Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Jóhann Björn Sigurbjörnsson í Ungmenna-
sambandi Skagafjarðar hefur tekið þátt í
fjórum Unglingalandsmótum. Hann hefur
aðallega keppt í frjálsum íþróttum og svo
verður einnig á mótinu á Egilsstöðum.
„Það er alveg frábært að taka þátt í Ung-
lingalandsmóti en þetta er ekki bara
keppni heldur hittir maður helling af krökk-
um og ég hef kynnst mörgum á mótun-
um í gegnum tíðina. Ég var 11 ára gamall
þegar ég tók þátt í mínu fyrsta móti og
eftir það varð ekki aftur snúið. Ég hef síðan
Jóhann Björn Sigurbjörnsson í UMSS:
Hvet alla til að koma og taka
þátt í Unglingalandsmótinu
æft frjálsar íþróttir og stefni að því að
halda áfram að æfa í framtíðinni,“ sagði
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, frjáls-
íþróttakappi úr Ungmennasambandi
Skagafjarðar, í samtali við Skinfaxa.
„Ég hef notið þess að taka þátt í Ung-
lingalandsmótum og á góðar minn-
ingar frá þeim. Þessi mót hafa svo
sannarlega hitt í mark enda stemningin
frábær. Ég vil hvetja alla þá sem eru að
íhuga að taka þátt í mótinu á Egilsstöðum
að mæta og láta til sín taka.“
Unglingalandsmót UMFÍ – Egilsstöðum
Vinnum saman Græðum Ísland
Landgræðslufræ
Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta
fallega grasflöt eigum við fræið handa þér.
Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hellu
Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is
Göngum um Ísland
Fjölskyldan á fjallið
www.ganga.is