Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 25

Vilji - 01.12.1927, Blaðsíða 25
V 1 L J I 55 kastar af sjer reifunum. Ef einhver kynslóð fyllist þeim sannleikshroka, að hún þykist ein alt vita, þá er það talandi tákn þess, að hún veit fátt eða ekkert. Þá kem jeg að því atriði í sambandi við sannleik- ann, sem er þyngst á metunum, en það er sannleiksást og sannsögli. Það hvorttveggja er náskylt hreinskilni og bersögli. Alt það, sem er andstætt því, er af lyginnar rótum og fylgifiska hennar, óhreinskilni og hræsni. Sannleiksást er hverjum manni nauðsynleg, sem halda vill sál sinni hreinni og vera trúr því, sem best er í honum. Sjerhver maður finnur, að sannleikurinn hækkar hann að sama skapi og lygin lækkar hann. Hann eykur manngildi hans, styrkir siðferðisþrek hans, hann vex yfirleitt af sannleikanum. En það er þá skylda manns að segja altaf satt? Slík spurning sem þessi, reynir mjög á máttarstoðir slíks moldarbarns, sem jeg er. En jeg segi: maður á að segja sannleikann eins oft, og unt er. Jeg segi það þó alls ekki af því, að jeg sje nein fyrirmynd í því efni, heldur aðeins af því, að jeg veit, að það er rjett og gott. Það er oft freistandi að grípa til lyginnar, og getur jafnvel orðið ,,nauðsynlegt“. En nauðsyn lvginnar er vegna ófullkomleika mann- anna. Því ófullkomnara sem umhverfið er, sem mað- ur lifir og hrærist í, því oftar verður maður að ljúga. Lygin er ófullkomin og þessvegna dafnar hún best, þar sem hún er í samræmi við umhverfið. En auðvitað er sannleikans mest þörf þar sem lyginni er hossað hæst, én trúboðar sannleikans verða sjaldan hökufeitir í ríki hennar, og því þykir mörgum ófýsilegt að leita þangað. Sannleikurinn gerir menn óvinsæla og sviftir þá allri von um jarðnesk gæði. Gamall málsháttur segir: gaktu fyrir hvers manns dyr og segðu aldrei nema satt, og muntu þá hverjum manni hvumleiður verða. Það hefir verið veraldarvanur náungi, sem gerði þenna málshátt. Jeg freistast til að telja hann algildan sannleika. Menn þola ekki að heyra sannleikann. Þeir fá aðsvif. Sann-

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.