Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2011, Page 12

Skinfaxi - 01.05.2011, Page 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands „Mótið leggst feiknar- lega vel í mig og ég hef orðið þess áskynja að fólk frá UÍA, sveitarfélaginu og UMFÍ hefur verið að vinna mjög skipulega að öllum undirbúningi undanfarna mánuði. Hér eru allar aðstæður eins og best verður á kosið og ég er ennfremur sannfærður um að við verðum hérna í rjómablíðu á þessum tíma. Gamall veðurspekingur er búinn að spá því. Mér dettur ekki til huga að draga það í efa og þá er ekki ónýtt að bjóða fólki til svona hátíðarhalda hér,“ sagði Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, í spjalli við Skinfaxa. Björn sagði þetta verkefni mjög spenn- andi fyrir sveitarfélagið en auðvitað yrðu menn að sníða sér stakk eftir vexti. Hér hefðu verið byggð upp myndarleg íþróttamann- virki en verið væri að gera ákveðnar viðbæt- ur og mæta þar með þeim kröfum sem gerð- ar hefðu verið. Björn sagði að það yrðu hlutir sem myndu nýtast sveitarfélaginu inn í fram- tíðina og þeirri fjárfestingu væri vel varið. „Við þurfum að tjalda öllu til þessa þrjá daga sem mótið stendur og líka dagana fyrir og eftir til að sinna keppendum og gestum almennilega. Það er ákveðin viðurkenning fólgin í því að fá að halda þetta mót. Það er viðurkenning á því að hér sé fólki treyst til að standa að slíku verkefni. Mótið hefur í mínum huga almennt mjög góð áhrif til íþróttaiðk- ana á unglingana sem hér eru. Kannanir, sem gerðar hafa verið hér á meðal unglinga, benda til þess að hér sé íþróttaiðkun almenn og jafnvel meira um hana en annars staðar á landinu. Það er merki um að við eigum ein- hvers góðs að vænta frá þessum krökkum. ALLT Í KRINGUM MÓTIN ER Á JÁKVÆÐUM NÓTUM Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs Íþróttahefð hefur verið mikil á þessu svæði í gegnum árin. Oft eru menn að gagnrýna að sett sé fjármagn í þennan geira en auðvitað verða menn svo að passa sig á því hvernig farið er með þessa fjármuni. Yfirleitt eru þetta fjármunir sem skila sér með öðrum hætti þegar til lengri tíma lætur. Það er reynsla manns,“ sagði Björn. – Það er almennt álit fólks að Unglingalands- mótin hafi skapað sér góða ímynd. Ertu ekki sammála því? „Jú, svo sannarlega. Í undirbúningi okkar höfum við verið í góðu sambandi við Borg- firðinga sem héldu mótið í fyrra og ég sé ekki annað en að við stöndum frammi fyrir jafngóðu móti hér. Ég get ekki neitað því að ég er fullur tilhlökkunar og hlakka mikið til mótsins.“ – Hvað eru Unglingalandsmótin í huga þínum? „Í huga mínum eru þau fyrst og fremst vettvangur fjölskyldunnar. Þetta er í raun fjölskyldusamkoma og vettvangur fyrir ung- lingana til að spreyta sig við jafnaldra sína. Það var hárrétt ákvörðun að setja mótið á verslunarmannahelgina og við skulum ekki heldur gleyma því forvarnagildi sem þessi mót hafa. Allt í kringum mótin er á jákvæð- um nótum.“ Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljóts- dalshéraðs.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.