Morgunblaðið - 23.11.2009, Side 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 8 6 2 7
2 3 4
6
8 2 9
6 3
5
2 4 8 3 6
3 6 5 8 7
7 2
7 8 6
3 1
6 4 2
6 1 4
8 2 3 1
4 1 7 5
3 6 7
8 6
5 2
9
4 3 7
2 4 6 9
4 2
3 8 1 6
7 9
6
1 3 7
2 6 8 1
1 9 4 2 8 7 3 6 5
5 6 2 4 1 3 8 7 9
3 7 8 5 9 6 4 2 1
9 8 6 1 7 2 5 3 4
4 1 7 3 5 8 2 9 6
2 3 5 9 6 4 7 1 8
7 4 9 8 2 1 6 5 3
8 2 1 6 3 5 9 4 7
6 5 3 7 4 9 1 8 2
8 1 9 6 3 2 5 4 7
2 7 4 1 8 5 3 9 6
5 6 3 7 4 9 2 1 8
3 8 2 5 9 1 7 6 4
9 4 7 3 6 8 1 5 2
6 5 1 2 7 4 8 3 9
7 3 8 9 5 6 4 2 1
1 9 5 4 2 7 6 8 3
4 2 6 8 1 3 9 7 5
8 2 4 3 9 7 1 5 6
5 7 6 8 1 2 3 4 9
9 1 3 6 4 5 8 7 2
1 6 5 9 2 3 7 8 4
3 4 8 7 5 6 2 9 1
7 9 2 1 8 4 6 3 5
6 5 1 4 3 8 9 2 7
4 8 7 2 6 9 5 1 3
2 3 9 5 7 1 4 6 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 23. nóvember,
327. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Víða til þess vott ég fann,
þótt venjist oftar hinu,
að guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
Einn, þó nafn sitt feli fjær,
fagrir geislar prýða.
Dyggðin aldrei dulist fær,
dóttir guðs hin fríða.
Sannlega fær þar sæmdin gist
og sífellt lífsins yndi,
er í sömu vinna vist
viska og eðallyndi.
x x x
Hjálmar Jónsson frá Bólu ortiþetta til „dulins velgjörara“ og
Víkverji dagsins fer oft með þetta
kvæði í huganum þegar hann hugsar
um konu eina sem hann kynntist í
Kópavoginum fyrir mörgum árum.
Víkverji var þá einmana sveitapiltur í
menntaskóla og varð þeirrar ánægju
aðnjótandi að leigja herbergi hjá
þessari konu og eiginmanni hennar.
Víkverji minnist oft sam-
verustundanna með þessum sam-
rýndu sómahjónum og þá einkum
hlýju þeirra og lífsviðhorfa almennt.
Konan átti við veikindi að stríða og
Víkverji dáist að því hvernig henni
tókst alltaf að sjá björtu og fallegu
hliðarnar á mannlífinu og varðveita
barnið í sjálfri sér. Það er list sem fá-
ir virðast kunna eða þora að tileinka
sér.
Þessi fallega kona var sérlega ljóð-
og tónelsk. Bókmenntir og tónlist
voru hennar líf og yndi og hún sam-
einaði þessi hugðarefni með því að
yrkja falleg tækifærisljóð við kunn
sönglög sem sungin voru þegar fjöl-
skylda hennar og vinir gerðu sér
dagamun.
Víkverji ræddi oft þessi sameigin-
legu hugðarefni við hana og reyndar
allt milli himins og jarðar. Hann
heyrði hana aldrei kvarta eða tala illa
um annað fólk.
Í huga Víkverja er þessi kona eins
og gimsteinn sem verður sífellt verð-
mætari, einkum núna þegar ofstopi
tröllríður fjölmiðlum og þjóðmála-
umræðan einkennist af dómhörku,
hatri, ofstæki, ósanngirni og svo
miklu níði að jafnvel Bólu-Hjálmari
þætti nóg um.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 svellalög, 4
slokkna, 7 ættarnafn, 8
slitin, 9 kraftur, 11 beitu,
13 at, 14 fisk,15 vitleysa,
17 tungl, 20 líkamshluti,
22 skvampa, 23 allmikill,
24 málgefin, 25 snefils.
