Organistablaðið - 01.12.1977, Page 25
EFTIRÞANKAR
Sem kunnugt er hélt söngmálastióri organistanámskeið að venju í
september siðastliðnum í Skálholti. Námskeiðið sóttu 21 starfandi
organistar viðsvegar að af landinu.
Þetta var i fyrsta sinn sem ég tók þátt í sliku námsk.eiði hérlendis
og var það dýrmæt og skemmtileg reynsla. Sjö kennarar önnuðust
fræðsluna. Námsefni var: organleikur, bæði einleikur og messuspil,
raddþjálfun, kórþjálfun, söngstjórn og messusöngsfræði, einnig lítiis-
háttar kennsla í leik af fingrum fram (improvisation).
Ánægjulegt var hve mikill samhugur og áhugi ríkti á námskeiðinu.
Kvöldvökur voru haldnar og lögðu þar skáld og aðrir listamenn fram
efni sem féll í góðan jarðveg. Athyglisverðast af öllu var sönggleðin
og sá árangur sem sýnilega kom í Ijós af þessu námskeiði og vil ég
því hvetja alla organista sem eiga þess kost að telja sig erindi eiga
að sækja þessi árlegu Skálholtsnámskeið og í gegnum það treysta
böndin við F.I.O.
í þessu sambandi er ek.ki úr vegi að minna á, að stjórn F.Í.O.
veitir fúslega aðstoð við ábendingu verkefna og nótnakost eftir þvt
sem unnt er og um er beðið.
Guðni Þórarinn Guðmundsson.
ORGANISTABLAÐIÐ 2Ö