Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2011, Qupperneq 30

Skinfaxi - 01.05.2011, Qupperneq 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Úr hreyfingunni Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, á arionbanki.is eða komdu í næsta útibú. Við tökum vel á móti þér. Það skiptir máli að þekkja landið sitt. Þess vegna erum við hjá Arion banka stolt af nýja kortinu sem Arion banki gefur út í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands. Kortið heitir „Rjóður í kynnum“ og er gefið út í tilefni af því að árið 2011 er alþjóðlegt ár skóga. Á kortinu er að finna upplýsingar um 50 útivistarskóga um land allt, meðal annars GPS-hnit, lýsingu á hverjum skógarreit auk upplýsinga um aðstöðu og þjónustu. Með kortinu getum við kynnst landinu okkar betur og notið þess enn frekar að vera á Íslandi. Þú getur nálgast þitt eintak af kortinu endurgjaldslaust í útibúum Arion banka, á upplýsingamiðstöðvum ferðamála, garðplöntusölum og víðar. Gleðilegt ferðasumar Ársþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka, HHF: Lilja Sigurðardóttir nýr formaður Hrafna-Flóka Ársþing Héraðssam- bandsins Hrafna-Flóka var haldið í félagsheim- ilinu á Patreksfirði 19. apríl sl. Þingforseti var Hróðný Kristjánsdóttir, en hún er einnig formaður HHF. Í skýrslu formanns kom fram að starf- semi sambandsins var hefðbundin á síð- asta ári. Tekið var þátt í öldungamóti í blaki, haldin sparkvallarmót í knattspyrnu fyrir börn og unglinga og tekið þátt þátt í verkefninu Fjölskyldan á fjallið, en gengið var á Geirseyrarmúla. Héraðsmót var haldið á Bíldudal og 19 börn og unglingar og fjölskyldur þeirra tóku þátt í Unglingalandsmótinu í Borgar- nesi í fyrrasumar. KSÍ hélt námskeið í knattþrautum og leikjum á svæðinu um mitt síðasta sumar. Farið var í keppnisferð í knattspyrnu til Bolungarvíkur og endað á að taka þátt í drulluboltamóti barna á Ísafirði þar sem lið HHF fór með sigur af hólmi. Niðurstaða reikninga sambandsins var góð og eiginfjárstaða sambandsins er sterk. Formenn deilda fóru yfir starfsskýrslur sinna deilda og er öflugt starf í gangi á svæðinu fyrir börn og fullorðna. Helstu íþróttagreinar eru frjálsar íþróttir, körfu- bolti og knattspyrna. Haldnir voru fjöl- skyldudagar, göngudagur, grillveislur o.fl. Sameiginleg mót voru haldin á svæðinu fyrir börn og unglinga en einnig var farið í keppnisferðir til annarra svæða á landinu. Nýtt félag fékk aðild Nýtt félag, Körfuknattleiksliðið Patrekur, fékk aðild að HHF á þinginu. Á þinginu var kosin ný stjórn og á auka- þingi þann 9. maí var Lilja Sigurðardóttir kjörin formaður í stað Hróðnýjar Kristjáns- dóttur sem gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Gestir þingsins voru Helga G. Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ. „Þetta er búinn að vera fínn og lærdóms- ríkur tími. Ég hafði ekki tök á því að sinna starfinu sem skyldi og því er gott að finna nýjan formann sem hefur góðan tíma til að taka þetta starf að sér. Ég er búin að læra mikið í formennskunni og kynnast mörgu góðu fólki,“ sagði Hróðný Kristjáns- dóttir, fráfarandi formaður. Lilja Sigurðar- dóttir, nýr formað- ur Hrafna-Flóka.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.