Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009 ✝ Hjartans þakkir til allra ættingja og vina sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, ÖNNU FRIÐRIKSDÓTTUR, Þórunnarstræti 127. Sérstakir þakkir til yndislegu nágrannanna, þeirra Erlu og Sigfúsar, og Þormóðs, hjálparhellunnar miklu. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Kristinn Traustason, Gunnlaugur Traustason, Friðrik Gylfi Traustason og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu MARGRÉTAR HELGU GÍSLADÓTTUR frá Hornafirði, Gullsmára 5, Kópavogi. Guðmundur Guðmundsson, Gísli Eysteinn Aðalsteinsson, Jónína Aðalsteinsdóttir, Siggerður Aðalsteinsdóttir, Ingólfur Ásgrímsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Elísabet Einarsdóttir, Árni Guðjón Aðalsteinsson, Matthildur Kristmundsdóttir, Ingi Már Aðalsteinsson, Kristrún Kjartansdóttir, barnabörn og fjölskyldur.  Okkar ástkæra ANNA JÓNSDÓTTIR, Laufhóli, Skagafirði, er látin. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Steingrímur Vilhjálmsson, Gunnlaugur Steingrímsson, Svala Jónsdóttir, Símon R. Steingrímsson, Sigrún Höskuldsdóttir, Vilhjálmur Steingrímsson, Ásdís Garðarsdóttir, Halldór S. Steingrímsson, María Steingrímsdóttir, Kristín S. Steingrímsdóttir, Sigurður Sv. Ingólfsson, Sigurður Steingrímsson, Kristjana Friðriksdóttir, Sigurlaug G. Steingrímsdóttir, Eyjólfur Árnason, Anna H. Steingrímsdóttir, Hafþór Hermannsson, Auður Steingrímsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Eysteinn Steingrímsson, Aldís Axelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Atli Thoroddsen,flugstjóri, fædd- ist 29. maí 1970. Hann lést á 11E, krabbameinslækn- ingadeild Landsspít- alans, að morgni 7. júlí. Foreldrar hans eru Þórunn Christi- ansen og Björn Thoroddsen. Systk- ini hans eru a) Krist- ín María, maki Stein- arr Bragason. Börn þeirra eru Ingi þór, Arngrímur Bragi, Daníel Freyr og Ásgeir Steinn. b) Hrafn, maki Hrönn Hoe Hinriksdóttir. c) Halla, maki Kjartan Pálmason og dóttir þeirra er Þórunn Bríet. d) Helga, maki James Roche. Systk- ini samfeðra eru a) Gunnlaugur og dóttir hans er Birta Sif. b) Gestur og c) Þórdís. Eiginkona Atla er Ásta Hallgrímsdóttir, fædd í Reykjavík. Foreldrar hennar eru Hallgrímur Jónsson flugumsjónarmaður hjá flugfélag- inu Atlanta 1992 og starfaði þar til 1995. Hann kenndi einnig tals- vert fyrir flugskólann Flugtak. Í mars 1995 var hann ráðinn sem flugmaður hjá Flugleiðum. Hann fékk leyfi frá félaginu í nokkra mánuði 2002–3 og flaug fyrir Luxair. Atli varð flugstjóri hjá Flugleiðum 1999 og starfaði sem slíkur þangað til í júlí 2006 þar sem hann þurfti frá að hverfa vegna veikinda. Atli var mjög virkur í einkaflugi og var einn af stofnendum flugklúbbsins Súl- unnar og var einnig í Flugklúbbi Mosfellsbæjar, Flugklúbbi Þyts og Þristavinafélaginu. Hann stund- aði skíði og æfði sem barn með Skíðadeild Ármanns og varð síðar virkur í foreldrastarfi félagsins þegar dætur hans fóru að æfa á skíðum. Hann var einnig með- limur í Vélhjólaíþróttaklúbbnum VÍK. Atli var mikill tónlistarunn- andi og var mjög fróður um tón- list. Hann var einn af stofnendum rokkhljómsveitarinnar Belju og sá um sönginn í þeirri hljómsveit. Útför Atla fer fram í Dómkirkj- unni í dag, fimmtudaginn 16. júlí, kl. 15. og Guðríður Þór- hallsdóttir. Systkini Ástu eru a) Hrefna, maki Örn Kjartan Valdimarsson. Dæt- ur þeirra eru Fríða og Friðrika. b) Hall- grímur Jón, maki Una Baldvinsdóttir og sonur Hallgríms er Óðinn Ívar. Atli og Ásta eignuðust tvær dætur, Andreu f. 7. júlí 1994 og Júl- íönu f. 5. júní 2004. Atli ólst upp í Hafnarfirði og stundaði nám í Lækjarskóla og svo seinna í Fjöl- braut í Garðabæ þaðan sem