Morgunblaðið - 16.07.2009, Side 20

Morgunblaðið - 16.07.2009, Side 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009 ✝ Stella Stef-ánsdóttir fæddist í Reykjavík 20. maí 1932 og lést á Land- spítala, Hringbraut, á gjörgæslu, 2. júlí 2009. Hún var dóttir hjónanna Jónu Bjarn- eyjar Albertsdóttur f. 12.12. 1904 og Stef- áns Magnúsar Þor- kelssonar f. 15.5. 1904, vörubílstjóra hjá Þrótti. Móðurfor- eldrar Stellu voru Sæmundína Messíana Sæmunds- dóttir og Albert Brynjólfsson skip- stjóri á Ísafirði. Föðurforeldrar Stellu voru Petrína Guðmunds- dóttir og Þorkell Guðmundsson meðhjálpari á Þúfum í Vatnsfirði. Systir Stellu fædd andvana 1930. Bræður Stellu eru: Albert stýri- maður f. 22.9. 1934 og Pétur skrif- stofumaður f. 18.11. 1938. Albert er kvæntur Ásu Ottós- dóttur og eiga þau 3 dætur, El- ísabetu, Auði og Hafdísi Björk. Pétur var kvæntur Erlu Karels- dóttur og eiga þau 3 syni, Karel, Stefán og Víði. Þau skildu. Pétur er kvæntur Önnu R. Vign- ir og eiga þau 2 dætur, Karitas og Tinnu. Stella giftist Karli G. Ingi- hennar sonum í föðurstað, Júlíusi Þór Halldórssyni og Vilhjálmi Þór Þórusyni. 4) Guðbjörg Edda f. 14.7. 1959 er gift Gunnari Sigurðs- syni og eiga þau a) Árnýju Stellu og b) Arndísi Jónu og hefur Gunn- ar gengið c) Karli Inga Eyjólfssyni syni Eddu í föðurstað. Dóttir Karls og Klöru Haralds- dóttur er 5) Sólveig Gyða Guð- mundsdóttir 17.7. 1946 og er hún gift Gunnari Ólafssyni og eiga þau a) Ingu Maríu gift Heiðari Birni Thorleifssyni og eiga þau 2 börn og b) Gunnar Óla og hefur Gunnar gengið c) Guðmundi Frey Magnúsi Gunnarssyni, kvæntan Camilu Abad, syni Sólveigar í föður stað. Barnabarnabörnin eru 18 og tvö væntanleg. Stella ólst upp í vest- urbænum. Hún var fiskverk- unarkona í 40 ár. Hún tók stúd- entspróf frá Öldungardeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1980 meðfram fullri vinnu í fiski. Hún gekk til liðs við Alþýðu- bandalagið og liðsinnti trún- aðarstörfum fyrir verkalýðsfélagið Framsókn. Hún var í fyrsta ár- ganginum sem tók próf úr Fisk- vinnsluskólanum og var með ágæt- iseinkunn. Hún var mjög jafnréttissinnuð og var m.a. í framkvæmdanefnd Kvennafrídags- ins 1975. Hún hætti að vinna hjá HB Granda árið 2000. Útförin fer fram í Fossvogs- kirkju í dag, 16. júlí, og hefst at- höfnin klukkan 15. marssyni verkamanni f. 20.9. 1925 þann 19. september 1953. Móðurforeldrar Karls voru Jórunn Álfsdóttir og Ingimar K. Jónsson sjómaður. Stella og Karl eignuðust 4 börn: 1) Jóna f. 11.7. 1950 var gift Þórhalli L. Stígs- syni látinn 2002 og eiga þau 2 syni: a) Stíg Vilberg kvæntur Elvu Rós Hauks- dóttur og eiga þau 2 börn og b) Albert Þór. Þórhallur átti með Ingibjörgu Guðnadóttur a) Arinbjörn, kvæntur Björgu Al- exandersdóttur og eiga þau 2 börn og b) Guðna Ragnar, kvæntur Júl- íönu T. Jónsdóttur og eiga þau 3 syni. 2) Stefanía f. 25.2. 1953 gift Jóhannesi G. Péturssyni og eiga þau 2 syni: a) Jakob Pétur og b) Bjarna Magnús, kvæntur Sigrúnu Evu Grétarsdóttur 3) Stefán Þor- kell f. 15.5. 1954 var kvæntur Haf- dísi E. Harðadóttur og eiga þau 2 börn: a) Stefán Bjart og b) Helgu Sonju. Þau skildu. Stefán á c) Ingi- björgu með Björgu Jónsdóttur og d) Davíð með Önnu Maríu Har- aldsdóttur, e) Stefaníu K.S. með Þóru Vilhjálmsdóttur og gengið Elsku mamma, hetjan mín. Mér er ljúft og skylt að minnast þín. Nú hefur þú yfirgefið okkur hérna megin. Ég get þakkað Guði fyrir að hafa fengið samleið með þér í 59 ár. Þú ert ein af hvunndagshetjum þessarar þjóðar. Konan sem bar uppi heimilið, vannst úti og komst fjórum börnum til manns, hafðir heitan mat tvisvar á dag og bakaðir a.m.k. einu sinni í viku. Þú varst drengskaparmaður. Allt sem þú sagðir stóðst þú við. Þú varst vinnusöm, einlæg, bóngóð og höfð- ingi heim að sækja. Vinur vina þinna. Þú varst alin upp á Seljavegi 7 í húsi sem afi og bróðir hans byggðu 1930 og þar sem þín fjölskylda og hans áttu heima ásamt móður þeirra, tveimur systrum og barni annarrar og tveir bræður áttu líka heima þar um tíma og börn