Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
! "#$
%&' ()*)
+++,-$ ,
Dýrahald
Hreinræktaðir Vizslu hvolpar til
sölu. Tilbúnir til afhendingar.
Frábærir fjölskyldu- og veiðihundar.
Einstaklega barngóðir og fljótir að
læra. Uppl. í síma 860 4280 eða í
gegnum: kiddyoli@gmail.com
Am. cocker spaniel hvolpar
Til sölu Am. cocker hvolpar með
ættbók frá HRFÍ. Sími 845-6678.
www.eldhuga.com
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
Frelsi frá streitu og kvíða
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is,
www.theta.is
Heimilistæki
Leitum að amerískum ísskáp,
stálgráum
Leitum að tvöföldum ísskáp með
vatni og klakavél. Síminn hjá okkur
er 893 3374 og 864 0950. Endilega,
ef þið hafið einn, hringið.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 34.900. Hljómborð frá kr.
8.900. Trommusett kr.69.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Atvinnuhúsnæði
Fellihýsi - Hjólhýsi -
Tjaldvagnar. Tökum til geymslu
fellihýsi, hjólhýsi,tjaldvagna og
húsbíla. Engin stærðartakmörk.
Leigutími september til 15. maí.
Upphitað fyrsta flokks húsnæði í
hjarta Reykjavíkur. Uppl. í s:
544-5466/ 893-1162 /660- 4560.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
LEIRKRÚSIN
Ný námskeið í leirmótun á haustönn;
handmótun, rennsla, rakúbrennsla.
Einnig er hægt að leigja vinnu-
aðstöðu, með öllu. Uppl. www.leir.is
S. 555 1809 / 661 2179.
Til sölu
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Viðgerðir
Ýmislegt Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Kjólar
Litir: Svart, bleikt, lilla.
St. 42-56.
Sími 588 8050.
Mjög vandaðir og fínir
dömuskór úr leðri, lakkaðir. Stærðir:
36-41. Litur: Svart lakk. Verð 8.300.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur á lágum hæl.
Stærðir: 36-40. Litur: Svart.
Verð 10.950.-
Mjúkar og þægilegar
leðurmokkasíur með gúmmísóla.
Stærðir: 36-41. Litur: Svart.
Verð 11.950.-
Vandaðir og þægilegir
götuskór úr leðri með gúmmísóla og
höggdeyfi í hæl. Stærðir 36-41.
Litur: Svart. Verð 8.875.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
GreenHouse haust- vetrarlínan
er komin. Verið velkomin að sækja
frían bækling. Opið í dag, þriðjudag
13-19.
GreenHouse, Rauðagerði 26.
Bílar
Toyota Corolla árg. 08. 2004
Sjálfskiptur frúar- eða skvísubíll,
Toyota Corolla 1600 sól, ek. 125 þús.
km, 5 dyra, spoiler, CD, fjarlæsingar,
rafdrifnar rúður, fallegur bíll.
Uppl. í s. 6914441.
Til sölu Ford Expedition Eddie
Bauer árg. 09/04. Umboðsbíll,
8 manna, ek. 47 þ. km, ásett verð
3.800 þús., fæst á 3.100 þús.
Uppl. í s. 659 1380.
Renault Laguna 2.0 ssk., árg. '06,
ek. 53 km. Fallegur og vel búinn bíll,
allt rafdrifið, gardínur aftur í, álfelgur,
hálfleður á sætum, nýskoðaður ‘11.
Listaverð 2.590 þús. Tilboð 1.990 þús.
gegn staðgreiðslu. Sími 691 4441.
Nissan Primera, ssk. árg. '04
ek. 92 þ. km, sjálfskiptur, 5 dyra, CD,
allt rafdrifið, bakkmyndavél. Lista-
verð 1790 þús. Tilboðsverð gegn
staðgreiðslu 1190 þús. Nýskoðaður
og yfirfarinn. Sími 6914441.
Bílaþjónusta
Viðgerðir
Bilhusid.is - bilhusid@bilhusid.is
Hjólhýsi
Óskum eftir hjólhýsi með kojum
Óskum eftir vel með förnu hjólhýsi
með kojum og ALDE-hitakerfi,
yfirtökum lán eða staðgreiðum allt
að 2 millj. hjolhysi1@gmail.com
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
yfir. Kjörin voru betri í Bónus var
sagt, en það tel ég of einfalda mynd
af „kjörum“.
Í Einarsbúð fékk ég alltaf plástur
á hnéð og við krakkarnir lögðum
bílaplanið undir okkur til að kenna
hvert öðru að hjóla. Ef það var eng-
inn heima rölti maður út í búð og
rabbaði við Einar og Erlu, sem ávallt
töluðu við okkur krakkana af virð-
ingu. Þetta eru ein þau bestu kjör
sem hægt er að óska sér í æsku.
