Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
✝ Svandís Rafns-dóttir fæddist í
Neskaupstað 14. apríl
1949. Hún lést á heim-
ili sínu 20. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Rafn Ein-
arsson skipstjóri, f. 6.
ágúst 1919, d. 11. júní
1977, og Anna Mar-
grét Kristinsdóttir, f.
7. mars 1927, d. 17.
nóvember 1989.
Systkini Svandísar
eru: 1) Elísa Krist-
björg, f. 17. ágúst
1944, d. 27. mars 2006, 2) Einar Þór,
f. 28. júní 1951, maki Ragnheiður
Thorsteinsson, 3) Auður, f. 10. febr-
úar 1956, maki Geir Oldeide, 4)
Hörður, f. 14. febrúar 1961, maki
Karitas Jónsdóttir, 5) Þröstur, f. 11.
apríl 1963 og hálfsystir 6) Berta
Guðbjörg Rafnsdóttir, f. 7. janúar
1944, d. 31. mars 2008, maki Eggert
júlí 1999; og 2) Rafn, f. 4. ágúst 1975,
maki Herdís Kristindóttir, dætur
þeirra eru Emilía Ósk, f. 26. nóv-
ember 2000, Júlía, f. 13. júní 2004 og
Rut, f. 1. mars 2009.
Svandís bjó á Austurlandi allt sitt
líf að undanskildum árunum á Ísa-
firði og tæpum þremur árum í ná-
grannalöndunum Svíþjóð og Dan-
mörku. Svandís og Hermann bjuggu
á Eiðum á 18 ára tímabili. Svandís
vann í mötuneyti Alþýðuskólans á
Eiðum og var ráðskona þar um tíma.
Síðar fluttu þau til Egilsstaða. Þar
starfaði Svandís sem launafulltrúi á
Heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum
og síðar hóf hún störf hjá Bún-
aðarbanka Íslands sem seinna fékk
nafnið Kaupþing banki. Síðustu
starfsár Svandísar vann hún sem
móttökuritari á Heilsugæslustöðinni
á Egilsstöðum. Svandís bjó allt til
dauðadags á Egilsstöðum.
Svandís verður jarðsungin frá
Grensáskirkju í dag, 1. september,
og hefst athöfnin klukkan 13.
Jarðsett verður í Gufunes-
kirkjugarði.
Meira: mbl.is/minningar
Bjarnason.
Svandís var fædd og
uppalin á Norðfirði.
Að loknum grunnskóla
þar fór hún í Hús-
mæðraskólann Ósk á
Ísafirði. Á Ísafirði
kynntist hún Her-
manni Níelssyni, þau
giftu sig og fluttu aust-
ur á land að Eiðum.
Þar stofnuðu þau sitt
fyrsta heimili, Svandís
og Hermann skildu ár-
ið 1994. Börn Svandís-
ar og Hermanns eru:
1) Níels, f. 20. september 1968, maki
Christine Carr. Dóttir Níelsar og
Sóleyjar Daggar Jóhannsdóttur er
Herdís Hrönn, f. 20. maí 1987, maki
Einar Örn Konráðsson og sonur
þeirra er Daníel Rafn, f. 8. desember
2007. Börn Christine Carr og fóst-
urbörn Níelsar eru Kumasi Máni, f.
16. júní 1996 og Þóranna Kika, f. 18.
Þú hlakkaðir svo mikið til að koma
í heimsókn til okkar, það lá vel á þér.
Það kom því eins og þruma úr heið-
skíru lofti þegar við fréttum að þú
værir farin. Þú varst að prjóna á
stelpurnar mínar, þú varst alltaf að
gera eitthvað fyrir þær. Þegar ég og
bróðir minn komum að fallega heim-
ilinu þínu sáum við prjónaskapinn
tilbúinn á gólfinu, þú varst búin að
þvo og leggja vestin, húfurnar og
skokkana haganlega á handklæði, allt
var tilbúið.
En daginn sem þú ætlaðir að koma
til okkar og vera í faðmi fjölskyld-
unnar berum við þig til grafar hér í
Reykjavík. Allskonar hugsanir og
minningar um þig hafa fyllt hug minn
undanfarna daga. Ég hugsa til gömlu
góðu daganna á Eiðum og svo seinna
á Egilsstöðum, þú varst svo hlý og
góð og alltaf var stutt í brosið. Þú
hafðir góða nærveru og varst vina-
mörg, þín verður sárt saknað en
minning þín lifir.
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt.
Kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Til að lifa einn dag í einu,
njóta hverrar stundar meðan hún
líður,
sætta mig við það að vegurinn til
friðar
sé varðaður erfiðleikum.
Taka, svo sem hann gerði, þessum
synduga heimi
eins og hann er, ekki eins og ég vildi
að hann væri.
Treysta því að hann láti allt ganga mér
í hag
ef ég gef mig honum á vald.
Svo ég megi njóta hamingju sem mér
gefst í þessu lífi
og ómælanlegrar hamingju með
honum í hinu næsta.
(Reinhold Niebuhr.)
Þinn sonur
Rafn Hermannsson.
Okkur langar að minnast elsku
ömmu okkar, hennar Svandísar.
Amma Svandís átti heima á Egils-
stöðum. Við þurftum að keyra lengi
eða fljúga í flugvél til að heimsækja
hana. Það var alltaf spennandi að fara
til hennar, næstum eins og að fara til
útlanda. Amma kom oft í heimsókn til
okkar og þá kom hún ósjaldan með
pakka handa okkur, oftast eitthvað
sem hún hafði prjónað. Amma Svan-
dís var hlý og góð amma.
Við munum sakna ömmu Svandísar
mikið og sakna þess að eiga ekki von
á henni í heimsókn til okkar og geta
heimsótt hana á Egilsstöðum. Amma
okkar er ekki lengur hér á jörðinni en
við vitum að þrátt fyrir það mun hún
fylgjast með okkur vaxa og verða
stórar, því ekki vill hún missa af því.
Amma Svandís, við munum minn-
ast góðu daganna með þér, þú varst
einstök kona með stórt hjarta, þú
varst amma okkar og við erum og
verðum ömmustelpurnar þínar, að ei-
lífu.
Emilía Ósk, Júlía og Rut
Rafnsdætur.
Svandís Rafnsdóttir
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Minningarathöfn verður um hjartkæra móður okkar,
GUÐRÚNU STEFÁNSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum,
í Seltjarnarneskirkju á Valhúsahæð fimmtudaginn
3. september kl. 13.00.
Jarðsett verður í Vestmannaeyjum laugardaginn
5. september kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Minningarsjóð
hjúkrunarheimilisins Eirar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigtryggur, Páll, Guðrún, Arnþór og Gísli.
✝
Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma,
HELGA JÓHANNSDÓTTIR,
Víðihlíð,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju fimmtu-
daginn 3. september kl. 13.00.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Jóhann Guðfinnsson,
Guðríður B. Guðfinnsdóttir,
G. Grétar Guðfinnsson,
Hallfríður H. Guðfinnsdóttir,
makar og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
KÁRI ÍSLEIFUR INGVARSSON
trésmíðameistari,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 25. ágúst, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. september
kl. 11.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Katrín Sigríður Káradóttir, Ölver Skúlason,
Stefán Arnar Kárason, Stefanía Björk Karlsdóttir,
Anna Káradóttir, Karsten Iversen
og aðrir afkomendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts
VALGERÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks á deild 4b
Hrafnistu fyrir mjög góða og hlýlega umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jónsson,
Guðni Már Brynjólfsson,
Dagur Brynjólfsson, Ína K. Árnadóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR KRISTJÁN ODDSSON
þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum,
lést laugardaginn 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
2. september kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjálparsveitir.
Herdís Tómasdóttir,
Tómas Már Sigurðsson, Ólöf Nordal,
Kristín Vilborg Sigurðardóttir, Haukur Hauksson,
Sigríður Björg Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ANNA BALDVINSDÓTTIR,
Fossheiði 62,
Selfossi,
andaðist miðvikudaginn 26. ágúst.
Hún verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar-
daginn 5. september kl. 13.30.
Geir Grétar Pétursson,
Grétar Pétur Geirsson, Brynhildur Fjölnisdóttir,
Heimir Freyr Geirsson, Margrét Þuríður Sverrisdóttir,
Sævar Helgi Geirsson,
Anna Lea Geirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og
langamma,
MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR,
Sunnuvegi 11,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði laugardaginn 29. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 7. september kl. 13.00.
Björn Ingvarsson,
Þorsteinn Björnsson, Anna Heiðdal,
Björn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar,
KRISTVEIG BJÖRNSDÓTTIR,
Safamýri 38,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti laugar-
daginn 29. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Björn Jóhannsson,
Sigríður Jóhannsdóttir,
Sveinn Jóhannsson,
Guðrún Jóhannsdóttir.