þeirra. Þið pabbi byrjuðuð búskap með engum efnum en þremur börnum á Njálsgötu, síðan í Gnoðavogi. Keypt- uð svo íbúð ömmu á Seljavegi 7 árið 1981. Þið keyptuð ykkur svo bjarta og fallega íbúð 2003 er ykkur leið vel í á Engihjalla 19. Pabbi dó svo fyrir þremur árum, eftir að þið höfðuð fengið að vera saman í 57 ár. Það var þér mjög erfitt og hefur heilsu þinni verið að hraka síðan. Þú hefur haft svo mikla verki lengi og enginn læknir hefur hlustað á þig. Ég held að læknar á Íslandi haldi að allar konur séu móðursjúkar ef þær kvarta um verki og er það miður. Þú varst ótrúlega vel gerð af Guði. Vel gefin og alltaf með þeim hæstu í barnaskóla. Þú teiknaðir, málaðir, prjónaðir, saumaðir, heklaðir. Þú dóst aldrei ráðalaus og gerðir oft allt úr engu. Tókst stúdentspróf 1980. Tókst þátt í samningagerð fyrir verkakvennafélagið Framsókn í mörg ár. Þú varst mjög pólitísk alla tíð. Þrátt fyrir allt þetta tókst þér að vinna meira en fulla vinnu frá 1962 eða 40 ár í fiskvinnu. Þið pabbi kynntust í Fiskiðjuveri ríkisins er þú varst 15 ára og varð fiskvinnsla þitt ævistarf. En ég vil þakka þér svo margt. Fyrir utan að vera móðir mín varstu líka mín besta vinkona og hefur verið í mörg ár. Er ég varð ekkja hjálpuð- uð þú og pabbi mér ótrúlega mikið og komuð þið til að hjálpa mér á hverjum degi í marga mánuði. Við áttum margar góðir stundir saman og ferðuðumst heilmikið, s.s. til Danmerkur, Spánar, Írlands, Englands, Svíþjóðar og Kanada. Auk þess fórum við yfirleitt á hverju ári í sumarbústaðaferðir hér innan- lands auk hausts og vetrar með saumaklúbbnum okkar. Er mikið tekið af þeim saumaklúbbi, því þið eruð tvær af fjórum farnar á hálfu ári. Þetta ár var förinni heitið til Eng- lands en þú treystir þér alls ekki að fara og síðan var draumaferðin okk- ar um Vestfirðina er ég fór fyrir okk- ur og trúi ég því að þú hafir farið með mér þangað. Þvílík blíða og fegurð sem var engu líkt. Að sjá þínar rætur þar sem þínir forfeður voru fæddir og uppaldir – og að hitta ættingja þína sem þar búa. En margir af þinni kynslóð hafa verið að kveðja okkur undanfarið, því miður. Þú hefur ávallt reynst mínum drengjum vel og einnig drengjunum hans Þórhalls. Mér finnst sárt að kveðja þig. Þakka þér allt. Sjáumst heilar á ný. Þín ávallt elskandi dóttir, Jóna. Móðir okkar Stella Stefánsdóttir lést eftir velheppnaða hjartaskurð- aðgerð 2. júlí, en nýrun gáfu sig. Elsku mamma, þú vissir að hverju stefndi og kvaddir okkur daginn áð- ur. Minningarnar um þig hrannast upp. Hvað við höfum átt margar góð- ar stundir saman. Það var alltaf gott að leita til þín, þú varst alltaf úrræðagóð og mikill vinur sem stóð eins og klettur upp úr hafinu sem jafnt ungir sem aldnir leituðu til. Þú varst vinamörg enda unnið á fjölmennum vinnustað þar sem þú eignaðist mjög marga góða vini í gegnum tíðina, reyndar margir farn- ir. Það var til siðs þegar við vorum lítil að konurnar í hverfinu komu í kaffi til þín og spjölluðu; þú áttir margar trúnaðarvinkonur þar. Þú varst einstaklega gestrisin og áttir alltaf eitthvað heimabakað með kaffinu. Við skiljum ekki hvernig þú fórst að því að gera allt það sem þú gerðir. Dugnaðurinn var engu líkur og varst alltaf mætt kl. 6.30 á hverjum morgni og vannst mjög oft til kl. 10 á kvöldin og ófáar helgarnar, sem sagt, mættir fyrst af öllum og hættir síðust. Það voru ófáir sem fengu sumarvinnu út á þitt andlit og unn- um við systkinin öll um tíma hjá Bæjarútgerðinni og síðar Granda. Hvað við vorum stolt af þér þegar þú útskrifaðist úr Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð, þá 48 ára, og í meira en 100% vinnu í fiski. Þið pabbi fóruð alltaf á Blönduós einu sinni á sumri og voruð í viku og ferðuðust um landið og höfðuð mjög gaman af. Þá fórum við í margar ógleymanlegar ferðir. Þú annaðist foreldra þína með ást og umhyggju alla tíð og áttu þau ávallt athvarf hjá þér. Þú hjálpaðir líka mikið til með barnabörnin og vildir velferð þeirra sem mesta og tókst þátt í öllu sem við vorum að