Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
236. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
ÖRLÖGIN BIÐU GLYS-
ROKKARANS Á ÍSLANDI
«LJÚFLINGSLÖG
Helsti kosturinn
er söngur Sigríðar
FYRSTA sperran í þak nýja tón-
listar- og ráðstefnuhússins við
Austurhöfn var sett niður í gær.
Um var að ræða 40 tonna stálbita
og voru starfsmenn ÍAV drjúgan
hluta úr degi að koma honum fyr-
ir enda þurfti að beita bæði ýtr-
ustu lagni og varkárni. Sjö aðrar
sperrur koma svo í kjölfarið, sem
allar eru þó sýnu minni að um-
fangi. Myndina tók Ægir Ólafsson
sem er kranamaður við fram-
kvæmdina og situr alla daga uppi
í 70 metra háum krana. „Vinnuað-
staðan er óvenjuleg en útsýnið er
alveg frábært. Þarna er maður
eins og kóngur í ríki sínu,“ segir
Ægir. Vinna við bygginguna stóru
hefur verið á góðum skriði undan-
farið og nú eru kínverskir verka-
menn að setja á húsið glerhjúpinn
góða sem kenndur er við Ólaf Elí-
asson. Stefnt er að því að húsið
verði opnað vorið 2011.
Byrjað að
þekja tón-
listarhúsið
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
LÍTRINN af rjómaís hækkar um 16
kr. samkvæmt nýjum lögum um
vörugjöld sem taka gildi í dag. Þetta
þýðir að algengar fjölskyldupakkn-
ingar af ís sem kosta í kringum 500
kr. hækka að meðaltali í verði um 25
kr. Venjulegur ís í brauðformi í sölu-
skála hækkar um 5 kr. „Við eigum
ekkert val og verðum að velta breyt-
ingum á vörugjöldum beint út í verð-
lagið,“ segir Valdimar Hafsteinsson,
framkvæmdastjóri Kjöríss.
„Vörugjöldin áttu að vera sykur-
skattur en það verður ekki séð að
löggjafinn hafi rökstutt efnislega
hvaða ástæður eru að baki skatt-
lagningunni,“ segir Almar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna. Öll
vinnubrögð stjórnvalda í málinu seg-
ir hann í raun hafa verið handahófs-
kennd. Þannig séu lögð vörugjöld á
hreinan ávaxtasafa en ekki á jógúrt-
vörur, sem í sumum tilvikum séu þó
dísætar.
Hver hálfur lítri af gosi hækkar í
verði um 8 kr. og einn lítri af ávaxta-
safa um 16 kr. Þá hækkar hvert kíló
af konfekti um 50 kr. Verð á mjólk-
urvörum helst yfirleitt óbreytt.
Flókin og ógagnsæ
„Það er erfitt að meta þessar
breytingar á vörugjöldum til hækk-
unar vísiölu neysluverðs en þó má
gera ráð fyrir að hún verði á bilinu
0,3-0,4% hækkun,“ segir Ólafur
Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ.
Hann segir bagalegt að staðið
skuli að aukinni gjaldtöku af mat- og
drykkjarvörum með vöru-
gjöldum í stað þess að hækka virðis-
aukaskatt eins og til stóð, enda sé
álagning vörugjalda flókin og
ógagnsæ fyrir neytendur.
„Verðum að velta breyting-
unum beint út í verðlagið“
Ýmsar mat- og drykkjarvörur hækka í dag Breytt vörugjöld hækka vísitölu
Gos Hækkar. Mjólk Sleppur.
Hækkun
8 kr.
Hækkun á hverjum
hálfum lítra af gosi
16 kr.
