörðunarrétti þjóðarinnar. Ís- land ætti nú að horfa á ný í vestur, þess vegna að skoða að taka upp dollara sem gjaldmiðil í framtíð- inni, opna á norðurslóðirnar og segja Evrópusambandinu að sigla sinn sjó. Ég trúi því að frjáls- bornir menn í öllum flokkum sam- eini krafta sína um framtíðarsýn, þar sem reisn og djörfung ræður ferðinni. Að Samfylkingu und- irlægjuháttarins ljúki með nýrri þjóðarsamstöðu um annað en Evr- ópusambandið við þessar verstu aðstæður. Gamli Sáttmáli Gissurar var að því leyti betri að undan honum var hægt að komast, undan Evrópu- sambandinu kemst enginn. Það mun enginn í framtíðinni fyrirgefa Steingrími að hafa fyrstur hleypt Samfylkingunni áfram með málið og þar með sett það á dagskrá ís- lenskra stjórnmála. Eftir Guðna Ágústsson Guðni Ágústsson » Það mun enginn fyr- irgefa Steingrími að hafa fyrstur hleypt Samfylkingunni áfram með málið og þar með sett það á dagskrá ís- lenskra stjórnmála … Höfundur er fyrrverandi alþing- ismaður og landbúnaðarráðherra. Gissur jarl í Steingrímshöfði „MAÐUR sér það bara á honum þegar maður talar við hann að hann hefur ekkert í þetta að gera, ekki nokkurn skapaðan hlut. Það sem meira er – enginn samninga- nefndarmannanna, held ég.“ Þetta segir Þór Saari alþing- ismaður um mig og samninganefnd mína í Icesave- málinu. Fyrirsögnin er: Svavar full- komlega vanhæfur. Af þessu tilefni skal þetta sagt: Ég er vanur að taka við svona kveð- skap í gegnum langa tíð í stjórn- málum áður en ég varð sendiherra. Síðustu árin sem sendiherra hef ég verið laus við svona orðaleppa en neita því ekki að ég bjó mig undir það er ég tók við formennsku í Ice- save-nefndinni að ég gæti átt von á ýmsu. Þoli það vel þótt því sé reynd- ar ekki að neita að ég finn að skráp- urinn er aðeins þynnri en hann var, sérstaklega þegar reynt er að nudda öðrum upp úr því sem ég á einn. En hitt skal sagt: Ég mótmæli af öllum kröftum atlögu Þórs Saari að samn- inganefnd minni og samstarfsmönnum. Þar er hæfur maður í hverju rúmi og enginn þeirra hefði mátt vera fjarri vettvangi. Hið sama segi ég um þau sem störfuðu næst nefndinni allan tímann. Þetta fólk eru nefnd- armennirnir Indriði H. Þorláksson, þá settur ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu, Mart- in Eyjólfsson, sviðsstjóri í utanrík- isráðuneytinu, Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, Áslaug Árnadóttir, vararáðuneyt- isstjóri í viðskiptaráðuneytinu, og Sturla Pálsson, yfirmaður al- þjóðasviðs Seðlabankans. Ég nefni líka hér til sögu lögfræðingana Sess- elju Sigurðardóttur og Einar Gunn- arsson og svo síðast en ekki síst doktorsnema í vísindaheimspeki, Hugin Frey Þorsteinsson, minn nán- asta samstarfsmann. Ég heiti á fólk þótt það vilji sækja mál sitt og verja af hörku að láta þetta öfluga lið sem ég taldi upp í friði. Vandinn er hins vegar sá að hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi. Það er erfitt að svara svona áburði eins og þeim er fram kemur í viðtali mbl.is við Þór Saari, ekki síst þegar hann bætir við orðunum „held ég“. Í svona máli eiga alþingismenn nefnilega helst ekki að fullyrða það sem þeir halda. Bara það sem þeir vita. Alþingismanninum virðist vera í nöp við mig persónulega. Mér er ekki í nöp við hann. Hann er ósam- mála mér um Icesave-samninginn. Sú afstaða byggist vonandi á því sem hann veit en ekki því sem hann held- ur. Hann boðaði ný vinnubrögð á al- þingi. Persónulegt skítkast er ekki beinlínis frumlegt. Eftir Svavar Gestsson »Ég heiti á fólk þótt það vilji sækja mál sitt og verja af hörku að láta þetta öfluga lið sem ég taldi upp í friði. Svavar Gestsson Höfundur var formaður Icesave-nefndarinnar. Ekki beinlínis frumlegt Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 40 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. júlí 2009, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. júlí 2009 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. júlí 2009, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 40 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. júlí 2009. Tollstjóri Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.