gera, s.s. olíumálun, teikningu, leirmálun, íkonagerð, bókbandi, bucilla og allskonar handavinnu. Við þökkum Guði fyrir að hafa átt þig fyrir móður. Þín verður sárt saknað. Þín elskandi börn, Stefanía, Stefán, Edda og Jóna. Draumur og vaka renna í eitt og líkaminn verður að engu. Þá andinn úr fjötrunum smýgur og léttur um alheiminn líður, hann sameinast sálum þess lifanda heims og tifar með tímanum fagur og hreinn og umlykur stjörnurnar, kyssir þær sæll; hann er sloppinn úr lifanda lífi. (Á.S.G.) Amma, þar sem ég veit að þú varst búin undir ferðina er þetta ekki eins sárt. Samt mun ég sakna þín. Ég mun sakna pönnukakanna þinna og heita, himneska kakósins sem þú bauðst upp á í öllum veislum. Ég mun sakna þess að heyra af nýjustu bókinni sem þú fékkst eða nýju sögunni sem þú varst að lesa. Ég mun sakna þrjóskunnar þinn- ar og sjálfstæðisins; þú hefur alltaf verið trausti kletturinn í lífi mínu. Ég mun sakna þess skjóls sem heimili þitt veitti mér á erfiðum tím- um, hjálpar þinnar og leiðsagnar. Ég veit að sama hvað ég sakna þín mikið kemurðu aldrei aftur. Svo í stað þess að gráta og orga af sorg ætla ég að lifa lífinu eins og ég veit að þú mundir vilja að ég lifði því. Ég mun aldrei gleyma þér, heldur varð- veita minningu þína og leita skjóls í henni og styrks, muna orð þín og leiðsagnir og hafa þitt stolta, styrka og sjálfstæða sjálf að fyrirmynd í líf- inu. Ég skal bera nafn þitt með stolti og minnast þín í sjálfri mér. Enn, svona stuttu eftir dauða þinn, er minning þín hulin sársauka og söknuði. En bráðum fennir í sorg- ina og gleðin ein mun lýsa upp allt það sem þú stóðst fyrir. Bráðum munum við öll geta brosað gegnum tárin. Þakka þér fyrir það, að hafa gefið mér minningar til að brosa yfir og verma mér við. Amma, þakka þér fyrir allt. Þín elskandi dótturdóttir, Árný Stella Gunnarsdóttir. Stella Stefánsdóttir  Fleiri minningargreinar um Stellu Stefánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG GÍSLADÓTTIR, Birkihvammi 12, Kópavogi, sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut að kvöldi föstudagsins 10. júlí, verður jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópavogi föstu- daginn 17. júlí kl. 13.00. Þorkell Jónsson, Kristín Þorkelsdóttir, Helgi Óskar Óskarsson, Jón Gísli Þorkelsson, María Höskuldsdóttir, Guðjón Þorkelsson, Kristín Sigurðardóttir, Árni Þorkelsson, Jakobína Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR, Stykkishólmi, lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi föstudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugar- daginn 18. júlí kl. 14.00. Ellert Kristinsson, Jóhanna Bjarnadóttir, Marinó Kristinsson, Margrét Halldórsdóttir, Friðrik S. Kristinsson, Þórdís Helgadóttir, Jón Steinar Kristinsson og fjölskyldur. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FLEMMING HOLM, Hverafold 2, Reykjavík, er látinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 22. júlí kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Jón Hólm, Gréta Jóhannsdóttir, Jakob Hólm, Jórunn G. Hólm, Gunnar Hólm, Lise K. Sörensen, Flemming Þór Hólm, Aðalheiður K. Jurado, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNAR ÞORVALDSSON rafvirki, Eyrarvegi 2, Akureyri, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. júlí kl. 13.30. Guðríður Steindórsdóttir, Hafsteinn Þór Gunnarsson, Andrea Gunnarsdóttir, Sturla Örlygsson, Brynja Gunnarsdóttir, Gunnar Örn Erlingsson, Jóhanna M. E. Matthíasdóttir, Torfi Jónasson, Sunja Gunnarsdóttir, Áskell Geir Birgisson, Þorvaldur Gunnarsson, Hafrún Ösp Ásgrímsdóttir, Gunnar Þorbjörn Gunnarsson, Þorlákur Snær Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Okkar elskulega KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR, Nónvörðu 10 a, Reykjanesbæ, lést mánudaginn 13. júlí. Jarðarförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 22. júlí kl. 13.00. Fyrir hönd vandamanna, Þórður Kristinn Magnússon, Auður Guðlaug Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.