Morgunblaðið - 21.09.2009, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
FRANCESCA er fyrstamynd leikstjórans Bob-bys Paunescus sem skrif-aði einnig handritið. Hún
var frumsýnd í Feneyjum fyrir
skemmstu og olli þar miklu fári.
Sagan segir af Rúmenum en Ítalía
hefur löngum verið fyrirheitið land í
huga þeirra þó að móttökurnar sem
farandverkamenn hafa fengið þar
hafi verið allt annað en blíðar. Per-
sónur myndarinnar lýsa Ítölum sem
örgustu rasistum og þjóðþekktir
einstaklingar eru rægðir svo um
munar. Myndin var tekin úr sýn-
ingu og Ítalir keppast nú við að
knýja í gegn ritskoðanir eða stíft
sýningarbann á hana.
Viðbrögð hinna smánuðu Ítala
eru of harkaleg og jaðra við að vera
fasísk atlaga að tjáningarfrelsi. Þó
að gagnrýni myndarinnar eigi
örugglega rétt á sér er hún stein-
geld þar sem áhorfandinn hefur
litla samúð með málstað Rúmen-
anna. Þeir virðast vera sjálfum sér
verstir og kalla yfir sig andúð ná-
grannaríkja. Paunescu benti rétti-
lega á að Rúmenar kæmu jafn illa
út úr myndinni og Ítalir á blaða-
mannafundi fyrir skemmstu. Hann
hefði fyrst og fremst viljað takast á
við ímyndar- og samfélagskrísu
landa sinna. Rúmenar hafa að hans
mati ekki fundið sér réttan farveg
hingað til en séu uppfullir af skap-
andi orku og vilja til að rísa úr ösku
ófrægðar.
Myndin væri áhugaverðari ef
áhorfendur gætu borið kennsl á
þessa þætti í fari persóna. Sögu-
hetjan Francesca er barnslega ein-
föld og draumar hennar skýjaborg-
um líkastir. Hún er til í að borga
fúlgur fjár og undirselja ítalskri
fjölskyldu vinnu sína, jafnvel blíðu,
til að geta hugsanlega einhvern tím-
ann rekið leikskóla fyrir börn rúm-
enskra innflytjenda. Flestir sem
hún þekkir benda henni á hversu
vonlaus og órakenndur þessi
draumur er en hún stendur staðföst
á sínu. Myndin sem frásögnin dreg-
ur upp af Rúmenum er ekki álitleg
og áhorfendur langar líklega fæsta
til að kynnast landi og þjóð frekar
neitt sérstaklega. Það er ekki einu
sinni hægt að binda vonir við að
rætist úr ástandi persóna þar sem
þær eru upp til hópa glæpamenn og
ógæfufólk.
Myndin er stríð en ekki áleitin.
Hún er gerð eftir forskrift frönsku
nýbylgjunnar en reynir ekkert nýtt
eða frumlegt. Engin leikandi gleði
með miðilinn er sjáanleg og kvik-
myndafræðileg ástríða getur ekki
talist mikil. Tilvistarkreppa persóna
og afbygging hefða og hugmynda-
fræðilegra gilda virðist sprottin upp
úr þjóðernispirringi leikstjórans og
því vel til þess fallin að valda stormi
í vatnsglasi.
Háskólabíó, RIFF 2009
Francesca Leikstjórn og handrit: Bobby Paunescu.
Aðalhlutverk: Monica Birladeanu, Doru
Boguta, Teo Corban. 94 mín. Rúmenía,
2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYND
Ofmetin „Engin leikandi gleði með
miðilinn er sjáanleg ... segir m.a. í
dómi um Francescu.
Stormur í vatnsglasi
2 VIKUR Á TOPPNUM
Í BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 6 og 9 Sýnd kl. 6
45.000 manns í
aðsókn!
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
STIEG LARSSON
Stranglega bönnuð
börnum innan 16 ára
Yfir 46.000 manns
í aðsókn!
ALLRA
SÍÐUST
U SÝNIN
GAR!