hann varð stúdent í desember 1991. Hann flaug sitt fyrsta einflug að- eins 17 ára gamall og tók einka- flugmannspróf í júlí 1988 og lauk atvinnuflugmannsprófi í sept- ember 1992. Hann starfaði hjá hlaðdeild og afgreiðslu Flugleiða innanlands á árunum 1988-1992. Atli hóf störf sem flugþjónn og Elsku Atli! Takk fyrir þau 17 ár sem við feng- um saman. Við höfðum þekkst um tíma og mér fannst þú algjörlega skemmtilegasti maður sem ég hafði kynnst. Ég gat endalaust hlegið með þér bæði í blíðu og stríðu. Líf okkar saman var lítið ævintýri. Í þessu æv- intýri voru tvær fallegar prinsessur, mikið um ferðalög, endalaus vinátta, fljúgandi eldspúandi drekar og ófreskja sem þurfti svo sannarlega að berjast við. Þeim kafla er nú lokið en ævintýrið heldur áfram og prins- essurnar tvær taka nú við. Andrea og Júlíana hugsa um allar fallegu og góðu stundirnar sem þær áttu með þér. Þú kenndir Andreu að hjóla og skíða. Hún er svo lík þér í fasi og hefur þessa lífsgleði sem þú hafðir. Júlíana fékk að hafa pabba sinn heima í þrjú ár á nóttu sem degi. Hug- ur hennar er fullur af sögum sem þú fékkst tækifæri til að segja henni. Úr varð 5 ára barn með stórar spurning- ar og ennþá stærri svör. Þær vissu báðar að pabbi væri mikið veikur og virtust báðar vita í hvað stefndi. Elsku Atli, þær eru svo duglegar og ástæðan er sú að þú kenndir þeim að hræðast ekki, vera öruggar og að halda alltaf áfram. Þú spurðir svo oft í gegnum veik- indi þín hver tilgangurinn væri með þessu öllu saman. Í raun er ég viss um að tilgangurinn er einfaldur og hann er að vera til, njóta og sinna þeim sem maður elskar og þykir vænt um. Það gerðir þú svo vel. Þú varst þeim hæfi- leikum gæddur að veita fólki innblást- ur án þess að setja sjálfan þig á háan hest. Þú varst alltaf jafningi og náðir að hvetja fólk til að láta drauminn rætast. Það gerðir þú einfaldlega bara með því að vera alltaf þú sjálfur. Draumurinn fékk alltaf að rætast hvort sem það var að læra að fljúga og vinna skemmtilegustu vinnu í heimi, ferðast, þeysa um á mótorhjóli, hjóla nokkrum sinnum yfir Ísland, fljúga lítilli vél á sumarnóttu, skíða með okk- ur stelpunum, listflug og svona mætti lengi telja. Hvert verkefni var fram- kvæmt og það var aldrei fyrirstaða. Aldrei veggur sem ekki var hægt að klífa. Ég sem var að upplagi frekar skipulögð, skynsöm og þurfti mikinn undirbúning til alls var með árunum bara farin að fylgja með, taka þátt og smituð af þessari endalausu lífsgleði. Við vissum að það kæmi að þeim degi að ég þyrfti að setjast niður og skrifa til þín í síðasta sinn. Það kæmi að því að við yrðum að játa okkur sigruð. Við vissum vel að við fengjum ekki að verða gömul saman og að stelpurnar okkar yrðu að hafa mynd- ir, tónlist og sögur sem þær gætu leit- að í sér til huggunar. Hver dagur var okkur dýrmætur og við þökkuðum fyrir það sem við fengum að eiga sam- an. Hins vegar vorum við aldrei tilbú- in að gefast upp og ef ég varð þreytt þá hvattir þú mig til að halda áfram og ef þú varst að bugast þá var ég allt- af tilbúin að grípa þig í fallinu. Okkur var falið mjög vandasamt verkefni sem við skiluðum vel í sameiningu. Ég og stelpurnar fengum tækifæri til að kveðja þig og það var svo gott. Við fengum tíma til að hugsa. Það hefur svo margt farið í gegnum huga minn síðustu mánuði og góðar minningar hrannast upp. Þú ert ynd- islegur og verður alltaf í hjörtum okk- ar. Fljúgðu frjáls, laus úr viðjum verkja, og við horfum fram á veginn. Þínar stelpur, Ásta, Andrea og Júlíana. Elsku Atli minn nú ertu kominn of- ar skýjum þar sem þú naust þín svo vel, laus frá öllum verkjum og veik- indum sem heltóku líf þitt. Ég átti mér enga aðra ósk en þá að þú fengir