Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Pabbi var byrj-
aður á því að leggja drög að safni
og móttöku í viðbyggingunni.
Þetta er eðlilegt framhald,“ sögðu
bræðurnir Júlíus og Baldur Guð-
mundssynir um Rokkheima Rún-
ars Júlíussonar sem opnaðir verða
í viðbyggingu við heimili Rúnars
heitins og Maríu Baldursdóttur á
föstudag. Rokkheimarnir eru við-
bót við hljóðverið Geimstein sem
hefur að geyma stóran hluta ís-
lenskrar tónlistarsögu og verður
áfram opið fyrir gesti eins og þeg-
ar Rúnars naut við. Rúnar vann að
því síðustu æviár sín að koma á
Poppminjasafni Íslands en nú er
safnið á hrakhólum og þarf að
bíða um sinn eftir varanlegu hús-
næði. Því þótti bræðrunum nauð-
synlegt að brúa bilið með þessum
hætti auk þess að heiðra minningu
föður síns.
Rúnars Júlíussonar verður
minnst með ýmsum hætti á
Ljósahátíð í Reykjanesbæ í ár.
Ljósanæturnefnd ákvað að heiðra
minningu Rúnars með því að velja
eitt laga hans sem ljósalagið í ár,
en Rúnar var bæjarlistamaður
Reykjanesbæjar þegar hann lést.
Baldur Guðmundsson stakk upp á
laginu „Ég sá ljósið“ sem kom út á
sólóplötu Rúnars árið 1976. Lagið,
sem nú er sungið af Sigurði Guð-
mundssyni, fær að hljóma á hátíð-
arsviðinu á laugardagskvöld,
ásamt fleiri lögum úr smiðju Rún-
ars og fleiri tónlistarmanna úr
bænum, í Ljósanætursvítu. Þeir
bræður spila undir. Þá mun hljóm-
sveitin GCD koma saman á föstu-
dagskvöld og mun Júlíus þar fylla
skarð föður síns. Hann sagði það
ekki auðvelt, en hann þykir syngja
líkt föður sínum. „Bubbi [Morth-
ens] átti þessa hugmynd, að ég
kæmi í staðinn fyrir pabba. Hann
komst ekki á minningartónleikana
á sínum tíma og vill nota þetta
tækifæri til þess að minnast hans,“
sagði Júlíus. Auk þess að syngja
mun Júlíus taka sér í hönd einn af
bössum föður síns en Júlíus er
ekki síður liðtækur á bassa en
trommur.
Bassar Rúnars, 6 að tölu, verða
meðal safngripa í Rokkheimunum
ásamt gítar sem þykir frægari en
margur. „Hér verður forláta gítar
sem Zemaitis gerði, en hann smíð-
aði fyrir marga þekkta, m.a. Eric
Clapton,“ sagði Baldur. Af öðrum
munum má nefna fatnað af
Rúnari, ýmsa muni sem teknir
verða upp úr skúffum og af veggj-
um í íbúð, hljómplötur, úrklippur
og bækur sem dágott safn er til af.
„Pabbi henti aldrei neinu, þannig
að það er af miklu að taka. Hér
verða líka til sýnis dagbækur
pabba, en hann hélt skrá yfir allt
sem hann gerði frá árinu 1973.“
Ljós Rúnars Júlíussonar logar enn
Rokkheimar Rúnars Júlíussonar verða opnaðir í viðbyggingu við heimili Rúnars heitins
og Maríu Baldursdóttur á föstudag Sonur Rúnars fyllir skarð föður síns með GCD á Ljósanótt
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Synirnir „Pabbi henti aldrei neinu, þannig að það er af miklu að taka.
ÍSLENSKI tölvuleikjaframleiðand-
inn CCP skilaði miklum hagnaði á
fyrstu sex mánuðum ársins. Hagn-
aðurinn nam rúmum 6,4 milljónum
Bandaríkjadala en hagnaður fyrir
sama tímabil í fyrra var rétt rúmar
tvær milljónir. Tekjur af EVE-On-
line tölvuleiknum námu 25,4 milljón-
um en það er rúmlega fjögurra millj-
óna aukning frá í fyrra.Velta CCP á
síðustu sex mánuðum var 23,5 millj-
ónir dala en eignir félagsins eru nú
metnar á rúmar 52 milljónir dala.
jmv@mbl.is
Stórhagn-
aður CCP
CCP EVE-Online gefur vel af sér.
