Morgunblaðið - 23.11.2009, Page 26
Söngfugl Haukur Heiðar Hauksson,
söngvari Diktu, var ánægður að sjá.
Dikta Baðaði sig í
fjólubláu ljósi á sviðinu.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
30.000
MANNS!
Sýningum fer
fækkandi
SUMIR DAGAR...
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í BORGARBÍÓI
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
34.000
MANNS!HHHH„Taugatrekkjandi og
vægast sagt óþægileg”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW
„2012 er Hollywood-rússíbani
eins og þeir gerast skemmtileg-
astir! Orð frá því ekki lýst hvað
stórslysasenurnar eru öflugar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Stórslysamynd eins og
þær gerast bestar.
V.J.V - FBL
„...þegar líður á verður spennan
þrælmögnuð og brellurnar ger-
ast ekki flottari“
„2012 er brellumynd fyrir augað
og fín afþreying sem slík“
S.V. - MBL
STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS!
VINSÆLASTA
MYNDIN
Á ÍSLANDI
25.000 MANNS
Á 11 DÖGUM!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
Frábær rómantísk gamanmynd sem enginn ætti að missa af!
Geta tvær manneskur sem hittast á röngum
tíma látið sambandið ganga upp?
Love Happens kl. 5:30 - 8 - 10:20 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
A Serious Man kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára
2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára
Desember kl. 6 - 8 B.i.10 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 6 - 10 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9 B.i.10 ára
Jóhannes kl. 6 LEYFÐ
Paranormal Activity kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K
Ég á erfitt með að átta migá lagi Hjaltalín.“ Svosagði í dómi undirritaðsum jólaplötuna Stúfur
sem út kom árið 2004 en þar átti
sveitin eitt lag ásamt fleiri ungum
jaðarvænum sveitum. Fleiri orðum
eyddi ég ekki í framlag Hjaltalín.
Mig minnti að ég hefði verið harð-
orðari í garð þessarar óþekktu
sveitar en setningin er hófstilltari
en svo. Það er meira svona „hvorki
né“-bragur yfir henni. Svo pældi ég
ekki meira í því, hér var um að
ræða eina af þessum sveitum sem
henda í eitt lag áður en meðlimir
skrá sig í verkfræðina eða hvað það
nú er. Aldrei hefði mig getað grun-
að hvernig mál áttu svo eftir að
þróast …
Hjaltalín hlaut verðskuldað lof
fyrir fyrstu breiðskífu sína,
Sleepdrunk Seasons, sem út kom
fyrir réttum tveimur árum síðan. Í
dómi blaðsins sagði m.a.: „Hjaltalín
tekst hér á við hið hetjulega – sum-
ir myndu segja fífldjarfa – verkefni
að samþætta grípandi nýbylgju-
popp og klassíska tónlist …
Sleepdrunk Seasons er einkar lof-
andi frumraun frá afar metn-
aðarfullri sveit.“
Þessi lýsing hefur staðist tímans
tönn ágætlega, umrætt verk var
sannarlega tilkomumikið en um leið
ekki alveg hnökralaust. Hjaltalín
hefur síðan þá eflst jafnt og þétt og
hefur náð að standsetja sig sem
allra áhugaverðustu sveit landsins.
Eftirvæntingin eftir þessari plötu
hér er því þó nokkur og aðeins
meira en það.
Terminal er
allt öðruvísi plata
en frumburð-
urinn. Sleepdr-
unk Seasons var
„línuleg“, rennsl-
ið heilsteypt þar sem lögin minntu
hvert á annað og framreiðslan var
dálítið „inn í sig“ ef svo mætti
segja. Á Terminal er þessu hins
vegar þveröfugt farið. Platan er
„úthverf“; brött, stór, dramatísk.
Flökt er á milli stíla eins og ekkert
sé sjálfsagðara. Leikgleði meðlim-
anna er tilfinnanleg, en um leið
leikur öryggi þess sem veit hvað
hann vill fá fram um allt hérna.
