Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 41

Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 41
ENDURMINNING Tíunda mót norrænna kirkjutónlistarmanna var haldið í Osló í júní árið 1965. Við Jakob Tryggvason höfðum gist á Filadelfia Hotel. Hótelstjórinn þar, Ingrid Brattlie, var organisti við Róa-kirkju. Hún var svo hugulsöm að bjóða okkur Jakob til morgunverðar daginn eftir að mótinu var slitið. Með okkur bauð hún Erling Kjelsen sem margir íslenskir organleikarar kannast vel við. Vel var veitt og margt var spjallað. Kjelsen brá fyrir sig fyndni sinni og snjöllum tilsvörum. Talað var um ýmsa norska tónlistarmenn. Með nokkrum setningum tókst Kjelsen að sýna okkur helstu einkenni þeirra. Og nú tók hann hverja servíettuna af annarri og notaði dráttlistarhæfileika sína. Dró upp andlitsmyndir af nokkrum tónskáldum. Mér sýndist þeirn bera vel saman við ljósmyndavélina. Karikatúr, kunna ýmsir að segja. Kannski Kjelsen hafi lílca séð einhverja andlitsdrætti sem ljósmynda- vélin sá ekki. Ég tek mér nú það bessaleyfi að birta hér nokkrar myndir. Hjalmar Borgström (1864— 1925) var vel metinn sem tón- skáld og samdi mörg tónverk stór og smá í ýmsum formum. Svo virðist sem skáldskapur hans hafi nú allmjög fallið í gleymsku. Kjelsen nefndi þetta aðeins. En cngan skyldi undra þó ýmislegt af allri þeirri tónlist sem fest er á blað eða á plötur, stálþræði eða segulbönd falli í gleymskunn- ar djúp. En svo getur farið að sumt af því komi upp á yfir- borðið seinna. En ég er engu að spá. (Helstu tónverk H.B.: Hvetn er du med de tusene navn, kór- verk; tvær sinfoníur (G-dúr og d-

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.