Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 16
46
VILJ I
Málæði æskunnar.1)
Fyrir skömmu rjeðust nokkrir ungir og áhugasamir
menn í það, að gefa út mánaðarrit; heitir ritið ,,Vilji“
og er helgað æskunni, en ritstjóri þess er Sigurður Hall-
dórsson. Það er ekki nema gleðilegt og stór vísir til þjóð-
þrifa, þá er æskan finnur hjá sjer þrótt og treystir sjer
til stórræða, en hitt er verra, þegar hún stígur út fyrir
takmörk þekkingar sinnar og dregur að hún hverja dulu,
sem til er, og kollsiglir sig síðan, þegar út í ólgusjó lífs-
ins kemur; er þá ver farið en heima setið.
J>að er sagt um unga hana, að þeir fyllist ofmetnaði
og ætli sjer verk um of, þá er þeir fyrst byrja að stíga
í vænginn. Mjer virðist ritstj. ,,Viljans“ hafa farið líkt í
þeim tveim greinum, sem hann hefir birt þar, síðan ritið
hóf göngu sína. Því að með þeim hygg jeg, að hann hafi
vakið upp þann draug, er honum muni reynast torveldur
viðureignar, ef hlutaðeigendur fylgdu málinu fast fram.
Fyrri grein ristj. læt jeg afskiftalausa, og ]>að sökum
þess, að hún kemur mjer ekki við, en hin síðari álít jeg,
að standi mjer nokkru nær, og mun jeg því taka það til
athugunar, er mjer virðist athugaverðast við hana, í sem
allra fæstum orðum.
Athugasemd mín varðar þann hluta greinar ritstj.,
]>ar sem hann „fettir fingur“ út í reglur Mentaskólans.
Kennir þar margra grasa og sumra ekki sem fallegastra.
Mest þykir mjer bera þar á van]>ekkingu ritstj. og of-
drambi hans. Hygst hann að sýna fram á fánýti reglna
skólans, en verður fótaskortur í fáfræði sinni. Hann rugl-
ar ekki aðeins saman reglugerð Mentaskólans og reglum
fyrir nemendur skólans, heldur veður hann dýpra í vit-
leysunni með ]>ví að halda að til sjeu margar gildandi
a) Grein þessi kom út í Skólablaðinu ]). 10. des., en
eftir áskorun nokkurra skólapilta kemur hún einnig út
hjer.