Hækkun á hverjum
lítra af ís
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
STJÓRNVÖLD, með fjármála- og iðnaðar-
ráðuneyti í fararbroddi, vilja reyna með öllum
ráðum að tryggja að meirihluti í HS orku verði
í eigu hins opinbera og lífeyrissjóðanna. Sér-
staklega er mikill þrýstingur úr grasrót Vinstri
grænna á forystu flokksins, einkum Steingrím
J. Sigfússon, um að beita sér fyrir því að hið op-
inbera haldi ráðandi hlut í HS orku. Einkum er
horft til þess, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, að opinberir aðilar eignist hlut sem
nú er í eigu Geysis Green Energy (GGE). Hann
er um 55 prósent af heildarhlutafé í fyrirtæk-
inu.
Fjármála- og iðnaðarráðuneyti sendu frá sér
í tilkynningu í gær þar sem tilkynnt var að
komið yrði á fót viðræðuhópi fulltrúa ríkisins,
sveitarfélaga, lífeyrissjóða og fleiri aðila, um
mögulegar aðgerðir vegna málsins. Meðal þess
sem er í undirbúningi, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, er stofn-
setning Fjárfestingasjóðs
Íslands sem verður í eigu
lífeyrissjóðanna. Hann
myndi mögulega hafa að-
komu að HS orku og fleiri
verkefnum í orkugeiranum.
Fleiri kynningarfundir
vegna sjóðsins eiga þó eftir
að fara fram, meðal annars
með fjármálafyrirtækjum
og forsvarsmönnum allra
lífeyrissjóða.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í
gær að selja hlut sinn í HS orku til kanadíska
fyrirtækisins Magma Energy, með fyrirvara
um samþykki borgarráðs og borgarstjórnar.
Það fyrirtæki eignaðist sömuleiðis hlut Hafnar-
fjarðarbæjar. Samanlagt eru hlutirnir um 32
prósent af hlutafé í fyrirtækinu. Ef kaupin
verða samþykkt mun Magma ráða yfir um 45
prósentum af heildarhlutafé í félaginu. | 8
Sala á hlutum OR og Hafnarfjarðarbæjar í HS
orku samþykkt Ný stjórn hjá GGE skipuð » Stjórn OR samþykkti sölu
» Þrýstingur mikill á VG
» Einkaaðilar með meirihluta
Steingrímur J.
Sigfússon
Vilja hlut GGE í HS til hins opinbera
Skattur á sætindin | 4
EINSTAKLINGUR sem fékk verk-
taka til að reisa fyrir sig einbýlishús
á höfuðborgarsvæðinu þurfti að kalla
til lögreglu til að afstýra því að und-
irverktaki rifi nýtt þak af húsinu.
Húseigandinn rifti samningnum
við verktakann því honum gekk
hægt að byggja. Húseigandinn
kveðst hafa greitt verktakanum fyrir
verkið samkvæmt áætlun.
Nágranni hringdi svo í húseigand-
ann þegar hann var úti á landi og
sagði að verið væri að rífa þakið af
húsinu hans. Eigandinn kallaði lög-
regluna til og stöðvaði hún verkn-
aðinn. Þá kom í ljós að undirverktaki
sem gengið hafði frá þakinu hafði
ekki fengið borgað og taldi sig eiga
rétt á að taka þakið. 9
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
Streð Húseigandi sagði upp verk-
taka og þurfti að verja þakið.
Ætlaði að
hirða þakið
af nýju húsi
SKILANEFND
Glitnis er lang-
stærsti kröfuhaf-
inn í þrotabú
Fons ehf. Kröfur
í búið nema 34,5
milljörðum og
eru kröfur Glitn-
is þar af 23,7
milljarðar. Að-
eins 570 milljónir
af kröfum Glitnis
eru veðkröfur og eru kröfurnar því
að langmestu almennar kröfur.
Vilhjálmur Bjarnason hefur ósk-
að eftir því að Héraðsdómur
Reykjavíkur úrskurði um skyldu
skilanefndar Glitnis og skiptastjóra
Fons um að veita Vilhjálmi aðgang
að upplýsingum varðandi kröfur
Glitnis á hendur þrotabúinu. »14
Kröfur Glitnis í þrotabú
Fons að mestu almennar
Glitnir er stærsti
kröfuhafi í Fons.