lækningu og ef þetta var eina lækn- ingin þá verð ég að sætta mig við það að hafa þig ekki hjá okkur lengur, þó svo það sé gríðarlega erfitt að sætta sig við orðinn hlut. Þú varst svo sterk- ur og barðist svo hetjulega og vegna þess gerðir þú okkur svo sterk. Þú hefur með þroska þínum kennt okkur svo ótalmargt og leitt okkur svo vel áfram og haldið vel utan um okkur. Húmor þinn og jákvæðni sem alltaf var til staðar alveg fram á síðustu stundu var þitt aðalsmerki og mun lifa með okkur svo sterkt í minning- unni. Þú gerðir svo margt á þínum stutta tíma sem þú fékkst með okkur en á þeim tíma kenndir þú okkur svo margt og þá helst það að lifa lífinu líf- andi og verðum við öll að minnast þess hve lífið er hverfult og getur ver- ið svo stutt. Nú hefur þú fengið nýja skrá, nýtt verkefni á nýjum stað og veit ég að þar líður þér vel. Það hjálpar okkur svo mikið að vita af ykkar stóra vina- hóp sem var og er eins og fjallgarður með ykkur. Hún Ásta okkar er trú- lega sterkasta kona sem ég hef kynnst og munum við passa upp á hana og stelpurnar eins og þú hefur haldið utan um okkur öll. Án hennar hefðu síðustu ár verið okkur erfiðari en þau voru. Þú lagðir líf þitt í hendur starfsfólks 11 E á Landspítalanum og þakka ég þeim innilega fyrir þá hlýju og þá góðu ummönnun sem þau sýndu þér. Elsku Atli, ég veit að nú stýrir þú stóru fari með öllum englunum í áhöfn þinni og vakir yfir okkur, gætir og verndar alla tíð. Ég kveð í bili. Þín stóra systir, Kristín. Hetjur og fyrirmyndir samtímans birtast okkur oft með mismunandi hætti. Hetjurnar okkar eru ekki úr bókum eða bíómyndum, heldur er það litla fjölskyldan á fjallinu, sem síðustu ár hefur tekist á við hverja áskor- unina á fætur annarri með ósérhlífni, hógværð, kærleika og ást. Einstakur var kraftur Atla í baráttunni við veik- indi sín sem hann nálgaðist eins og önnur verkefni sem hann tók sér fyrir hendur, af þrautseigju, ábyrgð og hugrekki eins og við munum hann í leik og starfi. Minningarnar munu aldrei gleymast um samveru á hvítum fjöllum, svörtum söndum og í ástvina hópi. Ég fagna með þeim, sem fljúga hátt. Fagurt er loftið og draumablátt, og hættunni hetjur gleyma. Gefðu þeim, faðir, meiri mátt, lát magn þitt um brjóstin streyma, svo þeir geti flogið djarft og dátt um draumanna undraheima. (Davíð Stefánsson.) Hrefna, Örn, Arnór, Fríða og Friðrika. Frá því að við kynntumst Atla vini okkar fyrst þá höfum við ávallt vitað að hann væri einstakur. Ástríða hans á fluginu fór ekki fram hjá neinum sem þekktu hann. Eftir að Atli þufti að hætta að fljúga vegna veikindanna, þá kom enn frekar í ljós hversu mikill persónuleiki hann var og þrautseigj- an ótrúleg. Ásta og sólargeislarnir þeirra, sem Atli dýrkaði og var svo stoltur af, voru hans stoð og stytta á þessum erfiðu tímum. Þær koma ávallt til með að minna okkur á hvaða mann hann hafði að geyma. Atli átti sér mörg áhugmál en það sem tengdi okkur saman var flugið, skíðin og börnin okkar sem við gátum rætt um svo tímunum skipti. Þær voru ófáar skíðaferðirnar sem við fór- um saman í, svo og sumarbústaða- ferðirnar og ekki má gleyma kaffi- húsaferðunum sem voru orðnar fastur liður hjá okkur síðastliðin ár. Atli hafði mjög góða nærveru og snerti hjörtu allra sem kynntust hon- um með sinni einstöku hógværð. Hann var mikill húmoristi og það var alltaf gaman og mikið hlegið þar sem Atli var. Hann var jafningi, setti sig aldrei á háan stall gagnvart öðrum og það eru forréttindi að hafa átt vin eins og hann. Auk þess að vera góður hlustandi var einstaklega gott að leita til hans. Atli kenndi okkur hvað það er sem skiptir máli í lífinu og hann hvatti okkur til að flytja utan í eitt ár þegar við fengum