Morgunblaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
HRFÍ Tíbet spaniel hvolpar til
sölu - HRFÍ. Yndislegir Tíbet spaniel
hvolpar til sölu í lok október, mjög
góðir heimilishundar fyrir góða
eigendur! Eru 4 til 7 kg. Uppl. í síma
462 7786 og 864 7786.
Hreinræktaðar ungverskar
Vizslur til sölu. Enn eru eftir hvolpar
(rakkar) af þessari frábæru tegund.
Frábærir fjölskylduhundar og góðir
veiðihundar með réttri þjálfun. Ein-
staklega barngóðir og lyndir vel við
önnur gæludýr. Fljótir að læra og
þegar farnir að ganga í ól og vaða.
Mjög tignarleg og falleg skepna.
Allar nánari uppl. í s. 860 4280 eða í
gegnum kiddyoli@gmail.com.
Gullfallegir vel ættaðir Border
collie! Til sölu gullfallegir hvolpar!
Verðlaunaættir! Foreldrar heilsufars-,
eðlis- og skapgerðarmatsprófaðir.
Frábærir skapgóðir heimilis-, smala-
og vinnuhundar. Mjög spennandi got!
HRFÍ ættbókarskráðir!! www.heims-
endahundar.net - Uppl. í s. 897 1992.
Gisting
Orlofshús til leigu miðsvæðis á
Akureyri. Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Verönd og heitur pottur. Glæsilegt
útsýni yfir Pollinn. Frítt internetsam-
band. Upplýsingar í síma 618-2800
eða www.saeluhus.is
Geymdu gullin þín í Gónhól
Ferðabílar, hjólhýsi og fleira og fleira.
Upplýsingar og skráning á gonholl.is
og í síma 771 1936.
Hlýjar ferðavagnageymslur
í Borgarfirði. Löng reynsla. Gott verð.
Hýsi einnig báta o.fl.
Upplýsingar í síma 663 2130 og
magnus1220@ hotmail.com
Geymslupláss
Upphitað á höfupborgarsvæðinu til
1. maí, fyrir hjólhýsi, fellihýsi, tjald-
vagna eða annað. Verð 5 þ. kr. á fm.
Uppl. í síma 862 4685/893 9777.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Verslun
Kransar og útfararskreytingar
Kransar og útfararskreytingar ásamt
annarri blómaskreytingarþjónustu.
Opið alla daga vikunnar.
Blómalind, Suðurlandsbraut 52 (bláu
húsin Fákafeni). Sími 551 0300.
Óska eftir
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Bílaþjónusta
Geymslur
✝ Jóna Magnea Sig-urgísladóttir var
fædd 23. október 1926
að Klapparstíg 4 í
Keflavík, sem er núna
Túngata 5. Hún lést á
dvalarheimilinu
Garðvangi í Garði 8.
september sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur Sigurgísli
Guðjónsson skó-
smiður, f. 21.7. 1893,
d. 5.7. 1933 og Stef-
anía Vilhjálmsdóttir
húsmóðir, f. 29.3. 1902, d. 19.1. 1956.
Sigurgísli bjó alla tíð á Klapparstíg í
Keflavík en Stefanía á Stokkseyri og
á Eyrarbakka en kom ung til Kefla-
víkur. Jóna átti þrjár systur, elst var
Ragnheiður Guðmunda, f. 10.9.
1918, d. 1991, sem Sigurgísli átti áð-
ur en hann giftist Stefaníu og yngri
systur Jónu voru Guðbjörg, f. 4.10.
1928, sem lést á jólatrésskemmtun
þegar félagsheimilið Skjöldur brann
árið 1935 og Valgerður, f. 13.4. 1931
en hún lést árið 2002. Jóna giftist
Jóni Jóhannssyni vélstjóra 24.6.
1950, hann var fæddur í Keflavík
28.3. 1929 og lést 11.12. 2006. For-
og nýfæddan Árna Jóhann. Yngst er
Agnes Þóra. Jóhann Gunnar, f.
20.2.1957, giftur Ástu Elínu Grét-
arsdóttur og eiga þau fjögur börn.
Jón, í sambúð með Eddu Guðrúnu
Pálsdóttur og eiga þau Emmu og
Júlíu Ingu. Gunnar Þór, í sambúð
með Birgittu Maríu Vilbergsdóttur
og eiga þau saman Nóa Sebastían,
Gunnar Þór á einnig Sindra Snæ og
er móðir hans Elísa Guðnadóttir.
