Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 22
52
V I L J I
oftar en einu sinni heyrt menn tala um drykkjuskap
Mentaskólanemenda, að vísu hefir hann mjög verið
ýktur, eins og alt annað, sem almenningur lætur frá
sjer fara. — Ef að Ó. Þ. ætlar að halda því fram, að
það sje ekki rjett, sem jeg tek fram í þeim efnum, þá
er ekki aðeins almenningi það ljóst, heldur og einnig
honum sjálfum, að hann stendur þar uppi, sem boðberi
eða varnarmaður lyginnar. — Að sanna slíkan orðróm
sem þenna verður eigi gert á annan hátt en þann, að
nefna þá nem. skólans með nafni, sem drykkfeldir eru
taldir vera, og sanna það svo upp á hvern einn af þeim
fyrir sig. En slíkur ódrengur gagnvart fjelögum mínum
er jeg ekki.
Siguröur Halldórsson.
Æskan er óðum að rísa úr rekkju. Fjelag ungra
jafnaðarmanna, sem nýlega hefir stofnað verið hjer í
bænum, hefir tekið sjer fyrir hendur að gefa út fylgiblað
með „Alþýðubl.“; er það ritað af fjöri miklu, en engri
hálfvelgju. Er ánægjulegt til þess að vita hversu æskan
er mjög farin að láta til sín heyra, á flestum sviðum. —
Þarna hafa ungir jafnaðarmenn sýnt mestu framfarirnar
og þorið allra stjórnmálaflokkanna. Nú ættu hinir að
rísa úr leginu, og berjast öruggir fyrir sínum málstað, og
vita þannig, hverjum best veitir.
S. H.
Sannleikurinn.
Hvað er sannleikur? Ef jeg gæti svarað því, yrði
jeg frægur maður á samri stund. Því hefir enginn svar-
að, og enginn getur svarað því. Pílatus varpaði þessari
spurningu fram í vandræðum sínum, en hann hefir ekki
fengið svar við henni ennþá. Vitringar og spekingar
hafa brotið heilann um þetta efni, hugsað um það sýknt