Skinfaxi - 01.05.2011, Síða 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
Úr hreyfingunni
Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, HSH:
Hermundur Pálsson kjörinn formaður HSH
73. þing HSH var haldið á
kaffistofu KG fiskverkunar
á Rifi 13. apríl sl. Garðar
Svansson lét af for
mennsku HSH og í hans
stað var kjörinn Her-
mundur Pálsson. Edda Sóley Kristmanns-
dóttir kom ný í stjórn. Gestir þingsins voru
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ. Kristján Magnússon
var þingforseti.
Þingið starfsamt og var m.a. samþykkt
að leggja inn umsókn um að halda Ung-
lingalandsmót 2013 og 2014. Einnig er
áhugi á því að kanna möguleika að sækja
um Landsmót UMFÍ 50+ á næsta ári. Her-
mundur Pálsson þakkaði þingstarfsmönn-
um og þingfulltrúum góð störf á þinginu.
Veittar voru viðurkenningar fyrir íþrótta-
afrek og var Þorsteinn Már Ragnarsson
kjörinn knattspyrnu- og íþróttamaður HSH
2010. Aðrir, sem hlutu viðurkenningu, voru
Hugrún Elísdóttir, kylfingur, Hlynur Bær-
Hermundur Pálsson,
nýkjörinn formaður
HSH, Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, Garðar
Svansson, fráfarandi
formaður, og Sæm-
undur Runólfsson,
framkvæmdastjóri
UMFÍ.
Íþróttamenn HSH sem fengu viðurkenn-
ingu ásamt Íþróttamanni HSH 2010.
ingsson, körfuknattleiksmaður, Sigurodd-
ur Pétursson, hestaíþróttamaður, Sunna
Björk Skarphéðinsdóttir, blakmaður, og
María Valdimarsdóttir, sundmaður. Vinnu-
þjarkar HSH voru svo útnefndir þrír dreng-
ir, þeir Símon B. Hjaltalín, Andri Freyr Haf-
steinsson og Þorsteinn Eyþórsson. Var
viðurkenningin fyrir umsjón með heima-
síðu Snæfells. Veitingar voru í boði Snæ-
fellsbæjar og í umsjá foreldra og barna
sem fara á Gothia Cup í Svíþjóð í sumar.