Sigurgeir Rúnar, í sambúð með Jónu
Maríu Jónsdóttur og eiga þau Jón
Rósmann.Yngst er Ingibjörg Ósk.
Jóna ólst upp í Keflavík á heimili
foreldra sinna og systra en faðir
hennar féll frá þegar hún var aðeins
7 ára. Hún sótti mikið til Eyr-
arbakka til móðurafa síns og ömmu
Vilhjálms Gíslasonar og Guðbjargar
Jónsdóttur á Ásabergi. Jóna gekk í
Barnaskólann í Keflavík og var í vist
á sumrin og var kokkur á sjó á síld-
arbátum áður en hún gifti sig. Hún
gekk í Húsmæðraskólann í Reykja-
vík. Hún vann í fiskvinnslu í frysti-
húsinu Jökli og síðustu starfsárin
vann hún við að matreiða fyrir kenn-
arana í Myllubakkaskóla.
Jóna verður jarðsungin frá Kefla-
víkurkirkju í dag kl. 13 og verður
jarðsett í Hólmsbergskirkjugarði.
eldrar hans voru Jó-
hann Gunnlaugur
Guðjónsson, vélstjóri
og útgerðarmaður, f.
31.5. 1897, d. 26.7.
1980 og kona hans
Guðrún Pétursdóttir
húsmóðir, f. 23.1.
1899, d. 22.9. 1984.
Jón var yngstur fjög-
urra systkina, þeirra
Guðjóns, f. 8.3. 1923,
d. 21.12. 1989, Péturs,
f. 23.6. 1925 og
Agnesar, f. 19.1. 1927.
Jóna og Jón eignuðust
fjögur börn, Stefaníu, Guðbjörgu og
tvíburana Jóhann Gunnar og Sig-
urgeir. Sigurgeir drukknaði 27.
september 1983. Stefanía, f. 25.1.
1950, hún er gift Pétri Sigurðssyni
og eiga þau þrjú börn: Kolbrúnu
Jónu, gift Torfa Þór Torfasyni og
eiga þau Andra Pétur, Stefaníu og
Tinnu. Sigurð, giftur Massiel Lis-
mett og Róbert Frey. Guðbjörg, f.
9.10. 1951, gift Árna Þór Árnasyni
og eiga þau þrjú börn, Söndru Dögg,
gift Davíð Guðmundssyni, og eiga
þau Daníel Aron og Helenu Maríu.
Árna, í sambúð með Hörpu Dögg
Magnúsdóttur og eiga þau Töru Lóu
Það var þann 17. júní 1975 sem ég
kom í fyrsta sinn á heimili verðandi
tengdaforeldra minna. Mér var boðið
inn og leið fljótlega vel í návist Jóns
og Jónu. Þetta var fallegt heimili og
bar húsráðendum góðan vitnisburð.
Síðan eru liðin 34 ár og aldrei slettist
upp á vinskap okkar Jónu. Hún tók
mér eins og ég er og ég hélt mikið
upp á hana. Hún var fjölskyldurækin
og annt um börn, tengdabörn og
barnabörn og reyndist þeim vel. Hún
hafði til að bera einstaka þjónustu-
lund og gaf mikið af sér.
Ein fyrsta samverustund okkar í
nokkra daga var þegar Árni fæddist
1978. Þá var ekkert til sem hét feðra-
orlof og þótti gott að feður væru við-
staddir fæðingu. Hún flutti til okkar
á Miðvanginn í Hafnarfirði þar sem
við vorum svolítið ein sér, mitt á milli
fjölskyldna okkar í Keflavík og
Reykjavík. Okkur er minnisstætt
fyrsta morguninn að brauðið var
smurt, skinkan var í slaufu og laxinn
í rós eins og á fínustu brauðstofu,
enda konan húsmæðraskólagengin.
Guðbjörgu varð að orði: „Aldrei hef-
ur mér verið boðið upp á svona áð-
ur!“ Þannig naut Jóna þess að dekra
við tengdasoninn.
Það var svo eitt árið að við hjónin
fórum í sumargarð í Hollandi og
Jóna kom með okkur ásamt Agnesi
yngsta barninu okkar og Ingibjörgu
frænku. Jóna var yfirleitt ekkert að
flíka áhugamálum sínum eða skoð-
unum, nema hún hafði haldið til haga
eftirprentunum af nokkrum frægum
málverkum eftir gömlu meistarana
sem voru á almanökum. Þá fékk ég
tækifæri til að spilla tengdamömmu
pínulítið og skreppa með hana á Van
Gogh-safnið í Amsterdam. Þar naut
hún sín innan um öll meistaraverkin.
