Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí k a 2 0 0 9 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA T E P P I Á H E I M I L I Ð Nýjar vörur bolir - vesti - buxur Meyjarnar Austurveri, Háaleitisbraut 68,sími 553 3305. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, Sími: 562 2862 LOKA–SALA 17.-27. september ALLT Á AÐ SELJAST HÆTTIR – meira fyrir áskrifendur Mannauður Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Verðmætasta auðlind allra fyrirtækja er mannauðurinn. Sá sem hefur besta fólkið stendur best að vígi. Í sérblaðinu Mannauðurinn skoðar Viðskiptablað Morgunblaðsins leiðir til að bæta starfsandann og styrkja starfsfólkið. • Hvernig má efla hópinn á erfiðum tímum? • Hvað þurfa stjórnendur að temja sér til að ná því besta úr starfsfólkinu? • Hvaða námskeið og hópeflislausnir eru í boði? • Hvernig getur símenntun og sjálfsstyrking bætt mannauð fyrirtækisins? • Hvað í vinnuumhverfi og kjörum skiptir mestu máli? • Hvernig má laða að - og halda í - hæfasta fólkið? Mannauðsmálin verða krufin til mergjar í veglegu sérblaði 8. október. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir 569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is Auglýsendur! Auglýsingapantanir eru í síma 569 1134 eða sigridurh@mbl.is til 5. október. FRAMKVÆMDIR hafa undanfarið staðið yfir við gerð nýrrar akreinar fyrir strætisvanga á Miklubraut, milli Stakkahlíðar og Kringlumýr- arbrautar. Vegna framkvæmdanna hafa orðið nokkrar tafir á umferð austur Miklubraut og að gatnamótum Kringlumýrarbrautar. Eru öku- menn hvattir til að sýna aðgæslu þegar þeir eiga leið um Miklubraut- ina. Loka þarf gönguleiðum tíma- bundið á meðan unnið er á þessu svæði og eru gangandi vegfarendur beðnir um að nota gönguleið við Stigahlíð á meðan. Áætluð verklok eru 1. október næstkomandi. Ný akrein fyrir strætó Morgunblaðið/Ómar SKAFLINN í Gunnlaugsskarði í Esjunni, sem hefur verið kennimark um sólbráð og hita vetrar og sum- ars, er nær horf- inn. Páll Berg- þórsson veður- fræðingur, sem lengi hefur fylgst með stöðu mála í Esjunni, segir um viku síðan skafl- inn hvarf sjónum manna. Enn muni þó vera svellbunkar þar efra en þeir sjáist ekki nema í sjónauka. Öld er síðan menn byrjuðu að fylgj- ast með skaflinum í skarðinu. „Frá 1965 til 1997 hvarf skaflinn aldrei, enda komu þá köld ár, til dæmis á hafístímabilinu fyrir 1970 og kalda tímabilinu eftir 1980. Frá sumrinu 1998 hefur snjó í skarðinu alltaf tekið upp, að frátöldum árunum 1999 og 2000,“ segir Páll, sem telur snjóalög í efstu brúnum Esju gefa vísbendingar um loftslagsbreyt- ingar. sbs@mbl.is Skaflinn í Esjunni er nær horfinn Páll Bergþórsson VEFRITIÐ Húnahornið greinir frá því að 34 ára gamalt veiðimet sé nú fallið í Blöndu þar sem veiðin í sum- ar er komin yfir 2.400 laxa. Gamla metið er frá árinu 1975 en þá veidd- ust 2.365 laxar. Að meðaltali hafa veiðst í ánni um 1.100 laxar á ári en formleg talning hófst árið 1975. Í fyrra veiddust í henni 1.000 laxar og nemur aukningin því 145%. Áin hefur löngum þótt fengsæl. Frá því að áin var virkjuð hefur hún breyst og veiðiaðferðirnar með. Er nú aðallega veitt á flugu og maðk en hið landsfræga húkk heyr- ir sögunni til. Þá má geta þess að Svartá er að ná 400 löxum og hafa ekki veiðst þar fleiri laxar í rúm tíu ár. Áætla menn að hún endi í 450 löxum þetta árið. Í Víðidalsá hafa veiðst 1.828 lax- ar og er veiðin þar hin mesta í rúm tuttugu ár. Að endingu vill Húnahornið koma því á framfæri að nú lítur út fyrir að Blanda fari á yfirfall næstu daga og því sé afar mikilvægt að veiðimenn fari að öllu með mikilli gát við veiðarnar. Nýtt veiði- met í Blöndu Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.