Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
„Að heilsast og
kveðjast. Það er lífsins
saga.“ Við heilsuðumst
í októbermánuði árið
1957. Í veröld sem var og fáir myndu
nú þekkja aftur utan við – ef okkur
gæfist á því kostur, sem aldrei mun
verða. Hópur ungmenna víðsvegar
Guðmundur
Karl Jónsson
✝ Guðmundur KarlJónsson fæddist í
Reykjavík 20. nóv-
ember 1940. Hann
lést á krabbameins-
deild Landspítalans 2.
júlí sl.
Útför Guðmundar
var gerð frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ,
13. júlí sl.
að af landinu. Á vori
lífs okkar. Barnæskan
að baki. Unglingsárin
liðin. Framundan
þroskaárin. Fjarri for-
eldrum og æskuheim-
ili. Undir áhrifum fé-
laga, jafningja – og
umhverfisins, sem
Menntaskólinn á Ak-
ureyri hafði skapað
þeim ungmennum,
sem sóttu frá fjarlæg-
um héruðum þangað
sem jafnvel símasam-
band var takmarkað.
Hver og einn nú orðinn sinnar gæfu
smiður – og sinna félaga.
Sighvatur Björgvinsson.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Gíslína Hlíf Gísla-dóttir, (Sissa),
fæddist á Eyvindar-
stöðum í Blöndudal
11. október 1935.
Hún lést á Dalbæ á
Dalvík þann 6. júlí
2009.
Foreldrar Gíslínu
voru Gísli Jónsson
bóndi, söngstjóri og
organisti, f. 15.5.
1902, d. 7.1. 1937, og
kona hans Guðlaug
Karlesdóttir, f. 27.1.
1904, d. 6.4. 1982.
Gíslína var næstyngst fjögurra
systkina en þau eru Haukur Blön-
dals Gíslason, f. 11.11. 1923, d.
21.7. 2004, Ragnheiður Elsa Gísla-
dóttir, f. 6.11. 1927, d. 23.3. 2009,
Svanhildur Gísladóttir, f. 22.2.
1937, búsett á Akureyri og Lilja
Helgadóttir, f. 4.8. 1946, búsett í
Hafnarfirði.
Langömmubarn Gíslínu er eitt,
Viktor Örn Ragnheiðarson.
Gíslína ólst upp fyrstu ár sín á
Eyvindarstöðum. Eftir lát föður
hennar fluttist fjölskylda Gíslínu
til Akureyrar og síðar til Skálpa-
gerðis í Eyjafirði, en þar sleit hún
barnsskónum. Hún lauk landsprófi
og lagði síðar stund á nám í
Menntaskólanum á Akureyri. Hún
vann hjá Landsímanum á Akureyri
í mörg ár og bjó á Dalvík og Ak-
ureyri með Jóhanni fyrstu hjú-
skaparárin. Árið 1974 fluttu þau
hjón alfarið til Dalvíkur. Þar vann
Gíslína fyrst hjá Pósti og síma, síð-
ar hjá Sparisjóði Svarfdæla og
loks sem fulltrúi sýslumanns Ak-
ureyrar á Dalvík, þar til hún lét af
störfum fyrir aldurssakir. Gíslína
lét til sín taka í félagsmálum og
var áhugamanneskja um stjórn-
mál. Hún starfaði með Lionessum
á Dalvík og var einn af stofn-
félögum Golfklúbbsins Hamars í
Svarfaðardal.
Gíslína verður jarðsungin frá
Dalvíkurkirkju í dag, 16. júlí, og
hefst athöfnin kl. 13.30.
Gíslína giftist eft-
irlifandi eiginmanni
sínum, Jóhanni
Kristni Daníelssyni,
31. desember 1961.
Jóhann er fæddur
18.11. 1927.
Gíslína og Jóhann
eignuðust þrjú börn,
en fyrir átti Gíslína
dreng: 1) Yngvi Örn
Stefánsson, f. 3.4.
1956, maki Ragn-
heiður Elín Ragnars-
dóttir. Barn þeirra
er Theódóra Ýr.
Önnur börn Yngva eru Ragnheið-
ur Hlíf og Atli Már. 2) Anna Guð-
laug, f. 10.11. 1962. Börn hennar
eru Jóhann Björn og Hlíf. 3) Gísli
Már, f. 19.5. 1967. Barn hans er
Mia Líf. Aðalbjörg Kristín f. 8.12.
1971, maki Rúnar Dýrmundur
Bjarnason. Börn þeirra eru Bjarni
Ívar, Ísold Kristín og Gísli Dan.
Það er til gömul kvikmynd af fólk-
inu í Svarfaðardal, annaðhvort á
Þinghúsinu eða einhvers staðar.
