Morgunblaðið - 23.11.2009, Side 19
Minningar 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
✝ Rögnvaldur Óð-insson fæddist í
Reykjavík 26. júlí
1950 og lést þar 13.
nóvember 2009.
Foreldrar hans eru
Hulda Arnórsdóttir
og Óðinn Rögnvalds-
son.
Systkini hans eru
Kolbrún Óðinsdóttir,
maki Kristján S.
Ólafsson; Hrafnkell
Óðinsson; Margrét
Óðinsdóttir, maki
Jón H. Skúlason;
Ingiríður Óðinsdóttir, maki Árni
Guðmundsson.
Rögnvaldur kvæntist Fríðu
Ólafsdóttur. Þau slitu
samvistum. Eign-
uðust þau saman
fjóra syni, Óðin,
Daníel, Finn Óla og
Sveinbjörn Karl.
Rögnvaldur lauk
gagnfræðaprófi frá
Réttarholtsskóla. Síð-
an lá leið hans til
Noregs og var hann
þar við nám í tvö og
hálft ár. Hann starf-
rækti matvöruversl-
un í Hátúni 10 í
nokkur ár og seinna
heildverslun.
Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
Það er skrítið til þess að hugsa að
þú, kæri vinur, frændi og lífstíð-
arvinur sem alltaf varst hrókur alls
fagnaðar skulir vera farinn. Víst
hefur lífið á stundum farið um þig
óblíðum höndum en alltaf stóðst þú
upp aftur með þinn óendanlega
góða húmor að vopni. Við bræður
munum varla eftir okkur öðruvísi
en að þú værir stór hluti af lífi okk-
ar og brölti. Fyrst á Bústaðaveg-
inum þar sem við strákarnir upp-
lifðum mörg og ógleymanleg
ævintýri. Svo lá leið okkar bræðr-
anna til Eyja og ekki leið á löngu
þar til þú lagðir á sundið og fluttist
þangað líka og fórst að höndla með
húsgögn ofarlega á Skólaveginum.
Fyrst eftir komu þína til Eyja bjóst
þú á heimili mínu svolítið neðar á
Skólaveginum, nánar tiltekið nr. 10,
og stundirnar sem við fóstbræðurn-
ir áttum við skin ljósastaursins utan
við eldhúsgluggann í heimspekileg-
um samræðum langt fram á nótt
þar sem við gúffuðum í okkur rist-
uðu brauði með remúlaði og skol-
uðum niður með Coke eru stundir
sem seint munu úr minni renna. Þú
varst stundum fenginn til að líta til
með börnunum á heimilinu og eitt
sinn varst þú að passa Siggu Lund
og stelpan hefur verið eitthvað erfið
og þá datt upp úr dreng: „Sigríður
ólund“. Þér varð vel til vina í Vest-
mannaeyjum og hefur sú vinátta
varað og þarf þá ekki annað en að
nefna samband þitt við fjölskylduna
á Boðaslóð (Boðó). Í öllu músik-
brölti okkar bræðranna hefur þú
alltaf verið fastur faktor og dyggur
fylgismaður og tóku poppararnir
gjarna mark á því sem Reginvaldur
Roðabassi lagði til málanna. Eftir
að við bræður fluttumst upp á fasta-
landið og þú löngu farinn frá Eyjum
héldust þau sterku tengsl er mynd-
ast höfðu áfram allt til síðustu
stundar. Þegar þessi óvættur barði
dyra hjá þér varð okkur brugðið, en
ég bara verð að segja það að ég
dáðist að æðruleysi þínu og and-
legum styrk. Þú ert svo sannarlega
hetja.
Ég veit að ég tala fyrir munn
okkar allra þegar ég þakka þér fyr-
ir vináttu þína, tryggð og ekki síst
endalaus skemmtilegheit. Þín verð-
ur sárt saknað. Röggi minn, ég ætla
taka mér það bessaleyfi að birta hér
texta er þú gerðir við lag sem við
unnum saman að.
Fuglar himinsins fljúga í rétta átt,
á vorin munu fljúga beint í norðurátt.
Ástarlífið blómstrar á skeri við
Atlantshaf.
Á haustin munu fljúga beint í sólarátt
Ástin er í hjörtum fugla himinsins.
Furðufuglar jarðar sveima um
alla jörð,
stefnulaust þeir ráfa í leit að
sinni ást.
Furðufuglar jarðar óska þess
svo heitt
að fá að finna ástina eins og
fuglar himinsins.
Helgi Hermannsson
og fjölskylda.
Rögnvaldur Óðinsson
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir.
HILMAR JÚLÍUSSON
lögreglumaður,
Ólafsvík,
lést fimmtudaginn 19. nóvember á sjúkrahúsi
Akraness.
