Organistablaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 9
Organistablaðið
Guðni Þórarinn Guðmundsson
6.10.1948-13.08.2000
Guðni var fæddur í Vestmannaeyi-
um og ólst þar upp til ársins 1965 er
hann hóf nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk þaðan tónmennta-
kennaraprófi árið 1969. Haustið
sama ár hélt hann síðan til Kaup-
mannahafnar til náms við konung-
lega tónlistarháskólann (Det Kong-
elige musikkonservatorium) í Kaup-
mannahöfn hvaðan hann lauk hærra
organistaprófi 1976, samtímis stund-
aði Guðni einnig nám í trompetleik
og instrumentation (hljómsveitarútsetningu). Að
námi loknu fluttist Guðni aftur heim til íslands og
starfaði fyrsta árið við afleysingu við Langholts-
kirkju í Reykjavík og árið 1977 var hann ráðinn
organisti við Bústaðakirkju og gegndi því starfi til
dauðadags. Hann var einnig kennari við tónlistar-
skólann í Hafnarfirði frá 1976. Guðni sótti fjölmörg
námskeið bæði hér heima og erlendis. Á námsár-
um sínum vann Guðni mikið fyrir sér og fjölskyldu
sinni með því að spila við ýmis tækifæri, m.a. var
hann organisti í Vestre-fangelsinu í Kaupmanna-
höfn og einnig lék hann á skemmtistöðum ýmist á
hljómborð eða harmonikku.
Guðni kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni El-
ínu Heiðberg Lýðsdóttur 25. maí 1969 og eignuð-
ust þau tvo syni, þá Ólaf Magnús 1975 og Halldór
Örn 1981.
Guðni féll frá í blóma lífsins, aðeins 52ja ára, já
eins og grasið sem fellur iyrir ljá sláttumannsins.
Fáum mönnum hef ég kynnst sem voru eins lif-
andi og hann, sífellt með alls kyns starfsemi í gangi
og hafði jafnan mörg járn í eldinum.
Fimmtudaginn áður en hann lést hringdi hann
í mig og áttum við saman langt tal.
Tilhögun vetrarstarfsins var honum efst í huga
og sannarlega ætlaði hann ekki að
minnka umfang tónlistarstarfsins í
Bústaðakirkju.
Hann hlífði sér aldrei og lagði jafn-
an fram miklu meiri vinnu en ætlast
var til og hann fékk greitt fyrir.
Þeir fjölmörgu sem nutu þjónustu
hans í gleði og sorg voru svo sannar-
lega ekki sviknir.
Okkur hinum sem störfum að tón-
listarflutningi í kirkjum þótti gott að
eiga Guðna að vini. Hann var jafnan
reiðubúinn að leggja okkur lið, útvega okkur nót-
ur eða ef þær voru ekki aðgengilegar þá útsetti
hann fyrir okkur.
Hann hafði um langt árabil mikil afskipti af fé-
lagsmálum organistastéttarinnar og var formaður
FÍO nokkra hríð, á erfiðum tímum og þótti standa
sig vel.
Ég hef hitt marga Dani sem kynntust Guðna á
námsárunum í Kaupmannahöfn og hafa haldið
sambandi við hann jafnan síðan, enda maðurinn
vinsæll og vinafastur.
Það var ekki hægt að neita Guðna um viðvik eða
greiða, öllum þótti vænt um hann.
Börn og gamalmenni hændust að honum og tal-
ar það sínu máli um hverrar gerðar Guðni var.
Máltækið segir: Enginn veit hvað átt hefur lyrr
en misst hefur. Sannleiksgildi þessara orða á vafa-
laust eftir að koma í ljós.
Við fráfall Guðna Þ. Guðmundssonar hefur
myndast vandfyllt skarð í raðir organistastéttar-
innar.
Fyrir hönd starfssystkina hans í organistafélag-
inu votta ég eiginkonu hans og ástvinum öllum
okkar dýpstu samúð.
Kjartan Sigurjónsson
9