Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 21
VI L J I
51
þá er ekki að undra þó að nem. vilji hafa þær lýtalaust
úr garði gerðar, og að allar breytingar og athugasemdir
viðvíkjandi reglunum sjeu á pappírinn settar; þá fyrst
er ]>að skylda nem. að breyta eftir ]>eim, en fyrr ekki.
I>ar sem Ó. Þ. er að brigsla mjer um að jeg riti
íslenska tungu mjög gallaða, skal jeg aðeins geta þess
að jeg mun hvorki nú nje framvegis leita ráða lians í
þeim efnum. Eins hefi jeg ekki ætlað mjer að láta hann
leggja fyrir mig verkefni, sem jeg tek mjer að rita um,
og allra síst þar sem að athugasemd hans viðvíkjandi
því er sprottin af fljótfærni og heimsku. Jeg tók það
hvergi fram í grein minni ,,Ávarp“ hvenær eða hversu
langt yrði þar til jeg ritaði greinina „gildi námsins“,
og þar er jeg hygg mjer óhætt að halda því fram að
jeg muni eigi eiga eftir að vera 18 ára alt mitt líf, ef
dauðinn sækir mig ekki svo snögglega, þá hygg jeg
rjett að sú athugasemd Ó. Þ. geti eigi verið sprottin af
öðru en undanfarandi skýringum.
Jeg bið Ó. Þ. hiklaust um að sanna það, að jeg
hafi auðmýkt mig fyrir þeim mönnum, sem jeg hefi
ritað um í ,,Vilja“.
Það er rjett hjá Ó. Þ., að jeg álít að lög sjeu til
þess, að þeim sje framfylgt, á meðan þau eru ekki úrelt
orðin*). En það mun jeg geta sagt Ó. Þ., að jeg álít
lög ekki til þess gjörð, að yfirvöldin noti þau sem
þrælkun og drep, eða að þau megi að nokkru leyti
beita valdi sínu í anda íhaldsþræla.
Ó. Þ. segist vera „sannfærður um, að almenningur
tekur ekki málæði ,,Vilja“ sem algildan mælikvarða“,
]>ar sem jeg mintist á að „margir hverjir“ nem. Menta-
skólans hafi orð á sjer fyrir drykkjuskap. Þarna vh'ðist
sem sk.ilningur Ó. Þ. bresti, þar sem jeg tala um að þeir
hafi orð á sjer fyrir drykkjuskap, þá hlýtur hann að
sjá, að jeg hefi miðað undanfarandi orð mín eftir orð-
rómi almennings. Jeg er þess fullviss, að Ó. Þ. hefir
*) Sbr. 1. gr. reglnanna.