Hann verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
föstudaginn 27. nóvember kl. 13.00.
Blessuð sé minning hans.
Egill Hilmar Jensson,
Sigríður Ragna Hilmarsdóttir, Viktor Már Melsen,
Steinunn Brynja Hilmarsdóttir, Björgvin Sigursteinsson,
Jón Júlíusson,
barnabörn og systkini.
✝ Solveig Sig-urlaug Ólafs-
dóttir fæddist á
Kaldrananesi í Vest-
ur-Skaftafellssýslu
26. júlí 1919. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Hlévangi í
Keflavík sunnudag-
inn 8. nóvember síð-
astliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Ólafur
Ormsson frá Efri-Ey
í Meðallandi (1893-
1987) og Guðrún
Jakobsdóttir frá Skammadalshóli
í Mýrdal (1890-1921). Systkini Sol-
veigar eru Ormur Ólafsson, f.
10.4. 1918, og Guð-
rún Ólafsdóttir, f.
26.7. 1919, d. 30.8.
2005. Eiginmaður
Solveigar var Guð-
jón Jónsson, f. 2.4.
1916, hann lést 1997.
Börn Solveigar og
Guðjóns eru Guðrún
Ólöf, f. 2.9. 1941 og
Jón Ágúst, f. 23.2.
1957, einnig var
Þórður Örn Karls-
son, f. 2.8. 1959, d.
28.11. 1991, sonur
Guðrúnar Ólafar, al-
inn upp af Solveigu og Guðjóni.
Útför Solveigar fór fram í kyrr-
þey að hennar ósk.
Margs er að minnast frá löngu liðn-
um dögum við andlát föðursystur
minnar Sólveigar Ólafsdóttur.
Ótal atvik rifjast upp ýmist í Kefla-
vík eða í sumarbústað afa, Sjónarhól
við Selfjall í Lögbergslandi. Tvíbura-
systurnar Guðrún, uppeldismóðir
mín, og Sólveig voru mjög samrýndar
og áhugamál þeirra að mörgu leyti lík
og einnig viðhorf til mála.
Foreldrar Sólveigar, Ólafur Orms-
son afi minn og Guðrún Jakobsdóttir,
amma mín, hófu búskap á Kaldrana-
nesi í Vestur-Skaftafellssýslu í sam-
býli við forelda afa, Orm Sverrisson
og Guðrúnu Ólafsdóttur og Sverri
Ormsson, bróður hans. Ekki kann ég
að greina frá þeim árum, en ljóst má
vera að búskapur hefur verið erfiður
þar fyrir þrjár fjölskyldur. Á Kaldr-
ananesi fæddust með árs millibili
börn afa og ömmu: faðir minn Ormur,
fæddur 1918 og lifir enn í hárri elli og
tvíburasysturnar Guðrún og Sólveig
1919. Afi og amma fluttu með börnin
ungu árið 1920 og héldu alla leið suður
á Rosmhvalanes. Settust þau fyrst að
á Grund á Miðnesi, en þar keypti afi
lítið þurrabúðarhús.
Þaðan lá leiðin suður í Hafnir. Ekki
voru þau fyrr komin þangað en ógæfa
dundi yfir. Spánska veikin svonefnda,
sem herjaði á landsmenn árið 1918,
barst suður í Hafnir sumarið 1921.
Guðrún Jakobsdóttir, amma mín, lést
af völdum sjúkdómsins. Vel er hægt
að ímynda sér ástand heimilisins,
þegar móðirin unga var horfin frá
kornungum börnum sínum og manni.
En fjölskyldan átti góða að. Það
leið ekki langur tími þar til úr rættist
að nokkru leyti fyrir aðstoð ættingja
og vina. Afi hófst handa við að reisa
bæ í Höfnum, Hjalla. Hann var svo
heppinn að fá til sín bústýru, mikla
ágætiskonu, Sigríði Björnsdóttur,
sem var ekkja eftir Ketil Magnússon í
Höfnum. Vann hún síðan heimlinu allt
sem hún mátti, og gekk börnunum í
móðurstað að svo miklu leyti sem
slíkt er hægt.
Sólveig Ólafsdóttir kynntist verð-
andi eiginmanni, Guðjóni Jónssyni í
Höfnum, og þau fluttu til Keflavíkur
árið 1948 ásamt afa mínum Ólafi
Ormssyni. Frá því að ég man fyrst
eftir mér hefur Sólveig verið mér afar
kær. Hún hafði ákveðnar skoðanir á
mönnum og málefnum, gat verið
skapstór og sagt álit sitt og dró ekki
úr gagnrýni þegar henni fannst eitt-
hvað miður fara í þjóðfélaginu.