Lóðrétt | 1 tóra, 2 eld-
stæði, 3 þefa, 4 trjá-
mylsna, 5 hefja, 6
mannsnafn, 10
handsama, 12 reið, 13
nokkur, 15 vesæll, 16 dá-
ið, 18 spilið, 19 duglegir,
20 forboð, 21 urta.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rennblaut, 8 undur, 9 kenni, 10 akk, 11 dárar,
13 afræð, 15 hafna, 18 hress, 21 fól, 22 skott, 23 augað,
24 steinsnar.
Lóðrétt: 2 endar, 3 nárar, 4 lokka, 5 unnar, 6 hund, 7
hirð, 12 ann, 14 fær, 15 húsi, 16 frost, 17 aftri, 18 hlass,
19 eigra, 20 sóði.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
f4 O-O 6. Rf3 c5 7. d5 e6 8. Be2 exd5 9.
cxd5 Bg4 10. O-O Rbd7 11. h3 Bxf3 12.
Bxf3 a6 13. g4 h6 14. h4 Rh7 15. g5 c4
16. Be3 b5 17. Bg4 b4 18. Ra4 He8 19.
e5 dxe5 20. f5 Kh8 21. fxg6 fxg6 22. Hf7
Rhf8 23. Bxd7 Rxd7 24. Dg4 He7 25.
Haf1 De8 26. Hxe7 Dxe7
Staðan kom upp í stúlknaflokki
heimsmeistaramóts 20 ára og yngri í
Puerto Madryn í Argentínu. Katrine
Tjolsen (2178) frá Noregi hafði hvítt
gegn Stephanie Amed (2159) frá Arg-
entínu. 27. d6! De8 hvítur hefði svarað
27…Dxd6 með 28. Hd1. 28. Dxc4 Hc8
29. Df7 hxg5 30. Dxe8+ Hxe8 31. Hf7!
Rf6 32. Bxg5 He6 33. d7 Hd6 34. Hf8+!
Bxf8 35. Bxf6+ Kg8 36. d8=D Hxd8
37. Bxd8 Kf7 38. Kf2 Ke6 39. Ke3 Kd5
40. Rb6+ Kc6 41. Ke4 Bc5 42. Rc4 Kd7
43. Bb6 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skakkt bros.
Norður
♠KD6
♥Á65
♦DG985
♣D4
Vestur Austur
♠Á754 ♠10983
♥1083 ♥G74
♦64 ♦72
♣ÁG85 ♣K1032
Suður
♠G2
♥KD92
♦ÁK103
♣976
Suður spilar 4♥.
Stefán Jónsson brosti allan hringinn
þegar hann tók skorblaðið úr spila-
bakkanum. Makker hans hafði fengið
tíu slagi í 4♥ og Stefán sá að það var
harla gott. Það var afrek að komast í
4♥, enda bæði 3G og 5♦ vonlausir
samningar. Makker Stefáns var Óttar
Ingi Oddsson og vettvangurinn tví-
menningur í Dalvík í síðustu viku.
Óttar vakti í suður á 1♦ og Stefán
hækkaði sterkt í 2♦. Í framhaldinu
tóku við vandaðar þreifingar. Óttar
sagði 2♥ og Stefán 2♠. Nú auglýsti
Óttar veikleikann í laufi með 3♦, Stef-
án tók undir hjartað og Óttar lyfti í 4♥.
„Ég átti von á verðskulduðum toppi
fyrir 420, en það skekktist heldur á
mér brosið þegar ég slétti úr skor-
blaðinu og sá alls staðar 430 og 460 fyr-
ir 3G unnin með 1-2 yfirslögum. Lík-
lega spaði út.“
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nú eru það fjármálin og fjöl-
skyldan sem þú þarft að beina athyglinni
að. Taktu því strax til óspilltra málanna.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Dagurinn hentar vel til að líta inn á
við og leita skilnings á þínum eigin þörf-
um og löngunum. Vertu heiðarlegur og
sjálfum þér trúr.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að
taka til hendinni heima fyrir og koma því
fyrir sem þú hefur ekki þörf fyrir lengur.
