Nýtt kvennablað - 01.01.1960, Blaðsíða 5
Norðar á firðinum er Flatey. Skamml jiaðan eru
Svefneyjar, en þaðan var Eggert Ólafsson ættaður. A
ströndinni andspænis er Skor, þaðan sem Eggerl lagði
í hinztu ferð sína vorið 1768 ásamt Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur, konu sinni. Þau ætluðu til bús síns á Hofs-
stöðum á Snæfellsnesi. Oft munu breiðfirsku sjómanna-
konurnar hafa lilustað á harmljóðin frá hinni köldu
Skor, þegar þær biðu eiginmanna sinna og unnusta
'heima, og ef til vill hefur þeim þá þótt hlutskipti
Ingibjargar betra.
Langferðabíllinn gaf merki til brottferðar. Þegar
komið var upp á Kerlingarskarð, hvarf Breiðafjörður
smám saman sjónum inn í bjarta vornóttina. Ef til vill
var hún lygn, eins og þessi nóttin við Breiðafjörð,
þegar bjargvætlur íslcnzkra sagna dró hringinn á hönd
SÍnU ljósa mani. .Sigurlaug Björnsdðttir, kennart.
NÝTT KVENNABI.AÐ