Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 35

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 35
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35 Úr hreyfingunni Aðalfundur Ungmennafélags Njarðvíkur, UMFN: Hilmar Hafsteinsson sæmdur gullmerki UMFN Aðalfundur UMFN var haldinn 11. maí sl. og var vel mætt á fundinum sem haldinn var í Íþrótta- miðstöðinni í Njarðvík. Stefán Thordersen formaður flutti skýrslu stjórnar og Ágústa Guðmarsdóttir gjald- keri lagði fram reikninga félagsins sem voru samþykktir. Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, og Björg Jakobs- dóttir, varaformaður UMFÍ, sátu þingið. Æðsta heiðursmerki UMFN, gullmerki með lárviðarsveig, hlaut Hilmar Hafsteins- son fyrir fótbolta, handbolta, körfubolta og stjórnarstörf. Gullmerki UMFN fengu Jón Bjarni Helgason fyrir sund, körfubolta og stjórnarstörf, Hermann Jakobsson fyrir körfubolta, kraftlyftingar og stjórnarstörf, Ólafur Thordersen fyrir handbolta, fótbolta og stjórnarstörf. Þá var Stefán Sturla Svavarsson lyftingamaður kjörinn íþrótta- maður UMFN 2010. Nýja stjórn UMFN skipa eftirtaldir: Stefán Thordersen, for- maður, Þórunn Friðriksdóttir, varaformað- ur, Anna Andrésdóttir, ritari, Ágústa Guðmarsdóttir, gjaldkeri, og Hermann Jakobsson, meðstjórnandi. Varastjórn skipa Ólafur Eyjólfsson og Sigríður H. Ragnarsdóttir. Frá aðalfundi UMFN sem haldinn var í íþróttamiðstöðinni í Njarðvík. Sannkallaður tímamótasamningur var gerður milli Strandabyggðar og Héraðs- sambands Strandamanna á dögunum. Samningurinn er til eins árs og snýst um að tómstundafulltrúi Strandabyggðar, Arnar Snæberg Jónsson, taki að sér fram- kvæmdastjórn sambandsins til 1. apríl 2012. Arnar er tómstunda- og félags- málafræðingur frá Háskóla Íslands en hann mun sinna starfinu í 10% stöðu á ársgrundvelli ásamt öðrum störfum tóm- stundafulltrúa. Mörg undanfarin ár hafa framkvæmdastjórar Héraðssambandsins starfað í þrjá mánuði yfir sumarið, oftast í 50% starfi, en nýja samkomulagið gerir sambandinu kleift að efla starfið utan Tímamótasamningur milli HSS og Strandabyggðar Arnar Snæberg Jónsson, framkvæmdastjóri HSS. sumarsins. Sérstaklega er litið til þess að efla upplýsingagjöf, kynningu, samskipti og aðstoð við aðildarfélög HSS, UMFÍ og ÍSÍ auk þess sem framkvæmdastjórinn sinnir skipulagningu fyrir mót og kynn- ingu á úrslitum eftir þau. „Við erum mjög ánægð með þennan samning en hann eflir bara starfið og bætir upplýsingaflæðið. Á þinginu var rætt um sameiginlegt sundmót með Reykhólasveitinni í sumar og eins að opna héraðsmótin í frjálsum. Þá geta nágrann- ar okkar tekið þátt í mótinu sem fullgildir þátttakendur. Samgöngur hafa batnað mikið og þær ýta undir öflugra starf,“ sagði Vignir Örn Pálsson, formaður HSS. Elín Sigurborg Harðar- dóttir tók við starfi framkvæmdastjóra HSÞ þann 1. apríl sl. Hún tók við af Sveini Aðalsteins- syni sem gegnt hafði starfinu sl. tvö og hálft ár. Elín Sigurborg er Bolvíkingur en flutti norður fyrir um 6 árum síðan. Spennandi verkefni „Þetta er spennandi verkefni og frábært að geta tengt vinnu og áhugamál, sem er íþróttir, svona saman. Forvarnir eiga Elín Sigurborg nýr framkvæmdastjóri HSÞ líka hug minn allan en ég er einnig í hlutastarfi sem næringarráðgjafi hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.“ Elín Sigurborg býr í um 14 km fjar- lægð frá Húsavík og hjólar til og frá vinnu þegar veður leyfir. Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ, var í heimsókn hjá Þingeyingum fyrir stuttu og fór yfir ýmis mál með heimamönn- um sem eru stórhuga að vanda. Elín Sigurborg Harðardóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri HSÞ, ásamt Sveini Aðalsteinssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.