Taktu á móti nýjum tæknilausnum með
jákvæðum huga.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gættu þess vandlega að enginn
hlunnfari þig í viðskiptum. Lítil ævintýri
geta líka glatt svo þú skalt ekki fúlsa við
þeim.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hvar sem þú kemur geturðu hafið
samræður við hvern sem er og þótt ótrú-
legt sé um hvað sem er, líka það sem þú
hefur ekki hundsvit á.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú kemstu ekki lengur hjá því að
taka afstöðu í máli, sem þú hefur lengi
látið sitja á hakanum. Festa þín gerir það
að verkum að enginn reynir að andmæla
þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hafðu ekki áhyggjur þótt dagdraum-
ar sæki á huga þinn í dag. Ef þú áttar þig
ekki á því hvað er á ferðinni, er best að
bregðast ekki við.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Eitthvað er ekki eins og það á
að vera. Treystu þínum innri áttavita og
vertu viss að leiðin sjálf er mun mikilvæg-
ari en áfangastaðurinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er svo lítið sem þarf til
þess að setja allar áætlanir úr skorðum
hjá þér. Reyndu að forðast það og sýna
þínum nánustu hlýju og tillitssemi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Innsæi þitt í tilteknar aðstæður
upp á síðkastið leiða til þess að þú breytir
markmiðum þínum. Mundu samt að
blanda ekki saman atvinnu og einkalífi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú færð tækifæri til að leysa úr
gömlu deilumáli á næstu vikum. Njóttu
þess að spjalla við maka, vini og félaga.
Nægjusemi er kostur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Mörk snillinnar eru sífellt að
víkka. Ef þú leitar svara ættirðu að reyna
að fá einhvern til liðs við þig. En lífið er
ekki svarthvítt, heldur allur regnboginn.
Stjörnuspá
23. nóvember 1996
Barnaleikritið Áfram Latibær
eftir Magnús Scheving var
frumsýnt í Loftkastalanum.
Leikstjóri var Baltasar Kor-
mákur en meðal leikara, auk
Magnúsar, voru Magnús Ólafs-
son, Selma Björnsdóttir og
Steinn Ármann Magnússon.
23. nóvember 2001
Í Suðursveit var afhjúpaður
koparskjöldur í tilefni af því
að lokið var lagningu bundins
slitlags á veginn frá Reykjavík
að Höfn í Hornafirði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
ERNA Krist-
insdóttir,
Þorragötu 9
Reykjavík,
verður sjötíu og
fimm ára mið-
vikudaginn 25.
nóvember. Af
því tilefni býður
hún fjölskyldu
og vinum í afmæliskaffi í sal Karla-
kórs Reykjavíkur á Grensásvegi 13
(Pfaff húsið) á afmælisdaginn frá
kl. 16 til 20.
75 ára
Ríkey Ágústsdóttir og Hafdís
Guðlaugsdóttir héldu tombólu og
söfnuðu 1.400 krónum og færðu
Rauða krossinum ágóðann.
Hlutavelta
„ÞETTA verður bara venjulegur mánudagur í
vinnunni. Ég ætla ekki að gera neitt sérstakt, nema
kannski bjóða syni mínum út að borða,“ segir Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Tekur hún fram að
hún fái samt sinn skammt af afmælisveisluhaldi, því
faðir hennar bauð til heilmikillar veislu um nýliðna
helgi í tilefni af sjötugsafmæli sínu. „Ef aðstæður
leyfa ætla ég að lengja næstu helgi aðeins og fara þá
út á land með syni mínum og slaka á með góða bók.
Ég ætla þannig að gera ekkert, sem er algjör mun-
aður núorðið.“
Spurð um eftirminnileg afmæli í tímans rás nefnir Katrín strax 4 ára
afmælisdaginn sinn. „Þegar ég vaknaði beið mín risastór pakki fyrir
framan rúmið mitt. Það var indjána-playmo-sett sem fylgdi mér lengi,“
segir Katrín. Einnig nefnir hún þrítugsafmæli sitt þegar hún bauð um tvö
hundruð vinum og vandamönnum til veislu. „Ég er mikil veislukona, en
næ ekki að skipuleggja neitt slíkt núna,“ segir Katrín og bætir við:
„Kannski slæ ég upp stórveislu þegar ég verð 36 ára. Það fer allt eftir að-
stæðum, skapi og tíma hverju sinni,“ segir Katrín og ítrekar að hún sé síð-
ur en svo bundin af heilum og hálfum tugum þegar kemur að stórveislum,
enda hafi hún haldið upp á 22 ára afmæli sitt með stæl. silja@mbl.is
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra 35 ára
„Ég er mikil veislukona“
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is