Þetta er um 1960. Þarna er Anna
amma í peysufötunum sínum, og
þarna er Daníel afi og allir, og svo er
kona sem sýnist vera komin úr ann-
arri kvikmynd. Hún virðist vera úr
einhverri franskri mynd gerðri eftir
skáldsögu Françoise Sagan eða jafn-
vel einhverri mynd með Audrey
Hepburn. Samt virðist hún eiga
þarna heima. Hún Sissa. Á mótum
hins gamla og nýja. Annars vegar er
gamli tíminn, peysufötin, og hins
vegar nýjasta tískan, og sjöundi ára-
tugurinn var rétt að byrja.
Mér fannst alltaf eins og Sissa til-
heyrði þessum tíma. Sjöunda ára-
tugnum fyrir Bítlana. Þegar bras-
ilíska lagið um stúlkuna frá Ipanema
var svo vinsælt. Sjötta áratugnum
eftir 1955 eða þar um bil. Það var
eins og andblær tímaskeiðsins hefði
tekið sér bólfestu í Sissu og hún
miðlaði honum svo til okkar sem
ekki höfðum upplifað þennan tíma
sökum æsku. Fjölskylda mín bjó
lengst af í Syðra-Garðshorni í Svarf-
aðardal, en Jóhann og Sissa bjuggu
alltaf aðeins nær miðstöðvum heims-
menningarinnar, fyrst á Dalvík og
svo á Akureyri. Það tilheyrði ferðum
inn á Akureyri að heimsækja Jó-
hann og Sissu og börnin þeirra. Þau
bjuggu lengi í Þingvallastræti, og
þegar maður var búinn að fara í Am-
aro með mömmu, í himnaríki sæt-
indanna sem þar fengust, var farið í
Þingvallastrætið. Þar settust Sissa
og mamma yfir kaffibolla og ræddu
um börnin, mennina sína, fjölskyld-
una alla og margt fleira.
Í einhverri af þessum ferðum
áskotnaðist mér mikið dýrmæti: um-
slag með frímerki frá Ástralíu. Sissa
átti systur í Ástralíu og ég var heill-
aður af frímerkinu. Mér var ráðlagt
að ná því af umslaginu með því að
halda því yfir gufu. Það tókst, held
ég, á endanum. Þetta var upphaf frí-
merkjasöfnunar bernsku minnar.
Síðan fluttu þau Jóhann og Sissa
úr íbúðinni við Þingvallastræti og í
raðhúsið í Akurgerðinu. Ég varð að-
eins eldri og áhugamálin í Akureyr-
arferðunum breyttust. Ingvi sonur
Sissu kynnti fyrir mér flugmódel-
smíði og Uriah Heep og var að öðru
leyti eins og stóri bróðir, sem ég átti
ekki því ég var sjálfur stóri bróðir.
Stundum var Ingvi fenginn út í
Svarfaðardal til að aðstoða knatt-
spyrnulið Ungmennafélagsins Þor-
steins Svörfuðar í vonlitlum tilraun-
um þess til að eiga í fullu tré við
önnur lið Eyjafjarðarsýslu, í hrað-
keppni UMSE. Ingvi færði okkur
von um hríð.
Ég fór í menntaskóla og svo suður
á eftir foreldrum mínum, sem fluttu
1976 úr Svarfaðardal. Sambandið
hélst gott. Nú í heimsóknum á
Sunnubrautina á Dalvík. Sissa átti
sérlega fallegt heimili, sem alltaf var
opið gestum að sunnan. Síðast man
ég eftir Sissu þegar við Birna kom-
um norður í tilefni af 120 ára afmæli
Sparisjóðs Svarfdæla. Þá var okkur
boðið að gista á Sunnubrautinni og
hún og Jóhann tóku afar vel á móti
okkur, að venju. Þetta var 2004.
Sissa var glæsileg og góður gestgjafi
og við sátum fram eftir öllum
morgni á spjalli. Minningin er ljúf
eins og allar mínar minningar um
hana.
Og nú er hún farin frá okkur, á
miðju sumri.
Árni Daníel Júlíusson.
Það var á júlíkvöldi eins og þau
gerast fegurst á Íslandi, þegar
kvöldkyrrðin umlykur landið og síð-
degissólin litar fjallatinda gullroðn-
um blæ, að mér barst andlátsfregn
vinkonu minnar Gíslínu Hlífar Gísla-
dóttur, eða Sissu eins og mér er
tamast að kalla hana.
Það hafði verið augljóst vegna
veikinda hennar undanfarið að til
þessarar stundar drægi en þegar að
því kemur fara tilfinningarnar á flug
og kalla fram minningar um liðinn
tíma, sem aldrei verður endurtek-
inn, en mun lifa sem fjársjóður hug-
ans.