tækifæri til þess. Það var einmitt einn af hans stærstu kostum hvað hann samgladdist ávallt öðrum. Þrátt fyrir að Atli fari héðan allt of fljótt þá hefur hann áorkað meira en margir sem lifa fulla ævi. Atla verður sárt saknað en við eig- um góðar minningar um einstakan vin sem eru ómetanlegar og verða aldrei frá okkur teknar. Elsku Ásta, Andrea og Júlíana. Þið eruð hetjur og fyrirmynd okkar allra. Hugur okkar er hjá ykkur. Við sendum fjölskyldum og öðrum aðstandendum Atla okkar dýpstu samúðarkveðjur. Pétur og Sigrún Stefanía. Það sem kveikti í mér þegar ég hitti Atla Thoroddsen fyrst var lífsgleðin, frumlegheitin og hversu óhræddur hann var að lifa drauma sína. Hug- myndirnar voru margar og óneitan- lega misgóðar. En það var einmitt snilldin, hann fór ekki bara öruggu leiðina eða þá pólitískt réttu. Þegar veikindin herjuðu á hann af þunga þá fór minn maður samt út og keypti sér fjórhjól, batt hækjurnar fastar á hjól- ið og þeysti um nágrennið. Þrátt fyrir að vera sárkvalinn mætti Atli á hljóm- sveitaræfingar, dró ekkert af sér fyrir sviðsframkomu og drakk Jack Dani- els af stút. Ég er ekki að segja að Atli hafi ekki líka átt sínar stundir þar sem hann grét af sársauka og kvíða. Það sem ég er að segja er að þrátt fyr- ir allar þessar þrautir þá brann ljósið hans Atla skært. Hann elskaði lífið. Atli elskaði flug. Hann varð ungur flugstjóri og reis fljótt til metorða inn- an Icelandair enda flinkur flugmaður eins og pabbi hans. Atli var traustur drengur og áður en langt um leið var Atli orðinn eftirlitsflugstjóri. Aldrei steig sú tign honum til höfuðs á nokk- urn hátt. Fólk talaði við Atla. Það sem ég meina er að fólk fann öryggi í ná- lægð hans og treysti honum fyrir ýmsum málum, bæði innan og utan vinnu. Menn þurftu aldrei að óttast að umræðan sem þá langaði að bera upp væri asnaleg. Atli var opinn fyrir öllu. Atli elskaði heimspekilegar umræð- ur. Atli elskaði tónlist. Þó ég hafi ekki þekkt hann í æsku þá skilst mér að tónlistin hafi snemma gripið hann eins og systkini hans. Við deildum líka þeim draumi að vera rokkarar í hluta- starfi og saman létum við þann draum rætast þegar við stofnuðum flug- mannahljómsveitina Beljuna. Við vorum svo lánsamir að fá æfingahús- næði fjarri íbúðabyggð og gátum því framleitt óhljóð án afskipta lögregl- unnar. Þetta voru góðir tímar. Atli elskaði mótorhjól. Ég vona sannarlega að það séu mótorhjól og krókóttir fjallvegir á þeim stað þar sem Atli er nú. Atli elskaði líka gott kaffi. Mest af öllu held ég þó að Atli hafi elskað stelpurnar sínar, Andreu, Júlíönu og Ástu. Það er satt sem sagt er að forfeðurnir lifi áfram í börnum sínum. Ég sé þig alltaf þegar ég sé stelpurnar þínar, Atli minn. Við ræddum stundum dauðann og spurn- inguna hvort við sjáum ástvini okkar á ný eftir að við kveðjum þetta til- verustig. Mig verkjaði í hjartað að ræða þessi mál við þig vitandi að fyrr en síðar myndir þú fá svarið við þess- um mikla leyndardómi. Ég veit að þér leið eins þá. En ég trúi líka að þú brosir núna þegar þú veist svarið. Ég minnist þín sem persónu sem spannar allt litrófið. Þú varst bæði séntilmaður og rokkari. Bæði mjúkur og harður. Kannski áttirðu það til að vera harður við sjálfan þig fyrir að vera ekki fullkominn. En þú varst flottur einmitt svona eins og þú varst. Óvenju stór vinahópur ber merki þess. Þú elskaðir Pearl Jam. Ég læt orð þeirra tala fyrir mig – þar til við hittumst aftur, félagi. Now the man of the hour is taking his final bow As the curtain comes down I feel that this is just goodbye for now. Þórir Kristinsson. Atli Thoroddsen  Fleiri minningargreinar um Atla Thoroddsen bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.