Systurnar Guðrún og Sólveig sóttu
reglulega guðsþjónustur í Keflavíkur-
kirkju. Trúarleg leiðsögn frá
bernskuárum þeirra í Höfnum og ein-
læg trú á Drottin vorn Jesú Krist var
ávallt leiðarljósið í lífi þeirra.
Minningin um Sólveigu, föðursyst-
ur mína, mun lifa með mér og ylja um
ókomin ár. Guð blessi minningu minn-
ar kæru frænku.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Ólafur Ormsson.
Solveig Sigurlaug
Ólafsdóttir
Svo snöggt, svo snöggt
er snilld og hæfni felld
og snöfurlegur maður
niður sleginn,
sem átti til þann styrk
og innri eld
sem oft og tíðum sendi
birtu um veginn.
Mér finnst svo erfitt oft að skilja það
hvað örlög manna geta þungbær verið,
Guðbjörn Ingason
✝ Guðbjörn Ingasonfæddist á Ísafirði
17. ágúst 1937. Hann
lést 16. október síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Ísa-
fjarðarkirkju 24.
október.
hvað mannlegt líf er
bundið stund og stað
og staðan tæp hjá þeim
sem byggja skerið.
(Rúnar Kristjánsson)
Elsku Búbbi,
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og
allt.
(Vald. Briem)
Elsku Ella Bogga,
Sveinn Ingi, Veigar
Þór og fjölskyldur,
innilegustu samúðarkveðjur frá okk-
ur.
Dóra, Grétar, Iris og
fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma,
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR,
áður Ásvegi 11,
lést á Hrafnistu Reykjavík mánudaginn
16. nóvember.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn
23. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árdís Guðmarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNBORGAR ÞURÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR,
Gullsmára 7,
Kópavogi.
Blessuð sé minning hennar.
Jóhannes Pétursson, Þuríður Ingólfsdóttir,
Sólborg Anna Pétursdóttir, Þórður Friðriksson,
Magnús Rúnar Pétursson,
ömmubörn og langömmubörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr.
Minningargreinar
Jólatvímenningur FEB
Tvímenningskeppni (jólatví-
menningur) spilaður í Ásbyrgi í
Stangarhyl 16. nóv. 2009. Meðal-
skor 312
Árangur í N-S
Ólafur Theodórs -
Sigurður Ólafsson 363
Magnús Oddsson -
Oliver Kristóferss. 334
Magnús Halldórss. - Júlíus Guðmss. 333
Árangur í A-V
Ragnar Björnss. -
Guðjón Kristjánsson 350
Guðrún Þórðard. - Elín Björnsd. 342
Hilmar Valdimarss. - Óli Gíslason 333
Gullsmárinn
Spilað var á 13 borðum í Gull-
smára mánudaginn 16. nóvember.
Úrslit í N/S
Guðrún Hinriksd. –
Haukur Hanness. 317
Þorsteinn Laufdal – Jón Stefánsson 309
A/V
Þórður Jörundss. – Oddur Jónss. 331
Páll Ólason – Elís Kristjánsson 315
Minnt er á að minningarmót Guð-
mundar Pálssonar hefst svo
fimmtudaginn 26. nóvember.
Sveit Marmaris vann sveita-
keppnina af öryggi. Sveitina skip-
uðu: Guðrún Hinriksdóttir, Haukur
Hannesson, Ármann J. Lárusson og
Sævar Magnússon.
Röð efstu sveita varð:
Sveit Marmaris 231
Sveit Hrafnhildar Skúlad. 204
Sveit Arnar Einarssonar 202
Sveit Ragnhildar Gunnarsd. 188
Sveit Þorsteins Laufdal 179
Að lokinni sveitakeppninnivar
spilaður stuttur tvímenningur. Úr-
slit í N/S:
Guðrún Hinriksd.-Haukur Hanness. 72
Ernst Backman-Hermann Guðmss. 71
A/V:
Jóhanna Gunnlaugsd.-Halla Ólafsd. 80
Auðunn Guðmss.-Hlynur Antonss. 75
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni í Ásgarði í Stangar-
hyl 9. nóvember. Spilað á 16 borðum, með-
alskor 312 stig.
Árangur í N-S
Rafn Kristjánsson - Júlíus Guðmss. 352
Ólafur Gíslason - Guðm. Sigurjónsson 347
Árangur í A-V
Soffía Theodórsd. - Elín Guðmannsd. 390
Örn Ingólfsson - Örn Ísebarn 374
Tvímenningskeppni 12.nóv. 2009.
Spilað var á 13 borðum, meðalskor 312.
Árangur í N-S
Gísli Hafliðason - Hulda Hjálmarsd. 383
Albert Þorsteinss. -Bragi Björnsson 362
Árangur í A-V
Friðrik Jónsson - Einar Einarsson 383
Stefán Finnbogas - Hólmfríður Árnad. 355
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is