Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.05.2011, Blaðsíða 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Úr hreyfingunni Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis: Við erum stolt af því að tengjast UMFÍ Niðurstöður stefnumót- unarvinnu fyrir Ung- mennafélagið Fjölni voru kynntar á aðalfundi félagsins í Dalhúsum þann 14. apríl sl. Þar kom fram skýr vilji félagsins til að skilgreina sig áfram sem ungmennafélag og tengjast UMFÍ. Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum. Grunngildi hinnar nýju stefnumótunar eru: „Virðing, heilbrigði, stolt, samkennd, metnaður og gaman.“ Í máli Jóns Karls Ólafssonar formanns kom fram að við stefnumótunarvinnuna hefði komið skýrt fram að félagsmenn væru stoltir af því að skilgreina sig sem ungmennafélag og tengjast UMFÍ. Þannig yrði það áfram. Jón Karl var einn í framboði til formanns og var endurkjörinn. Sömu sögu er að segja af hinum sex aðalmönnunum í stjórn. Þungt hefur verið í ári í rekstri félagsins frá efnahagshruninu 2008. Töluvert tap var á rekstrinum á seinasta ári og leitað er leiða til að snúa honum á rétta braut. Vegna niðurskurðar hjá Reykjavíkurborg var hætt við byggingu nýrrar íþróttaaðstöðu við Spöngina en ýmsar hugmyndir eru uppi um aðstöðu til að tryggja öllum flokkum Fjölnis sína æfingatíma. Gunnar Gunnarsson, varamaður í stjórn UMFÍ, sat aðalfundinn og afhenti Kristjáni Gauki Kristjánssyni starfsmerki hreyfingar- innar. Kristján Gaukur hefur starfað fyrir karatedeild félagsins frá árinu 2004. Hann situr enn í stjórn deildarinnar og tók ný- verið sæti í stjórn handknattleiksdeildar- innar. Árum saman hefur hann unnið mjög óeigingjarnt starf fyrir félagið og er ávallt boðinn og búinn til starfa. Á aðalfundi félagsins voru veitt gull- og silfurmerki fyrir vel unnin störf. Ragnar Þórir Guðgeirsson, fyrrum formaður Fjölnis, var sæmdur gullmerki og silfur- merki fengu Kristján Gaukur Kristjánsson, karate, Stefán Jóhannsson, frjálsar íþróttir, Óskar Hlynsson, frjálsar íþróttir, Karola M. Frank, tennis, og Anna Podolskia, tennis. Gunnar Gunnarsson í varastjórn UMFÍ (t.h.) afhenti Kristjáni Gauki Kristjánssyni (t.v.) starfsmerki UMFÍ. Aðalfundur Ungmennafélagsins Skipaskaga, USK: Anna Bjarnadóttir endurkjörin formaður Aðalfundur Ungmenna- félagsins Skipaskaga var haldinn 31. mars sl. á Jaðarsbökkum á Akranesi. Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, sátu fundinn. Að sögn Önnu Bjarnadóttur, sem var endurkjörinn for- maður á aðalfundinum, var farið yfir starf- semina sem tókst vel á síðasta starfsári, auk annarra mála sem lágu fyrir fundin- um. Með Önnu í stjórn eru Skafti Stein- ólfsson, gjaldkeri, og Gunnar Högnason, ritari. Á aðalfundinum voru veittir styrkir og fengu þá línudanshópurinn Silfurstjarnan, íþróttahópurinn Feban, sem skipaður er eldri borgurum, og Jófríður Ísdís Skafta- dóttir frjálsíþróttakona. Frá aðalfundi Skipaskaga á Akranesi. Frá vinstri Skafti Steinólfsson, gjaldkeri, Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Gunnar Högnason, ritari, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Anna Bjarnadóttir, formaður Umf. Skipaskaga.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.