RANNSAKA ELDSUPPTÖK Á GRUNDARFIRÐI
Morgunblaðið/G.Rúnar
rafgeymi sem var í hleðslu í húsinu. Tveir lög-
reglumenn frá tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík rannsökuðu orsakir brunans í gær.
byggingum á föstudagskvöld og eru húsin talin
ónýt. Líkur eru leiddar að því að eldsupptök
megi rekja til rafmagns og hafa böndin beinst að
TJÓN vegna brunans í gamla fiskmarkaðnum á
Grundarfirði er talið nema tugum milljóna
króna. Eldur blossaði upp í þremur samliggjandi
„ÞESSIR menn
bíða dóms og eru
því lausir,“ segir
Geir Jón Þór-
isson yfirlög-
regluþjónn um
mál manna sem
réðust á ungan
mann í Breiðholti
á laugardags-
kvöld. Um er að
ræða einhverja
þá sömu og réðust inn á heimili úr-
smiðs á Barðaströnd á Seltjarn-
arnesi í vor, héldu honum föngnum
og misþyrmdu auk þess sem þeir
stálu þar verðmætum. Mennirnir
tengjast fleiri afbrotum á síðustu
mánuðum.
Að loknum yfirheyrslum var
mönnunum aftur sleppt úr haldi á
sunnudag. Geir Jón segir það hluta
af daglegri vinnu lögreglu að elta
uppi menn sem áður hafa framið af-
brot. „Ef þeir eru í síbrotum höfum
við getað fengið síbrotagæslu á þá
en ég veit ekki hvernig staðan er á
því í þessu máli.“
Dómsuppkvaðning í október
Í gær var fyrirtaka í Héraðsdómi
Reykjavíkur vegna innbrotsins á
Seltjarnarnesi en að sögn Sigríðar
Friðjónsdóttur saksóknara er ekki
von á dómsuppkvaðningu fyrr en í
október. Að hennar sögn situr einn
ræningjanna sem þar áttu hlut að
máli í síbrotagæslu og hefur gert um
nokkurra vikna skeið. ben@mbl.is
Geta óskað
eftir sí-
brotagæslu
Geir Jón
Þórisson
Fyrirtaka í Barða-
strandarmálinu í gær
BENSÍNORKAN hefur lækkað verð
á bensíni og dísilolíu um 2 krónur lítr-
ann. Segir fyrirtækið að þetta hafi
verið gert þar sem heimsmarkaðs-
verð á olíu hafi lækkað þó nokkuð í
gær og einnig hafi gengi krónunnar
styrkst. Algengt verð á bensíni er nú
188,30 krónur hjá Orkunni og verð á
dísilolíu er 181,10 krónur.
Þá bárust af því fréttir í gærkvöldi
að Atlantsolía hefði lækkað bensín-
verð um 2 krónur á lítrann.
Bensín lækk-
ar um 2 kr.
„ÞETTA er mjög áhugavert og ég sé ekkert annað en
jákvætt við þetta en ég er voðalega hræddur um að við
fáum engan gullaldartexta. Þetta gæti því kannski haft
slæm áhrif á málkennd fólks og umgang þess við
tungumálið,“ segir Þorbjörn Broddason, prófessor í
félagsfræði um þýðingarforrit Google. Google býður nú
upp á þýðingar milli íslensku og 50 annarra tungumála.
Íslenskumælandi fólk getur því smellt textum t.d. á
jiddísku, makedónísku eða malaí inn í þýðingarvélina
sem svo þýðir textana gróflega. Einnig opnast mögu-
leiki fyrir útlendinga að lesa íslenska fjölmiðla. Þýðing-
arnar þykja þó vélrænar og oft á tíðum skondnar og
ekki víst að orð eins og kúlulán skili sér óbrenglað, en
notendum er boðið að lagfæra það sem betur gæti farið
og ætti þýðingarbúnaðurinn því að þróast með tím-
anum.
„Þetta er notað sem hjálp og textinn er ekki nothæf-
ur til að dreifa, það þyrfti alltaf manneskju til að fara
yfir,“ segir Gauti Kristmannsson þýðingafræðingur.
„Staðreyndin er sú að það er engin vél sem hefur roð
við tungumálinu. Það er hægt að segja sama hlutinn á
svo marga vegu og oft er það textinn í kring sem
ákvarðar innihaldið,“ segir Gauti. jmv@mbl.is
Hvernig segir maður
kúlulán á jiddísku?
Hægt er að þýða milli íslensku og 50 tungumála á Google
Reuters