Vilji - 01.10.1927, Blaðsíða 9

Vilji - 01.10.1927, Blaðsíða 9
V IL J I 7 og skal jeg nú gera grein fyrir henni. Menn munu ef til vill segja, að þetta komi ekkert því máli við, sem fyrirsögnin gefur í skyn, að hjer eigi að ræða. En jeg hygg, að með því að sýna fram á, hvort aðferð skól- anna, sem sje að veita nemendum sínum nasasjón af ýmsum greinum vísindanna, nál tilgangi sínum eða ekki, sem vafalaust á að vera að búa þá undir lífið, þá sýni jeg um leið fram á, hvort við lærum fyrir lífið eða skólann. Nú á dögum hafa menn hjákátlega tröllatrú á svo- kallaðri „almennri mentun“ — orð, sem mjer er hálf- illa við. Menn læra til þess að fá „almenna mentun“. En hún verður, að mínu áliti, svo almenn eða tvístruð þessi blessuð mentun okkar, að það verður alls engin mentun. Við lesum ýmist stærðfræði, sögu, guðfræði og fornaldarfræði, hvort sem við höfum áhuga fyrir þeim eða ekki, — hvað innan um annað, til þess að ment- unin sje „almenn'1. En allir, sem eitthvað kunna, kunna eitthvaS sjerstakt. Frá hinu sjerstaka opnast gluggar út yfir hið almenna. En það liggja langtum færri leiðir frá hinni almennu þekkingu til sjerþekkingarinnar. Það er því, að mínu áliti, eingöngu tímatöf eð vera að lesa um efni, sem maður hefir engan áhuga fyrir, nema þá aðeins, að það sje nauðsynlegur liður í þeirri þekkingu, sem maður þarf að hafa til þess, að geta gegnt því starfi, sem maður hefir valið sjer í lífinu. — Spyrji því einhver: „Hvað á jeg að lesa?“ þá svara jeg: „Lestu miklu heldur tiu bækur um eitt efni, sem þú hefir áhuga fyrir, en hundrað bækur um hundrað misjöfn efni. Jeg hefi hitt fyrir menn, sem hafa lesið fjölda bóka um ýms efni, sem þeir hafa ekki haft minsta áhuga fyrir. Þegar jeg hefi svo spurt þá, hvers vegna þeir hafa verið að lesa um þetta, þá hafa þeir svarað: „Jú, maður verður að kynna sjer öll þessi mál, til þess að geta „talað með“!!“ — Slíkri vitleysu hirði jeg ekki um að eyða orðum að. Hlutverk okkar í lífinu er

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.