The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Karlar sem hata konur kl. 5 - 6:30 - 8 B.i.16 ára
The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 Lúxus Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 - 10 B.i.16 ára Ísöld 3 3-D (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Fyndnasta rómantíska
gamanmynd ársins
Uppgötvaðu ískaldan
sannleikann um karla og konur
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 10 (Powersýning)
ÓTRÚLEG
UPPLIFUN
Í 3D
SÝND Í SMÁRABÍÓI
STÚLKA
N SEM L
ÉK SÉR
AÐ ELD
INUM
FRUMSÝ
ND 2. O
KTÓBER
FORSAL
A Í FULL
UM GAN
GI Á MI
DI.IS
POWER
SÝNIN
G
Á STÆ
RSTA D
IGITAL
TJALD
I LAND
SINS
KL. 10
:00
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
ðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
Mánudagur, 21. september
Monday, September 21th
Wolfgang Amadeus Mozart er almennt
talinn merkasta tónskáld sögunnar, jafnvel
þótt hann hafi látist aðeins 35 ára gamall.
Myndin segir sögu Antonios Salieri sem
var miðlungstónskáld í Vínarborg samtíða
meistaranum.
Q&A með leikstjóranum,
Miloš Forman, kl. 19:00
Amadeus í Háskólabíó
Q&A með Miloš Forman
13:00 Blygðunarlaust •Hellubíó
14:00 Barnastuttmyndir •Norræna húsið
Ófræging •Hafnarhúsið
16:00 Orð í sandinn • Iðnó
Garðastræti •Norræna húsið
Fórnarlömb auðsins •Hafnarhúsið
Kelin •Háskólabíó 3
16:40 Galopin augu •Háskólabíó 2
17:00 Vafningar •Háskólabíó 1
17:15 Er ég nægilega svartur, að þínu mati? • Iðnó
18:00 Hádegisverður um miðjan ágúst •Norræna húsið
Farmiði til paradísar •Hafnarhúsið
Konur í rauðum sokkum / Umoja •Hellubíó
Mamma er hjá hárgreiðslumanninum •Háskólabíó 3
Allt á floti •Háskólabíó 4
18:40 Efnispiltar •Háskólabíó 2
19:00 Amadeus •Háskólabíó 1
20:00 Mánudagsmyndir
Olivier Mellano tónleikar • Iðnó
Dansandi skógur •Norræna húsið
Árbúar •Hafnarhúsið
Að deyja sem karlmenni •Háskólabíó 3
Vitringarnir þrír •Háskólabíó 4
20:40 Stingskötu-Sámur •Háskólabíó 2
21:40 Lourdes •Háskólabíó 1
22:00 Hróarskelda • Iðnó
Persona non grata •Norræna húsið
Betra líf •Háskólabíó 4
22:20 Á vegum tvíkynhneigðra •Hellubíó
Saman •Háskólabíó 3
22:40 Íslenskar stuttmyndir 1 •Háskólabíó 2
23:20 Ískossinn •Háskólabíó 1
KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI í Toronto, sem er ein sú stærsta í
þeim geiranum, lauk á laugardaginn. Var það myndin Precio-
us: Based on the Novel Push by Sapphire sem landaði hinum
eftirsóttu People’s Choice-verðlaunum á hátíðinni, en það
er sjálf Oprah Winfrey sem framleiðir myndina.
Gerist hún í Harlem, og er fremur ömurleg sýn á líf
þéttholda unglingsstúlku sem þarf að þola kynferðis-
legt ofbeldi af hendi föður síns. Myndin hefur verið lof-
uð út í eitt síðan hún var frumsýnd á Sundance-
hátíðinni í janúar og þessi árangur myndarinnar í To-
ronto gefur henni gott veganesti inn í Óskarinn, en
Slumdog Millionaire vann sömu verðlaun á Toronto
fyrir ári og tók svo Óskarinn með trompi eftir það.
Það sem vakti auk þess athygli á hátíðinni var
að lítill hluti þeirra mynda sem var sýndur náði
að tryggja sér dreifingarsamninga og hefur óð-
háði kvikmyndabransinn vestra verið í hálf-
gerðum lamasessi undanfarin tvö ár.
Gagnrýnendur pikkuðu svo út tvær
myndir sérstaklega, indversku
myndina The Man Beyond the
Bridge og hina frönsku Hade-
wijch.
Precious sigraði í Toronto
Glöð Aðal-
leikkonan,
Gabourey
„Gabby“ Si-
dibe, var að
vonum kát.