Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 13

Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 13
VI L J I 43 Undrunin breyttist í gleði — óumræðilega, ákafa gleði. Hann fór í skyrtuna og batt á sig bindið og þreytt- ist ekki á, að skoða sig í speglinum. Og svo skórnir. Hann gat í hvorugan fótinn stigið. Hver skyldi hafa sent honum þetta? Hann leit á skriftina. Það var rit- hönd kaupmannsdótturinnar. Það var barið að dyrum. Hann opnaði dyrnar, úti fyrir stóð kaupmannsdóttirin. „Pabbi og mamma biðja þig um að koma niður og vera hjá okkur í kvöld“. Kjartan kom í fyrstu engu orði upp, en svo stamaði hann: „Þökk fyrir, þökk fyrir alt“. Hann hefir síðan verið hjá þeim mörg aðfangadags- kvöld og er nú komin í heilagt hjónaband. Konan er kaupmannsdóttirin. Einn af þeim ungu. Minni íslands flutt á ársskemtun „Fjölnis" hinn 13/11 1927. Háttvirta samkoma! Jeg er viss um það, að fegurri sjón hefir víkingurinn Garðar Svafarsson aldrei sjeð, en þegar hann sá Island rísa úr hafi fyrsta sinni. Við skulum segja, að ]jað hafi verið fagran sumar- dagsmorgun. Bárurnar gjálfruðu ])ýtt við sólheita sand- ana. Lim skógarins bærðist í blænum, sem bar blóma- angan móti hinum þreyttu sæförum, sem vikum saman höfðu velkst í ölduróti úthafsins. Alt var hljótt, aðeins bárugjálfrið, árniðurinn og fuglakvakið rauf þögnina. Þá átti ísland enn enga mannlega íbúa. Skógarnir teygðu sig upp í fjallahlíðarnar og þöktu mikinn hluta láglendisins. En fyrir ofan skógana tóku við sandar, hraun og urðir og svo hvítar kórónur jökl- anna, sem bar við bláan himininn. Þung hitamóða hvíldi yfir landinu.

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.