Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 46

Skinfaxi - 01.05.2011, Side 46
46 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Úr hreyfingunni Ársþing Ungmennasambandsins Úlfljóts, USÚ: Matthildur Ásmundardóttir kjörin formaður Ársþing Ungmennasam- bandsins Úlfljóts, USÚ, var haldið á Höfn í Hornafirði 14. apríl sl. Ragnhildur Einarsdóttir lét af for- mennsku og í hennar stað var Matthildur Ásmundardóttir kjörinn for- maður. Aðrir í stjórn voru kosin þau Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, ritari, og Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, sat þingið og veitti þeim Ólöfu Þórhöllu Magnúsdóttur og Valdemari Einarssyni starfsmerki UMFÍ. Á þinginu var samþykkt forvarnastefna USÚ og einnig var samþykkt að sækja um Unglingalands- mót UMFÍ sem haldin verða 2013 og 2014. Sveinbjörgu Zophoníasdóttur, sem keppir undir merkjum USÚ og er ein efni- legasta frjálsíþróttakona landsins, var veittur styrkur að upphæð 500 þúsund krónur til æfinga og keppni. Frá vinstri: Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Valdemar Einarsson og Ragnhildur Einarsdóttir, fráfarandi formaður USÚ. Velkomin á Selfoss verslunarmannahelgina 3.–5. ágúst 2012 Á mótinu verður m.a. keppt í: Dansi, frjálsum íþróttum, golfi, glímu, hestaíþróttum, íþróttum fatlaðra, knattspyrnu, körfu- bolta, mótokross, skák, sundi og taekwondo. Ragnheiður Einarsdóttir, fráfarandi formaður, (t.v.) og Matthildur Ásmundardóttir, nýkjörinn formaður USÚ (t.h.).

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.