Hugsað til baka, finnst mér þetta eitt
af fáum skiptum sem ég fékk al-
mennilega tækifæri til að dekra að-
eins við hana. Þar hafði hún marg-
faldan vinninginn gagnvart mér, eins
og flestum öðrum.
Eins og gefur að skilja voru tóm-
stundir ekki margar en Jóna starfaði
fyrir Slysavarnafélagið í Keflavík og
svo var hún geysilegur lestrarhestur
og las mikið í frístundum sínum. Hún
las allt, skáldsögur, ævisögur og ís-
lenskar bókmenntir og var tíður
gestur á bókasafninu.
Hún bar sig jafnan vel þó hún hafi
fengið stóran skammt af erfiðleikum
á lífsleiðinni. Sem ung stúlka missti
hún föður sinn og ólst upp hjá móður
sinni. Hún bjargaðist naumlega út úr
brunanum mikla í Skildi 1935 en
Guðbjörg litla systir hennar fórst,
þegar fólkið tróðst út. Þá missti hún
Sigurgeir, annan tvíburann, árið
1983.
Jón fékk svo heilablóðfall árið
2004 og annaðist hún hann eftir getu
það sem hann átti eftir ólifað, en
hann lést í desember 2006. Það var
þreytt kona, „hundleið á þessu“ eins
og hún sagði einhvern tíma við mig,
sem lagðist á spítalann í Keflavík í
fyrra vegna ýmissa kvilla sem hrjáðu
hana. Síðustu mánuðina dvaldi hún á
Garðvangi í Garði við góða umönnun.
Hún hressist nokkuð við veruna þar
og samskiptin við hitt heimilisfólkið.
En enginn flýr sín örlög og nú er hún
farin blessuð eins og var hennar ósk.
Það eru mikil forréttindi að hafa átt
svona góða tengdamóður eins og hún
var.
Árni Þór Árnason.
Elsku amma Jóna er fallin frá. Ég
kallaði hana alltaf ömmu Jónu þrátt
fyrir að hún væri ekki amma mín.
Það var í hinu árlega jóladagsboði
þeirra ömmu og afa Gunnars Þórs,
þeim Jónu og Jóni Blakk á Melteign-
um, sem ég kynntist henni fyrir al-
vöru. Ég og Gunni vorum nýbyrjuð
saman og hún tók mér opnum, hlýj-
um örmum. Upp frá því urðum við
mjög góðar vinkonur.
Þar var alltaf gaman að koma á
Melteiginn, í kaffi og spjall. Henni
fannst gaman að tala og mér þótti
gaman að hlusta. Hún var mikill
húmoristi, hlý og sagði sína mein-
ingu. Hún var ætíð svo vel til höfð og
virðuleg. Það var svo mikil reisn yfir
henni. Þegar afi Blakk veiktist stóð
hún sem klettur við hlið hans og þá
sá ég hversu mikil kjarnakona hún
var, með þykkan skráp síðan á árum
áður. Eftir að afi Blakk lést var vit-
anlega erfitt hjá henni en hún átti
góða að og allir sem gátu í fjölskyld-
unni tóku sig saman og reyndu að
gera hvaðeina til að létta henni lífið.
Þrátt fyrir einlægan vilja til að aka
henni hvert sem hún þurfti að fara
ákvað hún að kaupa lítinn bíl og fara
sjálf í búðina, í lagningu og annað.
Það var amma Jóna! Mikið var ég
stolt af henni. Einnig fór hún að
ganga meira og rölti oft við hjá okkur
á Kirkjuveginum enda ekki langt að
fara. Þá lék hún á als oddi, talaði og
lék við Nóa og var jafnvel í mat þeg-
ar hún gat. Hún vissi að okkar heim-
ili stæði henni alltaf opið, á nóttu sem
og á degi. Hún átti margar góðar vin-
konur sem henni þótti svo vænt um
og talaði svo oft um og greinilegt að
þar að baki var alvöru vinskapur.
Mig langaði alltaf að fara með henni
til Kaupmannahafnar til Ingibjargar
í heimsókn en hún treysti sér ekki af
ýmsum ástæðum. Þess í stað tókum
við stundum langa bíltúra og hún
grínaðist oft með það að ég hefði tek-
ið við af afa Blakk að taka hana með í
bíltúra.
Hún var stolt af sínu fólki hvar
sem það var og gladdist ávallt þegar
póstkort utan úr heimi bárust frá
börnum eða barnabörnum á ferða-
lögum þeirra.