Sjálfstraust og kunnátta eru hér í
stöflum en um leið, og þetta er
mikilvægt, er passlega mikið af
sakleysislegri ævintýragirni sem
veldur því að keyrt er glað-
hlakkalega fram að hengiflugi,
menn og konur óhrædd við að láta
vaða, fara á ókunnar slóðir, prófa
sig og reyna. Með slíkt veganesti
þarf varla að spyrja að leikslokum.
Opnunarlagið, „Suitcase Man“,
hefst með djúpum blæstri, sem
helst minnir á þokulúður. Spennan
hleðst svo jafnt og þétt upp; rafgít-
ar, strengir og blásturshljóðfæri
takast á, þar til lagið springur út í
guðdómlegri litadýrð. Risastórt og
dramatískt, án þess nokkru sinni
að fara yfir strikið. Ótrúlegt lag.
Svo rekur hver snilldarsmíðin aðra;
„Sweet Impressions“, sem endar
með sálarríkri falsettu Högna, og
hið James Bond-lega „Feels like
Sugar“; stóreflissmíð, „Spectorísk“
eiginlega, grípandi og tilfinn-
ingaþrungin þar sem hin frábæra
söngkona Sigríður Thorlacius fer á
kostum. Og þetta fólk er nýskriðið
yfir tvítugt!?
Í „Song From Incidental Music“
er hins vegar sveigt út af leið. Lag-
ið er hægt og berstrípað; „mel-
ankólískt“ og myrkt (það er nett
Scott Walker-stemning í þessu lagi
og einnig því áttunda, „Sonnet for
Matt“). „Montabone“ kemur á eftir
„Song From Incidental Music“ og
ber með sér eins og fleiri lög nokk-
uð kvikmyndalegan fíling (sorg-
arsöngur úr Mary Poppins. Ein-
hver?). „Stay By You“ ber með sér
pastelhljóma í anda Van Morrison;
mögnuð smíð þar sem viðkvæmn-
isleg, ögn hrjúf og heillandi rödd
Högna Egilssonar nýtur sín til
fulls. „7 Years“ er þá diskólag (!)
en situr þó eins og ekkert sé sjálf-
sagðara við hliðina á restinni.
Lokalagið „Vanity Music“ er algert
„lokalag“, minnir dálítið á „Good
Night“ sem lokar Hvítu plötu Bítl-
anna. Þetta er nokkurs konar yf-
irdrifin Disney-vögguvísa og sá
blær er auðheyranlega hafður á því
viljandi. Þessir taktar eru snilld-
arlegir og styrkja verkið enn frek-
ar, þ.e. þegar hljómsveitin leyfir
sér hreinlega að grínast (lagið heit-
ir t.a.m. „Hégómleg tónlist“ upp á
íslensku) og fer viljandi yfir við-
tekin mörk, sjá t.d. ýktan sönginn í
„Feels like Sugar“.
Terminal fer þannig yfir allan
skalann, en fyrst og síðast er um að
ræða óhemjuþroskað og metn-
aðarfullt verk og ekki er skrítið að
fólk grípi til Sigur Rósar-líkinga
þegar talað er um sveitina. Meist-
araverk þeirrar sveitar, Ágætis
byrjun, kom út fyrir tíu árum síðan
og þar á undan, réttum tveimur ár-
um fyrr, hafði frumburðurinn Von
komið út, sem var einkar lofandi en
engan veginn hnökralaus.
Ég á ekki lengur erfitt með að
átta mig á Hjaltalín. Þetta er allt
saman orðið mjög skýrt. Þessi önd-
vegissveit hefur hér skilað sann-
kölluðu meistaraverki, verki sem er
enn að vaxa og hræra upp í þessum
haus. Sannkallað þrekvirki þegar
allt er saman tekið, hreint út sagt
glæsileg smíð. Hæglega plata árs-
ins og plata síðustu ára ef út í það
er farið.
Nýir tímar
Geisladiskur
Hjaltalín - Terminal
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Þrekvirki „Platan er „úthverf“; brött, stór, dramatísk,“ segir m.a. í dómi
Arnars Eggerts um nýja plötu Hjaltalín, sem út kemur í dag.