Minningin um Sissu er afar góð.
Þar fór glæsileg kona, sem var
traustur vinur vina sinna og bar
mikla umhyggju fyrir fjölskyldu
sinni og vildi öllum vel.
Kunningsskapur okkar og vinátta
fjölskyldna okkar hófst fyrir rúm-
lega þrjátíu árum, þegar við bjugg-
um hlið við hlið í Mímisveginum. Þú
heimskonan mótaðir mig unga og
óreynda á marga vegu. Ósjaldan
skrapp ég yfir til að fá ráð hjá þér
varðandi í hverju ég ætti nú að vera
við hin ýmsu tækifæri, því meiri
smekkmanneskju og klassakonu
þekkti ég ekki, ávallt svo glæsileg og
vel til höfð.
Umhyggja þín og elska í minn
garð er ómetanleg, og jafnvel þegar
að þú varst orðin mjög veik og við
fórum í göngutúr, hnepptir þú káp-
una mína upp í háls, þannig að mér
yrði nú ekki kalt. Hefði sennilega átt
að vera með einhvern fallegan klút!
Þú varst afskaplega fróð og víð-
lesin og ósjaldan var setið og mál-
efnin rædd fram og aftur. Veislurn-
ar þínar margrómuðu, spilakvöldin,
göngutúrarnir, þetta er allt í minn-
ingaflórunni ásamt svo miklu miklu
fleiru.
Sagt er að umhverfisaðstæður
greypist í huga fólks við fréttir af ör-
lagaríkum atburðum og vissulega
var andlátsfregn Sissu örlagavaldur
í mínu jarðneska lífi. Endalok á ein-
staklega ánægjulegri samfylgd sem
lifa mun í minningunni.
Það er gott að tengja minningu
um Sissu við þær umhverfisaðstæð-
ur sem lýst var í upphafi þessara
minningabrota. Minning sem er um-
vafin fegurð, glæsileika og kærleika.
Kallið er komið – hvíldin er fengin
frá erfiðum sjúkdómi. Hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Við Valdimar sendum vini okkar
Jóhanni Dan okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur, svo og börnum þeirra
Sissu og Jóhanns ásamt fjölskyld-
um.
Megi góður Guð blessa minningu
Sissu minnar og styrkja aðstand-
endur við fráfall hennar.
Þín vinkona,
Rósa.
Gíslína Hlíf Gísladóttir
Fleiri minningargreinar um Gísl-
ínu Hlíf Gísladóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RANNVEIG JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, fimmtu-
daginn 16. júlí kl. 13.00.
Guðlaugur Bergmundsson, María K. Jónsdóttir,
Jón Bergmundsson, Guðrún Þ. Ingimundardóttir,
Hlöðver Bergmundsson, Jóhanna S. Óskarsdóttir,
Ingibjörg Bergmundsdóttir, Harald B. Alfreðsson,
Katrín Björk Bergmundsdóttir, Egill Grímsson,
Sigrún Berglind Bergmundsdóttir, Helgi B. Thoroddsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur ómetanlega vináttu, hlýhug og samúð
við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa, langafa, bróður og tengdasonar,
REINHARDTS ÁGÚSTS REINHARDTSSONAR,
Grenibyggð 27,
Mosfellsbæ.
Sigrún Linda Kvaran,
Halldór Reinhardtsson, Þóranna Andrésdóttir,
Linda Björk Kvaran, Höskuldur Björnsson,
Kolbrún Kvaran, Tómas Þráinsson,
barnabörn og barnabarnabörn,
Kristján G. Reinhardtsson,
Önundur Þ. Reinhardsson,
Erna G. Reinhardtsdóttir,
Pauline J. Karlsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SVEINBORG LÁRUSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Sjafnargötu 10,
lést fimmtudaginn 9. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi
föstudaginn 17. júlí kl. 13.00.
Bjarni Sigfússon, Guðrún Á. Magnúsdóttir,
Kristján Sigfússon, Guðfinna Inga Guðmundsdóttir,
Ingvar A. Sigfússon, Ingibjörg Bjartmarz,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskulega móðir okkar, dóttir mín, systir, mágkona
og frænka,
ELÍN SNORRADÓTTIR,
Maríubakka 20,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 27. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Snorri Sigurbjörnsson,
Sigurður Sigurbjörnsson,
Magnús Sigurbjörnsson,
Soffía Júlíusdóttir,
Sigríður Snorradóttir, Þorsteinn Sigurðsson,
Eygló Einarsdóttir,
Einar, Soffía og Vigdís.