Organistablaðið - 01.12.1977, Side 30
Getur verið að Ives hafi í fyrstu skrifað pedallínuna á vinstri hand-
ar streng, því í gömlu handriti stendur skrifað: „This passage was
often played by the pedals while the left hand hung on to the bench.“
Þar eð þögn er í vinstri hendi alla þá 14 takta sem lagið tekur yfir,
er að sjálfsögðu hægt að spila pedallínuna með vinstri hendi. —
6. nótnadæmi.
En það leysir ekki vandann, því Ives heldur áfram með tilbrigðið á
sama hátt — endurtekur og er þá að auki verkefni fyrir vinstri
hendi, en að öðru leyti er munurinn aðeins sá, að með hægri hendi
er spilað áttund ofar en í fyrra skiptið og pedalröddin er ofurlítið
einfaldari. Það eina sem hjálpar er að fyrirskrifað er að spila þessa
endurtekningu örlítið hægar en það, sem á undan er komið.
Að lokum tekur Ives þræðina saman, fyrst með stuttri endur-
tekningu á hugmyndum úr inngangskaflanum, því næst millispili
7. nótnadæmi og loks endurminningu um þá kröfuhörðu tækni í 5.
tilbrigði.
Þegar á heildina er litið er mögulegt að spila Varialions on
,,America“ eftir Charles Ives á dönsk orgel án þess að lenda í miklum
30 ORGANISTABLAÐIÐ