Vegna anna undanfarið ár hitti ég
hana miklu sjaldnar en ég vildi. Við
Gunni fórum með Nóa síðast til
hennar rúmri viku áður en hún lést.
Þá gat ég knúsað hana, kysst og
kvatt.
Mikið á ég eftir að sakna þín,
amma Jóna mín.
Elsku Jóa, Stebbu, Gullu og fjöl-
skyldum sendi ég mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Heimurinn er fátækari en hann
var.
Birgitta María Vilbergsdóttir.
Okkur langar að minnast í örfáum
orðum fyrstu matráðskonu kennara í
Myllubakkaskóla, Jónu okkar, en
hún hefur sem slík verið viðmið okk-
ar alla tíð síðan. Margir kennarar,
sem hafa flutt sig í aðra skóla, hafa
einnig sagt að Jóna hafi verið þeirra
ímynd að hinni fullkomnu matráðs-
konu. Hún vakti yfir okkur sem móð-
ir, ekki eingöngu hvað matinn varð-
aði heldur sýndi hún starfi okkar
ótrúlega mikinn skilning, það skild-
um við þegar hún tók málstað kenn-
ara, m.a. í einu verkfallinu. Hún
sagði reyndar sjálf að viðhorf hennar
til vinnu kennara hefði breyst eftir
að hún fór að vinna innan skólans,
hún trúði því ekki áður að þeir ynnu
svona mikið.
Það var ómetanleg griðastund að
koma í mat til Jónu enda eldaði hún
eingöngu góðan mat. Hún var af
þeirri kynslóð sem kunni bæði að
nýta afganga og breyta þeim í kræs-
ingar og hún lagði á sig mikla vinnu
við að versla þar sem hagstæðast
var, gerði allt til að halda matar-
reikningnum lágum. Umhyggjsemi
hennar virtist ótakmörkuð, hún hafði
auga á hverjum fingri því hún vissi
alltaf hver átti eftir að borða, hver
vildi hvað og hún sinnti sérvisku
hvers og eins, Gunni fékk kokteilsós-
una sína og Ingi tómatsósuna. Þeir
sem unnu á kvöldin og um helgar sáu
gjarnan skilaboð á ísskápnum um að
Jóna hefði skilið eitthvert góðgæti
eftir, þeim til huggunar.
Þessi minningabrot eru sett á blað
til að votta þá virðingu sem við höf-
um ætíð borið fyrir þessari ljúfu vin-
konu okkar, Jónu M. Sigurgísladótt-
ur, og til að láta í ljósi þá hlýju sem
hún vakti með okkur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Við vottum öllum afkomendum
hennar samúð okkar.
Blessuð sé minning hennar!
Fyrir hönd gömlu þakklátu aðdá-
endanna,
Alma Vestmann.
Jóna Magnea Sigurgísladóttir
Frá Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Nú er vetrarstarfið að hefjast og
eins og verið hefur verður spilað á
sunnudögum kl. 19.
Fyrsta spilakvöldið er sunnudag-
inn 20.9. Þá verður spilaður eins
kvölds tvímenningur. Spilastjóri
verður Ólafur Lárusson. Spilagjald
er 600 kr. og er kaffi innifalið. Allir
alltaf velkomnir.
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
22 pör mættu til leiks í eins kvölds
tvímenning hjá Bridsfélagi Hafnar-
fjarðar mánudaginn 14. september.
Efstu pör urðu:
57,7% Hrund Einarsd. - Dröfn Guðmundsd.
57,5% Guðbr. Sigurbergss. - Friðþj. Einarss.
57,3% Halldór Þorvaldss. - Magnús Sverriss.
Næsta mánudagskvöld verður eins
kvölds tvímenningur en mánudaginn
28.september hefst þriggja kvölda A-
Hansen tvímenningur. Spilað í Flata-
hrauni 3 og hefst spilamennska kl. 19.
Gullsmárinn
Spilað var á 11 borðum mánudag-
inn 14. september. Úrslit í N/S:
Hrafnh.Skúlad.-Þórður Jörundss. 198
Magnús Halldórss.-Þorsteinn Laufdal 197
Auðunn Guðmss.- Jón Stefánsson 191
Gróa Jónatansd.- Kristm. Halldórss. 175
A/V:
Oddur Jónsson - Haukur Guðmss. 194
Guðrún Hinriksd.- Haukur Hannesson 193
Trausti Finnbogas. - Eðvarð Hallgrss. 189
Ragnhildur Gunnarsd.-Ásgr. Aðalstss. 179
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is