Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2011, Qupperneq 15

Skinfaxi - 01.05.2011, Qupperneq 15
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15 á Fljótsdalshéraði Kárahnjúkavirkjun. Möðrudalur. Stórurð: Ein af mestu náttúruperl- um Austurlands. Hún er vestan Dyr- fjalla og er einstök upplifun að sjá hana. Þar er mikilfenglegur grjótruðn- ingur, sléttir balar og fallegar tjarnir. Þar er vinsæl gönguleið fyrir ferða- menn. Best er að ganga af Vatnsskarði og til baka neðri leið. Gangan inn eftir tekur 2,5 klst. Miðhús: Bær við Eyvindará í grennd við Egilsstaðabæ. Árið 1980 fannst þar silfursjóður í jörðu, sá stærsti sem fundist hefur hér á landi. Hann er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Á Miðhúsum er Listiðjan Eik en þar er að finna til dæmis fallegt handverk unnið úr íslenskri náttúru. Eyjólfsstaðaskógur: Skógur- inn er skemmtilegur til gönguferða. Hann er að stórum hluta í eigu Skóg- ræktarfélags Austurlands sem hefur staðið þar fyrir plöntun trjáa undan- farin ár. Í skóginum er að finna stikað- ar gönguleiðir og fossa. Ef ekið er inn á Velli og inn að Einarsstöðum liggur leiðin í gegnum sumarhúsabyggðina. Gönguferð í Eyjólfsstaðaskógi er skemmtileg afþreying fyrir fjölskyld- una í hlýlegu og notalegu umhverfi. Grímsárvirkjun: Grímsárvirkjun í Skriðdal var gangsett til rafmagns- framleiðslu 15. júní 1958 en fram- kvæmdum lauk í nóvemberlok sama ár. Sænautasel: Eyðibýli á Jökuldals- heiði. Þar var búið í 100 ár, 1843–1943. Á árunum 1992–1993 var torfbærinn endurreistur og er síðan hafður til sýnis fyrir ferðamenn. Umsjónarmenn eru tilbúnir að leiða fólk um bæinn og einnig er möguleiki á hressingu. Þingmúlakirkja: Kirkjustaður- inn Þingmúli er í Skriðdal. Þingmúla- kirkja var byggð 1886. Yfirsmiður var Niels Jónsson í Sauðhaga á Völlum. Kirkjan var upphaflega klædd með járni að utan. Árið 1980 var gert vel við hana og hún færð til upprunalegs horfs, járnlaus. Útsýnisskífa á Fjarðarheiði: Fjarðarheiði er 620 m há, milli Héraðs og Seyðisfjarðar. Hægt er að fara út að hringsjánni á Norðurbrún til að njóta mikils útsýnis. Einnig er hægt að aka upp á Gagnheiði og þaðan er mjög víðsýnt. Á Gagnheiði er sjónvarps- endurvarpsstöð. Fardagafoss: Góð gönguleið að Fardagafossi sem er u.þ.b. 5 km frá Egilsstaðabæ, við rætur Fjarðarheiðar. Bílastæði er á Seyðisfjarðarvegi og það- an er gengið í um 30 mín. upp að foss- inum. Mjög fagurt er að sjá bæði með- fram gilinu og yfir Fljótsdalshérað. Undir fossinum er skúti þar sem ferða- langurinn getur óskað sér og skrifað í gestabók. Hallormsstaðaskógur: Skóg- urinn er sá stærsti á landinu og liggur meðfram Leginum. Byrjað var þar með tilraunir á trjáplöntum árið 1903. Elsti lerkilundurinn er frá 1938, kenndur við Guttorm Pálsson skógarvörð og heitir lundurinn Guttormslundur. Bæði er hægt að tína ber og fara í sveppatínslu þarna á haustin. Á Hallormsstað var stofnaður húsmæðraskóli árið 1930. Hann starfar enn í dag og heitir nú Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað. Áður