Skinfaxi - 01.05.2011, Page 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
KÖRFUBOLTI:
Uppskera kvennaflokka
körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur var svo sann-
arlega glæsileg í vetur
sem leið. Flokkarnir
unnu til allra Íslands-
meistaratitla sem í boði voru
og þá er ekki allt talið því að stúlkurnar
eru einnig handhafar allra bikarmeistara-
titla, utan eins, þetta sama keppnistímbil.
Aðalstjórn Keflavíkur, íþrótta- og ung-
mennafélags, efndi til samfagnaðar á þess-
um tímamótum og var foreldrum og for-
ráðamönnum stúlknanna, fyrstu Íslands-
meisturum Keflavíkur í körfuknattleik
kvenna í efsta flokki, Dorrit Moussaieff
forsetafrú og fulltrúum Körfuknattleiks-
sambands Íslands boðið til samsætis.
Forsetafrúin lék á als oddi og það voru
síðan fyrirliðar flokkanna sem afhentu frú
Dorrit keppnistreyju Keflavíkur með nafni
hennar á og númerinu 8 sem stendur fyrir
fjölda Íslandsmeistaratitla.
Einstæður árangur kvennaflokka Keflavíkur í körfuknattleik:
Handhafar allra
Íslandsmeistaratitla
Fyrstu Íslandsmeistarar Keflavíkur í körfu-
knattleik kvenna í efsta flokki 1988 voru
heiðursgestir. Jón Kr. Gíslason, sem var
þjálfari 88-liðsins, og Jón Halldór Eðvalds-
son, þjálfari meistaraflokks kvenna á síð-
asta tímabili, voru sæmdir heiðurssilfur-
merki félagsins. Jón Halldór var fjarver-
andi. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, Hannes Þ. Jónsson, formaður
KKÍ, og Gunnar Jóhannsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, ávörp-
uðu samkomuna. Tríó Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar lék nokkur lög. Tríóið er
skipað þannig: Esther Elín Þórðardóttir á
fiðlu, Karítas Lára Rafnkelsdóttir á víólu og
Salka Björt Kristjánsdóttir á celló.
9. flokkur
8. flokkur
7. flokkur
MB flokkur
Meistaraflokkur
10. flokkur
Unglingaflokkur Stúlknaflokkur