Skjólakjör fólust nefnilega í því að
tvær yndislegar manneskjur sem
verslunina ráku voru alltaf tilbúnar
að gefa af sér.
Þau voru eins og foreldrar okkar
krakkanna í hverfinu og svo voru
þau eins og börn gamla fólksins, og
sendu vörurnar heim í eldhús.
Það sem þau höfðu fram yfir líf-
fræðilega foreldra var að þau spurðu
ekki sumra spurninga. Ýmissa
spurninga hefði mátt spyrja þegar
ég kom hlaupandi inn í búðina til að
kaupa eldspýtustokk, átta ára
augnabrúnalaust kvikindi með
maníuglampann í augum og lyktandi
eins og áramótabrenna. Einar glotti
hins vegar og leyfði mér að ljúga upp
nóbelsverðlaunasögu um að mamma
hefði týnt stokknum sem ég keypti
fyrr um daginn, og fylgdist hann
með okkur út um gluggann þar sem
við kveiktum í móa og rusli, engum
til ama en okkur til ómældrar gleði.
Sem barn þarf maður að fá að prófa
hlutina og það skildi Einar og var því
vís til að leyfa okkur stundum að
standa fyrir aftan borðið og hjálpa
honum að afgreiða, og þvílíkt stolt
sem hríslaðist um mann þar sem
maður stóð teinréttur og náði rétt
svo yfir borðið og sagði hátt og
skýrt: „Var það eitthvað fleira held-
urru?“ Það var líka mikið sport að fá
að koma inn á lager. Þar stoppuðu
allir vörubílstjórarnir í kaffi, og mikil
virðing fólst í því að teikna mynd
sem rataði á kaffistofuvegginn í Ein-
arsbúð.
Ef ég ætti í minningu þinni Einar
að reyna að skilgreina hvað það var
sem var svona yndislegt við að koma
í Einarsbúð sem barn er það and-
rúmsloft sem er blandað mannvirð-
ingu, gestrisni og rólyndi sem mér
dettur í hug. Ég kveð þig í bili, minn
elskulegi Einar, og vil segja að lok-
um takk fyrir allt, þú og Erla eruð og
verðið alltaf mínir vinir.
Katrín Oddsdóttir „Skjólari“.
Mikill öðlingur er horfinn af sjón-
arsviðinu, maður sem ég var svo
heppinn að fá að starfa með um
nokkurra ára skeið. Dauðinn er auð-
vitað jafn sjálfsagður og aðrir þættir
mannlífsins, einungis sá síðasti og
um leið sá sem þyngsta höggið veitir.
Við erum öll einhvern veginn ber-
skjölduð frammi fyrir honum, þess-
um þætti, alltaf jafn óviðbúin. Ég á
því láni að fagna að hafa unnið með
Einari Strand um tíma, tíma sem ég
mun ætíð minnast með mikilli
ánægju en um leið með mikilli eft-
irsjá vegna þess að það var afar gef-
andi að fá að njóta samvista við Ein-
ar og ekki sjálfgefið að fyrirhitta
marga slíka á lífsleiðinni. Ég hef
enga burði eða þekkingu til að rekja
ættir eða lífshlaup Einars, það verða
mér fróðari menn að gera svo vit sé í.
Með þessum línum vil ég einungis
koma á framfæri þökkum til þessa
horfna ljúflings og til forsjónarinnar
fyrir að fá að verða honum samferða
þessi fimm ár sem við unnum saman
í Bústaðakirkju undir handarjaðri
sr. Pálma. Sá tími framkallar ein-
ungis ánægjulegar minningar.
Við hjónin vottum eftirlifandi eig-
inkonu og einkasyni þeirra okkar
dýpstu samúð um leið og við biðjum
þann sem öllu stjórnar að veita þeim
styrk í þeirra miklu sorg. Guð blessi
minningu Einars Strand.
Arnþór Ingólfsson.
Fleiri minningargreinar um Einar
Strand bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud.
7.ágúst.
Spilað var á 11 borðum. Með-
alskor 216 stig. Árangur N-S
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinsson 265
Jens Karlsson - Auðunn Guðmss. 246
Árangur A-V
Hilmar Valdimarss. - Óli Gíslason 270
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónsson 266
Tvímenningskeppni 24. ágúst.
Spilað var á 13 borðum. Meðalskor
312 stig. Árangur N-S
Jón Láruss. – Ólafur Ingvarsson 373
Gróa Þorgeirsd. – Kristín Óskarsd. 369
Sigurður Pálsson – Björn E. Péturss. 343
Árangur A-V
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 376
Ragnar Björnss. – Guðjón Kristjánss. 367
Hilmar Valdimarss. – Óli Gíslason 337
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson