Morgunblaðið - 23.11.2009, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Mið 25/11 kl. 19:00 aukas Lau 5/12 kl. 19:00 13.k Fös 18/12 kl. 19:00 aukas
Fim 26/11 kl. 19:00 11.K Sun 6/12 kl. 19:00 aukas Lau 19/12 kl. 19:00
Fös 27/11 kl. 19:00 12.K Fim 10/12 kl. 19:00 aukas Þri 29/12 kl. 19:00
Sun 29/11 kl. 19:00 aukas Fös 11/12 kl. 19:00 14.K Mið 30/12 kl. 19:00
Fim 3/12 kl. 19:00 aukas Sun 13/12 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Lau 28/11 kl. 14:00 aukas Lau 5/12 kl. 14:00 Sun 27/12 kl. 14:00
Sun 29/11 kl. 14:00 aukas Sun 13/12 kl. 14:00 Sun 27/12 kl. 19:00
Nýjar aukasýningar í sölu. Tryggðu þér miða strax
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 26/11 kl. 20:00 40.K Fös 18/12 kl. 22:00 50.K Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 27/11 kl. 19:00 41.K Lau 19/12 kl. 16:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Fös 27/11 kl. 22:00 42.K Sun 27/12 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 19:00
Þri 1/12 kl. 20:00 43.K Mán 28/12 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Fös 4/12 kl. 19:00 44.K Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Fös 4/12 kl. 22:00 45.K Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 19:00 46.K Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 22:00 47.K Lau 16/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Sun 13/12 kl. 20:00 48.K Lau 16/1 kl. 22:00
Fös 18/12 kl. 19:00 49.K Sun 17/1 kl. 20:00
Sala hafin á sýningar í janúar
Jesús litli (Litla svið)
Lau 28/11 kl. 20:00 2.K Lau 5/12 kl. 20:00 5.K Fim 17/12 kl. 20:00 8.K
Sun 29/11 kl. 16:00 3.K Mið 9/12 kl. 20:00 6.K Lau 19/12 kl. 21:00 9.K
Sun 29/11 kl. 20:00 Aukas Fim 10/12 kl. 20:00 Aukas
Lau 5/12 kl. 16:00 4.K Fös 11/12 kl. 19:00 7.K
Forsala í fullum gangi.
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Sun 29/11 kl. 20:00 4.K Lau 5/12 kl. 20:00 5.K
Ekki við hæfi barna. Snarpur sýningartími.
Dauðasyndirnar (Litla sviðið)
Mið 2/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 16:00 Aukas Þri 8/12 kl. 20:00 Aukas
Fim 3/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 20:00 Aukas
Síðustu sýningar. 20% afsláttur til Vísa kreditkorthafa
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Þri 24/11 kl. 20:00 Aukas Mið 25/11 kl. 19:00 Aukas Mið 25/11 kl. 21:00
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Við borgum ekki (Stóra svið)
Lau 28/11 kl. 19:00 aukas Fös 4/12 kl. 19:00 aukas
Uppsetning Nýja Íslands.
Bláa gullið (Litla svið)
Lau 28/11 kl. 15:00
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Fös 4/12 kl. 22:30 Aukas. Lau 12/12 kl. 19:00 Aukas. Lau 12/12 kl. 22:00 Aukas.
ATH ! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Jesús litli – frábær skemmtun
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Sun 29/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 20:00 Aukas.
Allra síðasta sýning 29. nóvember kl. 20:00!
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 27/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00
Lau 28/11 kl. 20:00 Fös 8/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Utan gátta (Kassinn)
Fim 26/11 kl. 20:00 Aukas. Fim 3/12 kl. 20:00 Aukas.
Aukasýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 15:00
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 16/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 23/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Fös 29/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Fim 14/1 kl. 19:00
Miðasala hafin!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Fös 27/11 kl. 13:30 Sun 13/12 kl. 13:30 Sun 27/12 kl. 15:00
Fös 27/11 kl. 15:00 Sun 13/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00
Lau 28/11 kl. 13:30 Lau 19/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00
Lau 28/11 kl. 15:00 Sun 20/12 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Leitin að jólunum (Leikhúsloftið)
Lau 28/11 kl. 14:30
100.sýn.
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 14:30
Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 11:00
Sun 29/11 kl. 14:30 Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 13:00
Lau 5/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 14:30
Lau 5/12 kl. 13:00 Lau 12/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 5/12 kl. 14:30 Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti!
Maríuhænan (Kúlan)
Mið 2/12 kl. 10:00 Fös 4/12 kl. 10:00 Sun 6/12 kl. 13:30
Mið 2/12 kl. 17:00 Fös 4/12 kl. 17:00 Sun 6/12 kl. 15:00
Fim 3/12 kl. 10:00 Lau 5/12 kl. 13:30
Fim 3/12 kl. 17:00 Lau 5/12 kl. 15:00
Danssýning fyrir þau allra minnstu - gestasýning frá Noregi
Listdansskóli Íslands - nemendasýning
framhaldsdeildar (Stóra sviðið)
Mán 30/11 kl. 20:00
Miðaverð 1500 kr. - frítt fyrir 12 ára og yngri
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Lykillinn að jólunum (Rýmið)
Fim 26/11 kl. 17:00 fors. Sun 29/11 kl. 15:00 3. k Sun 6/12 kl. 13:00
Fös 27/11 kl. 17:00 frums. Lau 5/12 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 15:00
Lau 28/11 kl. 13:00 2. k Lau 5/12 kl. 15:00
Forsala er hafin
K=Kort Aukas.= Ný sýning Fors.=Forsýning Frums.= Frumsýning
Íslensk ljósmyndun á sér lengrisamfellda sögu en íslenskmyndlist. Hefð er fyrir aðmiða upphaf þeirrar síð-
arnefndu við aldamótin 1900. Mynd-
listarsagan hefur verið skráð kerf-
isbundið hér á landi og henni skipað í
stofnanalegt stigveldi, eða svokallað
hefðarveldi. Margt hefur áunnist í
skrásetningu ljósmyndasögunnar,
ekki síst hin síðari ár, en ýmislegt er
þó enn ógert. Einar Falur Ingólfs-
son hefur nú riðið á vaðið og sett
saman sýningu og bók undir yf-
irskriftinni „Úrvalið. Íslenskar ljós-
myndir 1866-2009“ með úrvali ís-
lenskrar ljósmyndunar og má segja
að hann leggi þar línurnar í sköpun
hefðarveldis ljósmyndasögunnar.
Tilgangurinn er öðrum þræði að
opna augu landsmanna fyrir gildi
þessara menningarverðmæta – sem
eru auðvitað hluti af íslenskri lista-
sögu.
Þrettán ljósmyndarar eiga verk á
sýningunni á efri hæð Hafn-
arborgar, þar af tvær konur; Sigríð-
ur Zöega og Nicoline Waywadt.
Uppsetning og frágangur mynd-
anna, sem flestar eru fengnar úr
Þjóðminjasafninu og Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, er allur
hinn vandaðasti; nýtt silfurprent og
stafrænt C-prent hefur verið unnið
af sérfræðingum. Í sumum tilvikum
er um að ræða frumprent, m.a. af
verkum Sigfúsar Eymundssonar,
sem var fyrstur Íslendinga til að
gera ljósmyndun að ævistarfi. Val
sýningarstjóra takmarkast við at-
vinnufólk og ljósmyndara fædda fyr-
ir 1960. Flestir þekkja nöfn yngstu
ljósmyndaranna: Sigurgeirs Sig-
urjónssonar, Ragnars Axelssonar
(RAX), Guðmundar Ingólfssonar og
Páls Stefánssonar, en þeir tveir síð-
astnefndu sýna myndir teknar á lit-
filmu. Margir þekkja einnig lands-
lagsmyndir Magnúsar Ólafssonar,
fréttamyndir Ólafs K. Magnússonar
og „íkonískar“ portrettmyndir Jóns
Kaldals auk þess sem myndir eftir
Ólaf Magnússon, Pétur Brynjólfsson
og Vigfús Sigurgeirsson eru mörg-
um kunnar, enda hefur verið efnt til
sýninga og útgáfu á verkum flestra
ef ekki allra þessara ljósmyndara.