fyrr sóttu þangað aðeins konur en nú geta bæði kynin sótt um skóla- vist. Trjásafnið á Hallormsstað: Það er í Mörkinni á Hallormsstað. Þetta er mjög fjölskylduvænt safn og þarna er hægt að skoða um 70 tegundir trjáa. Gönguferðir eru vinsælar og göngu- leiðir merktar. Einnig er hægt að fá greinargott kort hjá Skógrækt ríkisins. Þórisárkumlið: Árið 1995 fannst kuml í landi Eyrarteigs í Skriðdal. Fund- arstaður var um 40 metrum frá bökk- um Þórisár að sunnanverðu og rúma 150 metra frá þjóðvegi 1. Beinin voru varðveitt til að byrja með á Minjasafni Austurlands en síðan voru þau flutt á Þjóðminjasafn Íslands. Talið er að maðurinn hafi verið 35 ára þegar hann dó og um 1,69 cm á hæð. Útsýni af Hellisheiði: Hellis- heiði er 655 m hár fjallvegur milli Jökulsárhlíðar og Vopnafjarðar. Vegur- inn er frekar hlikkjóttur en fær öllum bílum. Stórkostlegt útsýni er yfir Hér- aðsflóa og yfir á Vatnsskarð. Einnig blasir Bjarnarey við. Húsey: Bær í Hróarstungu milli fljóta við Héraðsflóann. Þar er rekin ferða- þjónusta og hægt er að nálgast ein- stakt fuglalíf. Hægt er að fá að fara á hestbak og skoða seli með leyfi hjón- anna þar. Kirkjubær: Kirkjustaður, fyrrum prestsetur, í Hróarstungu. Þarna er einstaklega falleg og gömul kirkja, byggð 1851. Geirsstaðir: Lítil torfkirkja er risin að Geirsstöðum í landi Litla-Bakka í Hróarstungu en kirkjan er eftirgerð bændakirkju sem stóð þar fyrir um 1000 árum. Lagarfossvirkjun: Lagarfoss var virkjaður á áttunda áratugnum og virkjunin tekin í notkun 1975. Síðar var hún stækkuð til muna eða úr 8 MW í 21 MW, árið 2007. Útsýnisskífa á Kaupfélags- hömrum: Gengið upp Fénaðar- klöpp frá miðbæ Egilsstaða upp á Hamra ofan sláturhússins. Þaðan er mjög gott útsýni yfir Fljótsdalshérað. Galtastaðir fram: Bær í Hróars- tungu. Á Galtastöðum fram er lítill torf- bær frá 19. öld, af svokallaðri Galta- staðagerð. Hér er um dæmigerðan alþýðubæ að ræða þar sem fjósið var undir baðstofunni. Bærinn er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá 1976. Ferða- mönnum er heimilt að skoða hann. Kárahnjúkastífla og Háls- lón: Kárahnjúkar eru móbergshnjúk- ar austan við Jökulsá á Brú. Jökulsá eða Jökla fellur í miklu gljúfri, Hafra- hvammagljúfri, sem er eitt dýpsta og hrikalegasta gljúfur landsins. Kára- hnjúkastífla er 198 m há og 700 m breið og meðal stærstu slíkra mann- virkja í heimi. Hálslón, ofan stíflunnar, er 57 km2 að stærð. Virkjunin hefur ver- ið umdeild en hún sér Fjarðaáli, álveri Alcoa í Reyðarfirði, fyrir orku. Margur ferðamaðurinn lagði leið sína upp að Kárahnjúkum til þess að taka þátt í þjóðmálaumræðunni meðan fram- kvæmdirnar stóðu yfir. Útivistarsvæðið í Selskógi: Útivistarsvæði í landi Egilsstaðabæjar. Þarna er birkiskógur með einu og einu reynitré á stangli. Víða vaxa ber og margs konar gróður. Hægt er taka stefnu þangað frá Eyvindarárbrú og þaðan liggja mislangir göngustígar. Sá lengsti er 3,2 km. Hjá Vémörk, sem er gamall samkomustaður, eru leik-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.