Morgunblaðið - 21.09.2009, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
Tvöfaldur Kópavogsbúinn og pönkhundurinn Dr. Gunni lét sig að sjálfsögðu ekki vanta þegar safnsýningin Heilbrigð æska - Pönkið og Kópavogurinn 1978 - 1983 opnaði í Tónlistarsafni Íslands.
Kristinn
GRUNNHUGSUNIN að baki
hinum svo kölluðu efnahagslegu
fyrirvörum við ríkisábyrgð vegna
Icesave er í meginatriðum tvíþætt.
Í fyrsta lagi er innbyggt í fyrirvar-
ana að ef grunnforsendur um þróun
efnahagsmála ganga ekki eftir muni
greiðslubyrðin af lánum Breta og
Hollendinga á tímabilinu 2016 til
2024 ekki sliga Íslendinga. Í öðru
lagi að ef allt fer á versta veg þá
skipta Íslendingar, Hollendingar og
Bretar með sér áfallinu – Íslend-
ingar verði ekki látnir sitja uppi einir með
skömmina.
Grunnforsendur fyrirvaranna eru þær að
ef spár Seðlabankans um 3% meðalhagvöxt
til ársins 2024 rætast og forsendur um 75%
endurheimtur á eignum Landsbankans
reynast réttar þá munu Íslendingar greiða
Hollendingum og Bretum að fullu höfuðstól,
vexti og vaxtavexti vegna Icesave-ósómans.
Íslendingar munu þá verja 6% af árlegum
hagvexti til þessa – af hverjum 100 krónum
sem íslensku þjóðarbúi áskotnast munu Hol-
lendingar fá tvær krónur og Bretar fjórar
krónur og Íslendingar geta ráðstafað 96
krónum til annarra hluta.
Ef hinsvegar forsendur bresta, sem gæti
t.a.m. orðið vegna þess að hagvöxtur verði
minni en áætlað er, eignir Landsbankans
reynist verðminni, gengis- og verðbólguþró-
un verði óhagstæð, neyðarlögunum verði
hnekkt eða að eitthvað annað óvænt kemur
upp á, þá borga Íslendingar ekki meira en
sem nemur 6% af hagvexti að hámarki.
Upphæðin sem eftir stendur 2024 fellur þá
annaðhvort niður eða nýtt Alþingi tekur
ákvörðun árið 2024 um að greiða eftirstöðv-
arnar eftir samningaviðræður. Íslendingar
deila þannig áhættunni með Bretum og Hol-
lendingum.
Viðsemjendur okkar eru klókir. Nú bjóða
þeir ríkisstjórninni að framlengja einfald-
lega lánið út í hið óendanlega ef forsendur
bresta – þeir bjóða Íslendingum að breyta
láninu í teygjulán. Þannig munu þeir fá
hverja krónu til baka á endanum óháð því
hvernig Íslandi mun farnast. Þetta er al-
gjörlega óviðunandi og valdhafarnir viðast
ekki hafa áttað sig á að þetta brýtur grunn-
hugsun efnahagslegu fyrirvaranna sem Al-
þingi hefur fest í lög.
Ef forsendur bresta liggur
fyrir að efnahagsleg
framþróun verður afleit á
Íslandi næstu árin. En það
skiptir ekki máli; Icesave-
skuldin bíður okkar á 5,55%
vöxtum hvernig sem árar.
Þetta er ekki hægt að sam-
þykkja. Ef lánstíminn er
lengdur fram yfir 2024 er
grunnur efnahagslegu for-
sendnanna brostinn og það
er ekkert smámál eins og
valdhafarnir virðast vilja
telja þingi og þjóð trú um.
Þetta er grundvallarbreyt-
ing sem setur málið aftur á byrjunarreit.
Það er tvennt í stöðunni núna. Að valdhaf-
arnir fari að lögum og tjái Bretum og Hol-
lendingum að Alþingi hafi sagt sitt síðasta
orð og að þeir verði annaðhvort að sam-
þykkja eða hafna fyrirvörunum. Valkost-
urinn sé að setjast að nýju að samninga-
borði með fyrirvara Alþingis að leiðarljósi.
Það er ekki valkostur fyrir valdhafana að
semja um lög sem Alþingi setti fyrir nokkr-
um dögum. Munum hverjir umbjóðendur
ríkisstjórnarinnar eru. Það eru Íslendingar,
ekki Hollendingar og Bretar. Það eru aðrir
sem hugsa um þeirra hagsmuni.
Að lokum er rétt að undirstrika að það
eru hrein og klár ósannindi að málið muni
setja allt endurreisnarstarfið í uppnám. Við
höfum sýnt alþjóðasamfélaginu með óyggj-
andi hætti með ríkisábyrgðinni að við viljum
semja á sanngjörnum nótum og þau skilaboð
hafa komist til skila. Í versta falli seinkar
þetta eitthvað afgreiðslu erlendu lánanna
sem skiptir litlu sem engu máli fyrir end-
urreisnina. Efnahagslegu fyrirvararnir
tryggja að hámarksupphæð skuldarinnar er
þekkt. Ef lánstíminn er lengdur út í hið
óendanlega hafa Íslendingar ekki hugmynd
um hver skuldin er í raun. Það skapar
óvissu sem seinkar því mjög að traust skap-
ist á Íslandi á alþjóðamörkuðum.
Eftir Tryggva Þór
Herbertsson
» Þannig munu þeir fá
hverja krónu til baka á
endanum óháð því hvernig
Íslandi farnast.