Eins og ávallt þegar úrval er sett
saman má benda á gloppur í valinu.
Vafalaust mætti nefna nokkra
þekkta ljósmyndara sem ekki eru á
sýningunni en sjálfri kemur mér sér-
staklega í hug Andrés Kolbeinsson.
Heimildagildi ljósmyndanna
kveikir forvitni og jafnvel nostalgíu
meðal sýningargesta, og þær búa
jafnframt yfir fagurfræðilegu að-
dráttarafli. Blaðamynd Ólafs K. af
mótmælum á Austurvelli árið 1949
höfðar beint til samtímans, og
sveitastemning fyrri tíma lifnar við á
„tækifærismynd“ eftir Magnús þar
sem glaðvær stúlka leikur á fiðlu
fyrir húsdýrin á bæjarhlaðinu. Á
flestum myndanna, sem ýmist eru
teknar úti við eða á ljósmyndastofu,
sést fólk í manngerðu umhverfi eða
landslagi. Af portrettum má t.d.
nefna listræna og meitlaða mynd
Kaldals af Ástu Sigurðardóttur eða
öllu innilegri mynd af óþekktri konu
með ömmubarnið í fanginu eftir Ni-
coline Waywadt, en útimyndir Nicol-
ine bera vitni um gott auga fyrir
óvenjulegri myndbyggingu. Önnur
portrett endurspegla borgaralega
lifnaðarhætti eða lífsbaráttu í harð-
býlu landi; margar myndanna lýsa
tíðaranda eða sögulegum viðburðum
en aðrar hafa tímalaust yfirbragð,
svo sem myndir Kaldals og RAX.
Landslag og náttúra hafa verið
áberandi viðfangsefni í íslenskri ljós-
myndun, rétt eins og í myndlistinni.
Sigfús Eymundsson ljósmyndaði
landslag á klassískan hátt og seldi
erlendum ferðamönnum myndirnar
áratugum áður en „frumherjarnir“ í
landslagsmálun komu til sögunnar –
og lagði þannig jafnframt sitt af
mörkum til mótunar sjálfsmyndar
þjóðarinnar. Frumprent af þessum
einstæðu myndum (og öðrum tekn-
um í Reykjavík) eru á sýningunni,
sem og panóramískar landslags-
myndir (víðmyndir) Ólafs Magn-
ússonar sem sótti á sínum tíma inn á
listaverkamarkaðinn með handlituð
frumprent – raunar nokkurs konar
blendingsform af málverki og ljós-
mynd. Í því samhengi er vert að
nefna að undanfarið hefur gætt vax-
andi áhuga á að kanna ljósmynda-
söguna í listsögulegu samhengi. Má
þar nefna að landslagsljósmyndir
Vigfúsar Sigurgeirssonar, teknar á
þriðja áratug síðustu aldar, voru ný-
lega sýndar á viðamikilli sýningu á
Kjarvalsstöðum sem fjallaði um ægi-
fegurð og íslenska samtímalist. Þá
eru glæný dæmi um myndlist-
armenn af yngri kynslóð sem unnið
hafa á athyglisverðan hátt með ljós-
myndasöfn (þ.e. höfundarverk ann-
arra) og sýnt þau í nýju merkingar-
samhengi, m.a. á yfirstandandi
sýningu á neðri hæð Hafnarborgar.
„Úrvalið“ er falleg og vönduð sýn-
ing, og um leið metnaðarfullt fram-
lag til samþættingar ljósmyndaarfs-
ins við menningarvitund
þjóðarinnar.
Að mynda hefð
Hafnarborg – Menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar
Úrvalið – Íslenskar ljósmyndir
1866-2009
Til 3. janúar 2010. Opið kl. 11-17 alla
daga, fimmtud. til kl. 21. Lokað á þriðju-
dögum. Aðgangur ókeypis. Sýning-
arstjóri: Einar Falur Ingólfsson.
ANNA
JÓA
MYNDLIST
Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Magnús Ólafsson
Úrvalið Ljósmynd af sýningunni eftir Magnús Ólafsson.
Ívar Bjarklind, fyrrum söngv-ari hljómsveitarinnar MÍR,sendi nýskeð frá sér sóló-plötu númer tvö. Þessi er
líkt og sú fyrri unnin í nánu sam-
starfi við Orra Harðarson sem
stýrir upptökum, útsetur og leikur
á flestöll hljóð-
færi. Kliðmjúkt
popp er sú skil-
greining sem ég
sættist á eftir
talsverð heila-
brot um hvernig
bæri að lýsa tónlist Ívars. Höf-
undur og hans meðreiðarsveinn,
Orri, hafa lagt mikla vinnu í að
slípa og snurfusa þá afurð sem hér
er á borð borin og mega vera sátt-
ir við útkomuna. Ef draga ætti Ív-
ar í dilk innan íslenskrar poppk-
reðsu þá væri helst hægt að setja
hann með jöfrunum í Sálinni hans
Jóns míns. Að sama skapi fannst
mér ég merkja áhrif Stefáns Hilm-
arssonar í textagerðinni. Mikið er
lagt upp úr rími og stuðlum og
stundum fulllangt gengið til að við-
halda því, sbr: „Króar jú kynstrin
öll, knús og hlátrasköll við kjarri
vaxin fjöll“.
Það getur orðið pínlegt þegar
baráttan við að viðhalda forminu
verður til þess að innihaldið líður
fyrir. Inntakið í textagerðinni er
annars mjög persónulegt og geng-
ur bara vel með tónlistinni. Það
sem einum þykir væmið myndi
annar kalla einlægt, ég læt vera að
kveða upp úr með það en finnst
rétt að geta þess að textarnir eru
vel yfir því meðallagi sem gengur
og gerist í íslensku dægurpoppi.
Ívar ýtir úr vör með laginu
„Enginn bíður“ og hefði betur
stungið því aftar á skífuna. Þetta
er meinleysislegt lag sem hefur sig
aldrei almennilega til flugs og plat-
an dettur því ekki í gír fyrr en í
lagi tvö, „Nesti og nýir skór“, sem
keyrir á snotru Rhodes-píanó-
„grúvi“ og nýtur góðs af prýðilegri
bakrödd Ingu Lísu. Þetta er tví-
mælalaust eitt besta lag plötunnar.
Hið tregafulla „Fyrr en þig grun-
ar“ siglir í kjölfarið og ljær Orri
því sterkan karakter með góðum
gítarleik; flottum „slide“-sprettum
og fallegri melódíu í viðlagi. Næst
kemur eiginlegt titillag plötunnar,
„Ég þarf að komast á flug“, sem
fyrir mína parta nær því ekki.
Hvort sem um er að kenna texta
sem missir marks (brot úr honum
er að finna hér ofar) eða tuggulegu
kjúklingaplokki á gítar – ég get
ekki sett á það fingur, en ég fíla
lagið ekki. Að því sögðu vil ég
árétta að Orri stendur sig heilt yf-
ir mjög vel, það er fjarri því að
vera auðvelt að spila inn lungann
af heilli plötu og halda góðum
þræði út í gegn. Þeir félagar ná
enda upp dampi aftur og vil ég til-
taka lögin „Þú ert regnið“ og
„Endalok“ sem bæði eru prýðileg.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins
tilgreindi sönginn sem akkiles-
arhæl á fyrri plötu Ívars. Söng-
urinn hér er heilt yfir prýðilegur
sem og raddanir. Ívar tekur ekki
mikla áhættu í þeim lagasmíðum
sem eru til umfjöllunar en gerir
þetta vel.
Mýkra en mjúkt
Geisladiskur
Ívar Bjarklind –
Tíu fingur og tær bbbmn
KRISTJÁN MÁR
ÓLAFSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eyþór
Ívar „Söngurinn hér er heilt yfir
prýðilegur sem og raddanir.“