Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 18

Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 18
48 VILJI að hann vill framfylgja lögum ]>eirrar stofnunar, sem hann er settur yfir? Ritháttur S. H. virðist nokkuð fífldjarfur, þar sem hann tekur til athugunar 11. gr. skólareglnanna. Segir hann þar, að nemendur skólans hafi „margir hverjir“ orð á sjer fyrir drykkjuskap. Enda þótt jeg sje sann- færður um, að almenningur tekur ekki málæði ,,Vilja“ sem algildan mælikvarða, þá þykir mjer samt ilt, að við nemendur Mentaskólans liggjum undir þessu ámæli, og geri jeg því S. H. tvo kosti: að hann annaðhvort aftur- kalli þessi ummæli sín opinberlega í riti sínu, eða þá, að hann sanni það með gildum rökum, að „margir hverj- ir“ af nemendum Mentaskólans sjeu drykkjumenn. Jafnframt vil jeg minna S. H. á það, að hafa gát á penna sínum í framtíðinni, ])ví að hættulegt er fyrir ]>á að lenda í grjótkasti, sem í glerhúsi búa. Óskar Þórðarson. r Svar til Oskars Þórðarsonar. Umsorgun jeg enga ber, óðar grugg nær drýpur, ]>ó hrjóti bein úr hendi mjer, hver ]>að ralckinn grípur. (Bólu-Hjálmar). Ó. Þ. byrjar á því í grein sinni „Málæði æskunnar", að tala um, að ekki sje gott, þegar æskan stígur út fyrir takmörk þekkingar sinnar, og kollsiglir sig þegar út á ólgusjó lífsins kemur. Orðum þessum er eftir því, sem best má skilja beint að mjer, fyrir tvær greinar mínar, er jeg hefi látið frá mjer fara í „Vilja“. Mjer er eigi kunnugt um það, að jeg hafi fengið aðra opin- bera árás fyrir þessar greinar mínar, heldur en grein Ó. Þ. „Málæði æskunnar“, svo mjer finst eigi mögu-

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.