Tryggvi Þór
Herbertsson
Höfundur er prófessor í hagfræði og alþing-
ismaður.
Icesave breytt í teygjulán
SJALDAN er góð vísa of oft
kveðin. Með það í huga sting ég
niður penna og í þetta sinn til að
fjalla um læsi reykvískra barna
og unglinga. Læsi er lykill að
öllu námi og grundvöllur vel-
ferðar hvers og eins. Læsi er
regnbogahugtak yfir lestur, les-
skilning, ritun og læsi á alla
mögulega miðla og mikilvægt að
rugla því ekki saman við lestur,
sem er einungis einn angi læsis.
Hjá Reykjavíkurborg er unnið
gott starf á sviði menntamála en það er óhætt
að segja að læsi barna í grunnskólum borg-
arinnar hefur fengið verðskuldaða athygli –
sem skilað hefur árangri. Félagsvís-
indastofnun skilaði á dögunum af sér skýrslu
um stöðu lestrarkennslu í íslenskum grunn-
skólum. Niðurstöður skýrslunnar eru mjög í
takt við mína upplifun síðan ég tók sæti í
menntaráði Reykjavíkurborgar. Lítið er um
formlega lestarkennslu á mið- og efsta stigi
grunnskólans og námsgögn, kennsluaðferðir
og matstæki vantar fyrir eldri nemendur
grunnskólans. Eins telja skýrsluhöfundar að
auka þurfi samstarf milli skóla, skólastjórn-
enda, sérfræðinga, skólaskrifstofa og mennta-
stofnana við að þróa aðferðir til lestr-
arkennslu og að nauðsynlegt sé að efla
skilning kennara og skólastjóra á samþætt-
ingu lestrarkennslu við allar námsgreinar.
Samþætting er hér enn og aftur hinn stóri
galdur.
Á réttri leið
Við erum þó á réttri leið og sérstaklega er
ég stolt af því að hafa komið á samstarfi við
Háskólann á Akureyri í formannstíð minni í
menntaráði borgarinnar. Það leiddi til innleið-
ingar á svokölluðu „byrjendalæsi“ sem ellefu
grunnskólar í Reykjavík taka nú þátt í. Færni
nemenda í lestri hefur aukist í öllum skól-
unum ellefu og nú þegar hafa fleiri skólar lýst
yfir áhuga á að taka upp byrjendalæsið í
lestrarkennslu yngstu árganganna næsta vet-
ur. Eins er ég stolt af því að hafa komið á
samstarfi menntasviðs Reykjavíkur og rann-
sóknarstofu um mál, þroska og læsi á
menntavísindasviði Háskóla Íslands. Sá
samningur inniber m.a. fræðslu til foreldra
barna sem eru að hefja lestrarnám, námskeið
um lestrarkennslu byrjenda fyrir kennara og
stuðning menntasviðs við rann-
sóknir á þróun máls og læsis
barna og unglinga. Með samn-
ingnum við rannsóknarstofuna
vildi ég auka skilning, efla sam-
starf og umræðu um lestur, læsi
og lesskilning barna, unglinga og
ungmenna. Umræðan hefur oft á
tíðum einskorðast við upphaf
lestrarkennslu, hvort hún eigi að
hefjast við fimm eða sex ára ald-
ur. Það er aukaatriði ef okkur
tekst að skapa lærdómssamfélag
á báðum skólastigum sem ein-
kennist af skapandi náms-
aðferðum þar sem börn fá stöð-
uga örvun í öllum þáttum tungumálsins, hvort
sem það er lestur, lesskilningur, orðaforði,
málskilningur, rím, ljóð, bókmenntir, hlustun,
tjáning eða skapandi skrif. Leikskólar um alla
borg státa af frábærum þróunarverkefnum
tengdum leik og ritmáli, þjóðsögum, rími og
kveðskap og möguleikar leikskólastigsins eru
óþrjótandi þegar kemur að örvun tungumáls-
ins hjá ungum börnum.
Góð vísa
Samkvæmt mælingum PISA koma íslensk-
ir nemendur ekki nægilega vel út í lesskiln-
ingi, en lesskilningur er algjört lykilatriði í
námi barnanna okkar og möguleikum þeirra á
að tileinka sér færni í námi, lífi og leik. Fyrir
utan þá staðreynd að enginn einn þáttur örv-
ar hin ólíkustu skilningarvit betur en þegar
við leggjum höfuðið í bleyti lesskilningsins!
Markinu er ekki náð þegar barn hefur lært að
lesa, áfram þarf að vinna með læsið. Læsi
upplýsinga, læsi á bókmenntir, læsi og túlkun,
læsi og tjáningu – bæði á rituðu sem og
mæltu máli. Önnur vísa sem sjaldan er of oft
kveðin; niðurstöður rannsókna benda til þess
að stuðningur foreldra við lestrarnám barna
sinna skipti sköpum samhliða hágæða lestr-
arkennslu í skólanum. Því er brýnt að við for-
eldrar lesum fyrir börnin á hverjum degi, líka
þegar þau eru orðin læs og að við hvetjum
þau áfram í skapandi skrifum og tjáningu.
Það er besta veganestið. Og bragð er að þá
barnið finnur.
Besta veganestið
Eftir Oddnýju
Sturludóttur
Oddný
Sturludóttir
» Læsi er lykill að öllu námi
og grundvöllur velferðar
hvers og eins.
Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.