Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 44

Organistablaðið - 01.12.1977, Síða 44
Tónleiknr i Reykjavík Háteigskirkja. Tónlistarskólinn í Reykjavík hélt tónleika í Háteigskirkju 19. febrúar. Flytjendur voru Guðfinna Dóra Ólafs- dóttir, Rut Magnússon, Friðbjörn G. Jónsson, Halldór Vilhelmsson, kór og hljómsveit Tónlistarskólans undir stjórn Martins Hunger. — Á efnis- skránni voru þessi verk: Cansona fyrir 4 trompeta eftir Samuel Scheidt, Lög úr ,,Der Jahrkreis“ eftir Hugo Distler, Hinsta bæn og Ákall eftir Hugo Wolf og að síðustu messa í C- dúr (Krýningarmessan) eftir Mozart. 3. ágúst voru tónleikar í Háteigs- kirkju í sambandi við Norræna kristna menningardaga. Flytjendur voru Martin Hunger og Þorgerður Ingólfsdóttir. — Á efnis- skránni voru eftirtalin verk: Chaconna eftir Pál isólfsson, íslensk þjóðlög, Orgelverk fyrir pedal eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Preludia organo eftir Jón Leifs og Preludium, Choral og fúga eftir Jón Þórarinsson. 9. október voru tónleikar í Háteigs- kirkju. Flytjendur voru Elín Sigurvins- dóttir, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Rut Magnússon, Sigurður Björnsson, Hall- dór Vilhelmsson, Árni Arinbjarnar- son ásamt kór Háteigskirkju og fé- lögum úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjórnandi var Martin Hunger, en hann lék einnig á orgel. Á efnisskránni voru eftirtalin verk: Sónata í A-dúr eftir Mendelsohn, Lef- söngur eftir Þorkcl Sigurbjörnsson, Lag úr ..Salrnen 1976" eftir Helmer Nörgaard, orgelverk fyrir pedal eftir Þorkel Sigurbjörnsson og að lokum „Hneig eyra að hrópi mínu" eftir Mendelsohn. Dómkirkjan. 13. nóvember var haldin samkoma í Dómkirkjunni í minningu tveggja or- gelleikara, sem báðir störfuðu við Dómkirkjuna, þeirra Péturs Guð- johnsens, en á þessu ári eru liðin 100 ár frá dauða hans og Sigfúsar Einars- 44 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.